Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan fimm í gær til klukkan fimm í nótt. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 1 sem sinnir vesturhluta borgarinnar og Seltjarnarnesi.
Lögregla náði manninum og handtók hann. Hann er grunaður um að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu, akstur undir áhrifum fíkniefna, vopnalagabrot og vörslu fíkniefna. Hann var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Í sama umdæmi var óskað eftir aðstoð lögreglu þar sem grjóti var kastað inn um glugga á heimahúsi. Málið er í rannsókn. Þá var tilkynnt um hóp af ungmennum sem var að setja einn í skott bifreiðar gegn hans vilja. Reyndist það vera „eitthvað grín“.
Tilkynnt var um bílveltu í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem sinnir austurhluta borgarinnar. Ökumaður var kominn út úr bílnum þegar viðbragðsaðilar voru komnir á vettvang og var fluttur á bráðamóttöku með minni háttar áverka.