Vinnuferð til Parísar tók óvænta stefnu þegar Agnes Gestsdóttir og Eva Dögg Hrundardóttir lentu í miðjum óeirðum á leið á hótelið sitt. Reykur, sprengingar og fólk á hlaupum mætti konunum sem reyndu að komast í skjól með ferðatöskurnar sínar.
„Við höfum sjaldan á ævinni verið jafn hræddar,“ skrifar Agnes í Facebook færslu um upplifunina. Í samtali við Nútímann segir hún að þær hafi verið í áfalli eftir atburðina.
Enginn vildi aka þeim á hótelið
Konurnar ætluðu að taka leigubíl frá flugvellinum en að sögn Agnesar vildi enginn leigubílstjóri aka þeim á hótelið vegna mótmælanna.
Þær tóku því tvær lestir. Agnes segir að lestin hafi ekki stoppað á ákveðnum stöðvum vegna átakanna og þegar þær komu úr seinni lestinni hafi tekið við óhugnanleg sjón.
Reykur var í lestarganginum, sprengingar heyrðust og grímuklætt fólk kom hlaupandi á móti þeim. Þær reyndu að finna hótelið á Google Maps og sáu að það var aðeins í tveggja mínútna göngufjarlægð.
Þegar þær komu upp úr stöðinni blasti við reykmökkur, fólk á hlaupum, lögreglubílar, sjúkrabílar og slökkvibílar.
„Og þarna vorum við, tvær íslenskar konur með fullt af ferðatöskum, í miðri þessari ringulreið!“
Hugleiddu að biðja lögregluna um fylgd
Nokkrir menn komu að konunum og vöruðu þær eindregið við að halda í átt að hótelinu. Þeir ráðlögðu þeim að setjast inn á kaffihús og bíða í allt að fjóra klukkutíma meðan ástandið róaðist.
Konurnar hugleiddu að biðja lögregluna um fylgd en héldu að lokum áfram. Þá rákust þær á mann sem spurði hvort þær væru frá Íslandi og á leið á hótelið.
Maðurinn reyndist vera hóteleigandinn og þær voru þegar staddar fyrir framan hótelið.
„Þegar við komumst loksins inn sátum við þar með skjálfandi fætur og reyndum að ná okkur niður. Í kringum okkur var annað fólk sem var ekki síður hrætt.“
Óttinn var ekki minni inni á hótelinu
Að sögn Agnesar heyrðust sprengingar allt kvöldið og fólk braut og bramlaði fyrir utan. Hóteleigandinn hafi sjálfur þurft að standa vörð um eignina.
Hún segir að eldur hafi verið lagður að húsi beint á móti hótelinu. Þeim hafi verið sagt að þar byggi fjölskylda með sex mánaða barn, en síðar hafi komið í ljós að fjölskyldan var ekki heima.
„Ég hef oft séð svona atburði í fréttum, en það er allt annað að standa sjálfur í miðjum ósköpunum og finna fyrir þessum ótta.“
Hefði ekki farið hefði hún vitað hvað biði þeirra
Í samtali við Nútímann segir Agnes að þær hafi vitað af mótmælum áður en þær lögðu af stað. Þær hafi hins vegar ekki áttað sig á alvarleika ástandsins eða því að hótelið þeirra væri í miðjum átökunum.
Aðspurð hvort lítil umfjöllun íslenskra fjölmiðla hefði átt þátt í því að þær gerðu sér ekki grein fyrir ástandinu, og hvort hún hefði farið hefði hún vitað hvernig ástandið var í raun, svarar Agnes:
„Já klárlega, við erum í vinnuferð og ef ég hefði vitað hvað tæki á móti okkur hérna hefði ég ekki farið á þessari dagsetningu.“