Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Parísarpæjur
Anna Fríða Gísladóttir gifti sig nýverið á Ítalíu og nýtti efri hluta kjólsins sem æðislegan topp þegar hún fór út á lífið með vinkonum sínum í París.
Eftirmáladrottningin Þórhildur Þorkelsdóttir var með Önnu Fríðu og fleiri fríðum fljótum í París og þær skelltu sér á Celine Dion tónleika.
Og sjóðheiti hjúkrunarfræðingurinn Þrúður Guðmundsdóttir lét sig ekki vanta.
Gellustælar
Tónlistarkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, átti gott kvöld með vinkonunum.
Heppinn með Diego sem leigjanda
Prófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson deildi nokkrum skemmtilegum myndum frá Rio þar sem hann á húsnæði. Hann segist heppinn með góðan leigjanda, Diego, sem er einkaþjálfari í flottri líkamsrækt. Hannes fer aftur til Rio í lok nóvember í sólina.
Tatjana í íslenskri hátísku
Tónlistarstjarnan Tatjana Dís klæddist prjónahönnun frá Ásu Bríeti Brattaberg fyrir tónlistarmyndband. Ása hefur verið að gera góða hluti í tískuheiminum víða og vakið mikla athygli í bransanum.
Skvísusjálfa
Rísandi stjarnan Unnur Borg skellti í sjálfu klædd í pels.
Ást í fimm ár
Leikaraparið Aldís Amah Hamilton og Kolbeinn Arnbjörnsson hafa verið ástfangin í fimm ár.
Seiðandi í Silvíu Nótt
Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime sat fyrir í bleikri hettupeysu með mynd af Silvíu Nótt.
Sandur í Zanzibar
Kaleo-söngvarinn Jökull Júlíusson skellti sér á hestbak á ströndinni í Zanzibar. Hann er þar ásamt sinni heittelskuðu Brunu Ludmillu.
Sæt í Seoul
Athafnakonan Sofia Elsie Nielsen er á ferðalagi um Asíu. Hún var í Tókíó en er núna mætt til Seoul.
Grænn Gauti
Rapparinn og uppistandarinn Emmsjé Gauti sat fyrir hjá ljósmyndaranum Sögu Sig.
Með tíkinni París í Króatíu
Lögmaðurinn Diljá Helgadóttir heimsótti Króatíu og Bosníu Hersegóvíu og tíkin hennar París var að sjálfsögðu með.
Klæddi sig upp sem engil leyndamáls Viktoríu
Förðunarfræðingurinn og TikTok-stjarnan Embla Wigum horfði á tískusýningu nærfatarisans Victoria's Secret og klæddi sig í hvítu einkennisvængina.
„God bless this hot mess“
Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdarstjóri hjá World Class, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, fagnaði 34 ára afmæli sínu með miklum stæl. Hún fékk æðislega gullköku og poppstjörnurnar Flóni, Elvar og Alaska voru meðal þeirra sem tróðu upp.
Síðasti dans Bríetar
Poppstjarnan Bríet Elfar er á tónleikaferðalagi um Bandaríkin að hita upp fyrir Daða Frey. Hún var að gefa út lagið Last Dance.
Viðburðaríkt hjá Villa
Síðastliðinn mánuður hefur verið heldur betur viðburðaríkur hjá leikaranum og grínistanum Villa Neto.
Gelló í gelluafmæli
Áhrifavaldurinn Arnar Máni fór í gelluafmæli.