Tromman sem ferðaðist með norska karlalandsliðinu í fótbolta á heimsmeistarakeppnina í fótbolta í ár hefur verið seld fyrir metupphæð. Frá þessu greinir norska ríkisútvarpið. Tromman er árituð af öllum norsku landsliðsmönnunum.
Tromman var boðin upp í sjónvarpssöfnuninni TV-aksjonen á NRK þar sem fé var safnað til styrktar Flóttamannahjálp Noregs.
Eftir 277 boð frá 32 áhugasömum kaupendum var tromman seld á 1,3 milljónir norskra króna, en það jafngildir 16,7 milljónum íslenskra króna. Nafn kaupandans hefur ekki verið gefið upp.
Reru í stað þess að „húa“
Norska karlalandsliðið náði besta árangri á HM í sögu liðsins með því að komast alla leið í átta liða úrslit eftir frækilegan sigur á Brasilíu. Þeir voru þó á endanum slegnir út af Englandi í uppbótartíma.
Norsku stuðningsmennirnir unnu engu að síður hug og hjörtu fótboltaaðdáenda víða um heim með einkennandi fögnuði sem þótti minna á íslenska víkingaklappið, en þó með nýjum brag. Í stað þess að klappa og húa, reru þeir ímynduðum bátum og hrópuðu „Ro!“
Tromman gegndi lykilhlutverki við að slá taktinn fyrir „víkingaróðurinn“ svonefnda og börðu ekki ómerkilegri menn á trumbuna en fótboltastjarnan Erling Braut Haaland og Hákon Noregskonungur.
HM-tromman þykir með öðrum orðum afar mikilvægur hluti norskrar íþróttasögu en nú er hún vísast komin í einkaeigu einlægs aðdáanda.