Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði

Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði

Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði

Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði

FréttinAðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment

Júlíus Valsson skrifar:

Á flestum bryggjum landsins stendur lítill skúr með glugga að hafnarvoginni. Þar situr maður sem á hvorki bátinn né fiskinn, skráir það sem vogin sýnir og réttir nótuna út um lúguna. Honum stendur á sama hvort körin reynast þung eða létt. Fyrirkomulagið er gamalt og fremur leiðinlegt, en hefur dugað vegna þess að fátt vekur meira traust en þegar sá vegur sem engra hagsmuna á að gæta.

Undirritaður er læknir og hefur aldrei vegið annað en sjúklinga. Þessi skúr kom honum þó í hug þegar fréttist að Röst sjávarrannsóknasetur ehf. hefði fengið leyfi til að blanda vítissóda í Hvalfjörð.

Leyfið

Utanríkisráðuneytið gaf leyfið út 8. september. Samkvæmt Röst fara 170.000 lítrar af vatnsþynntri basalausn í yfirborðssjó fjarðarins á fjórum dögum, í áföngum sem sagðir eru 11.000, 43.000 og 115.000 lítrar. Þar hafa eitt þúsund lítrar orðið viðskila við samlagninguna.

Þurrefnið er átta tonn af natríumhýdroxíði, þ.e. vítissóda, og markmiðið að kanna hvort auka megi getu sjávar til að taka upp koldíoxíð.

Sama ráðuneyti hafnaði sambærilegri umsókn 9. maí 2025 á þeim forsendum að hvorki lægi fyrir stefna né reglur um slíkar aðgerðir. Í júní síðastliðnum birtust síðan frumvarpsdrög þar sem lagt er til að leyfi til rannsókna af þessu tagi verði háð mati á áhrifum og gefin út af Umhverfis- og orkustofnun. Frumvarpið hefur enn ekki orðið að lögum. Leyfið í Hvalfirði var veitt eftir eldri reglum. Því liggur á núna.

Skúrinn

Málið er flókið. Hafrannsóknastofnun var umsagnaraðili ráðuneytisins bæði í fyrra og nú, en vann jafnframt grunnrannsóknir í firðinum fyrir fé frá Röst. Röst segir upphæðina hafa verið 40 milljónir króna, en leigutaki Laxár í Kjós hefur nefnt 100 milljónir í tveimur áföngum. Hvorug talan fæst lesin af vigtarnótu.

Röst segir verkið hafa verið boðið út og Hafrannsóknastofnun metna hæfasta. Í umsögn hennar frá 12. febrúar 2025 kemur fram að starfsmaður stofnunarinnar sitji í ráðgjafaráði Rastar „á eigin vegum“ og hafi þess vegna ekki komið að málinu. Stofnunin sjálf vék þó ekki sæti.

Formaður stjórnar Rastar er jafnframt forstöðumaður vettvangsrannsókna hjá Carbon to Sea, bandarískum samtökum sem greiða kostnaðinn og hafa, að sögn Rastar, fengið um sjö milljarða króna til verkefna á þessu sviði. Ekkert af þessu er ólöglegt og fátt hefur farið leynt. En fjárhagsleg tengsl verða ekki sjálfkrafa ómerkileg þótt þau séu opinber.

Afraksturinn

Binding koldíoxíðs verður ekki mæld beint. Að ná jafnvægi milli lofts og sjávar tekur mánuði og basinn verður löngu áður orðinn ógreinanlegur frá náttúrulegum sveiflum. Niðurstaðan verður því að miklu leyti lesin úr reiknilíkani, og það líkan af Hvalfirði lét Röst smíða. Hver annar?

Framleiðsla átta tonna af vítissóda losar að sögn fimm til sautján tonn af koldíoxíði eftir orkugjafa, en möguleg binding er um sjö tonn ef allt gengur eftir.

Forstöðumaður Rastar var spurður á mbl.is 8. október hvort útiloka mætti skaða á lífríki fjarðarins og svaraði því játandi. Það er rösklega tekið til orða um tilraun sem enn á eftir að framkvæma.

Aðrar hafnir

Í St Ives-flóa í Cornwall var fallið frá sambærilegum áformum eftir andstöðu heimamanna. Í Maine-flóa frestaði Woods Hole-stofnunin sinni tilraun vegna mótmæla sjómanna. Þegar hún fór loks fram hafði basamagnið verið minnkað um þrjá fjórðu, losunin færð 60 kílómetra frá landi og sjómaður hafður um borð til eftirlits.

Hér var tilkynnt 23. september að opnir fundir með íbúum yrðu haldnir í lok mánaðarins, rúmum tveimur vikum eftir að leyfið hafði verið gefið út.

Nótan

Engan þarf að undra hvers vegna þetta vekur spurningar. Sá sem leggur upp aflann hefur að verulegu leyti greitt fyrir rannsóknirnar, komið að gerð líkansins og tengist þeim samtökum sem fjármagna verkefnið. Stofnanir sem komu að undirbúningi og umsögnum fara síðan með mikilvægan hluta eftirlitsins.

Röst bendir á að þekkingu á sjávarflæði Hvalfjarðar megi yfirfæra á aðra sambærilega firði. Af þeim eigum við nóg og nóg er til af vítissóda. Menn þurfa bar að vera a undan lögum og reglugerðum. 

Sjúklingar undirritaðs hafa, eftir því sem hann best veit, aldrei fengið að koma með vogina að heiman.

