Stúdentamótmæli hafa staðið yfir undanfarnar þrjár vikur þar sem námsmenn hafa krafist úrbóta í menntakerfinu og betri aðstæðna í skólum. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull.
Hátt í sjötta hundrað þúsund mótmælenda tóku þátt í gær og hafa 2.400 verið handteknir. Í París hefur komið til harðra átaka milli mótmælenda og lögreglu sem hefur beitt táragasi á mannfjöldann. Sömuleiðis var kveikt í byggingum í París og brotist inn í verslanir.
Samkvæmt frönskum stjórnvöldum hafa um þúsund lögreglumenn slasast, þar af sjö alvarlega.
Skýr greinarmunum á þeim sem krefjast breytinga og þeirra sem eyðileggja
Macron ávarpaði frönsku þjóðina í Élysée-höll í París og sagði að gera þyrfti skýran greinarmun á „réttmætum kröfum“ mótmælenda og þeirra sem “eyðilögðu, rústuðu og rændu.“ Hann ítrekaði að þeir sem ættu í hlut yrðu dregnir til ábyrgðar og að ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað.
Fyrr í dag hélt Macron neyðarfund með háttsettum embættismönnum og sagðist hafa falið þeim, í samráði við héraðs-og borgarstjóra, að vernda borgir Frakklands, opinberar byggingar og fyrirtæki, segir í umfjöllun Le Monde. Óbærilegt væri að sjá götur borga Frakklands lagðar í rúst og hét hann stuðningi við fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni.
Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, lagði einnig orð í belg og sagði mótmæli vera grundvallarrétt en að valda óreiðu með ofbeldi sé það ekki.
„Að ráðast á lögreglu okkar og löggæslulið, beina spjótum sínum að stofnunum okkar, vinna skemmdir á opinberum byggingum, ryðjast inn í héraðsstjórnarskrifstofur eða ráðhús, ræna verslanir: ekkert getur réttlætt slíkt,“ skrifaði Nuñez á X fyrr í dag.