#hvalfirði #vigtin #vítissódinn

Upprunaleg slóð:
https://frettin.is/2026/10/18/vitissodinn-og-vigtin-i-hvalfirdi/

📰 Aðrar fréttir

Umhverfisvænna að sleppa ó­þarfa kurteisi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Umhverfisvænna að sleppa ó­þarfa kurteisi - Vísir
Það er oft sagt að kurteisi kosti ekki neitt, en stundum á þessi fallega fullyrðing ekki alveg við og þannig er það í tilfelli gervigreindar. Þegar fy...
Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi - Vísir
Í frétt grænlenska fréttamiðilsins KNR segir að öllu starfsfólki Hótels Kulusuk hafi verið sagt upp. Án viðskiptavina frá Íslandi sé ekki lengur hægt ...
Brynjar Níelsson: Óeirðirnar í Frakklandi ekki nemendamótmæli heldur ofstækisfullir vinstri menn með gyðingaandúð
📅 18.10.2026 👁️ 0
Brynjar Níelsson: Óeirðirnar í Frakklandi ekki nemendamótmæli heldur ofstækisfullir vinstri menn með gyðingaandúð
Óeirðir með miklu ofbeldi og eignaspjöllum hafa gengið yfir stærstu borgir Frakklands eftir að mótmæli vegna aðstæðna í skólum og hækkandi framfærsluk...
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið - Vísir
Á föstudaginn undirritaði Donald Trump Bandaríkjaforseti forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvinga...
Segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir stórbruna í herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 0
Segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir stórbruna í herstöð
Mark Carney forsætisráðherra Kanada segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir að fjórir hermenn létust og tugir slösuðust alvarlega eftir stórbruna se...
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu
Gul viðvörun er í gildi um allt land og hafa björgunarsveitir á Ölfussvæðinu sinnt þó nokkrum útköllum vegna yfirvofandi þaktjóns. Sinna þurfti ýmsum ...
Chicago's battle against the synthetic drugs flooding the US
📅 18.10.2026 👁️ 0
Chicago's battle against the synthetic drugs flooding the US
A new wave of synthetic drugs is sweeping across the United States, raising fear of a worsening drug crisis. The BBC's Quentin Sommerville reports fro...
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni
📅 18.10.2026 👁️ 1
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni Fréttin18. október 2026InnlentLeave a Comment Rannsókn ...
Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur
📅 18.10.2026 👁️ 1
Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur
Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur Fréttin18. október 2026Fréttatilkynning, InnlentLeave a Comment Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar o...
Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðar­línuna - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðar­línuna - Vísir
Einn innhringjanda til Neyðarlínu lá sjálfur á þakplötu sem hafði losnað til að forða því að hún ylli tjóni, að því er fram kemur í tilkynningu slysav...
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn
📅 18.10.2026 👁️ 3
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Fréttin18. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: ...
Ekkert eftirlit með börnum í bráðavistun
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ekkert eftirlit með börnum í bráðavistun
Ekki er sama eftirlit með börnum í bráðavistun og öðrum börnum í fósturkerfinu. Félag fósturforeldra segir dæmi um að börn séu í mörg ár í bráðavistun...
50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að út­skýra okkur - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að út­skýra okkur - Vísir
Stundum jafnvel þannig að það að afþakka boð sem okkur langaði ekki í gat hljómað eins og flókið sakamál. „Sko, málið er að amma mannsins míns er að p...
Rússarnir ráða þessu öllu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Rússarnir ráða þessu öllu
Rússarnir ráða þessu öllu Fréttin18. október 2026Erlent, Jón MagnússonLeave a Comment Andy Burnham. Jón Magnússon skrifar: Burnham forsætisráðherra Br...
Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum
Samvinna björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu varð til þess að leit að manni sem féll í Stuðlagil í ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á botni...
Cindy Crawford 'beyond heartbroken' after death of son Presley at 27
📅 18.10.2026 👁️ 3
Cindy Crawford 'beyond heartbroken' after death of son Presley at 27
Presley Gerber's death in September is being investigated as a suspected overdose.
Gæsileg og vel sótt fjárlitasýning
📅 18.10.2026 👁️ 3
Gæsileg og vel sótt fjárlitasýning
Það er mjög vinsælt á haustin að halda sýningar þar sem bændum, búaliði og öðrum áhugasömum er boðið að koma og kynna sér íslensku sauðkindina og hvað...
Glæsileg og vel sótt fjárlitasýning

For­maður VG fékk tára­gas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
For­maður VG fékk tára­gas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ - Vísir
Rósa Björk hefur verið í Frakklandi undanfarna daga. Þegar blaðamaður ræddi við hana í kvöld beið hún spennt eftir því að Emmanuel Macron Frakklandsfo...
Bjartsýni um samstarf „kannski barnaskapur“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Bjartsýni um samstarf „kannski barnaskapur“
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni en hyggst sitja áfram á þingi sem þingmaður utan þingflokks.Hann sagði ástæðu úrsagnarinnar bæð...
Macron calls for calm in France and warns rioting must not escalate
📅 18.10.2026 👁️ 1
Macron calls for calm in France and warns rioting must not escalate
French President Emmanuel Macron gives a national address after widespread disorder and as some looting continued in Paris.
Nafn mannsins sem lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 18.10.2026 👁️ 3
Nafn mannsins sem lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Maðurinn sem lést í slysi á Gæsavatnaleið á föstudagskvöldið hét Arnþór Örlygsson, fæddur 16. júní 1979. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunn...
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur
📅 18.10.2026 👁️ 3
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur Mikil gróska er í mat­væla­gerð á Norð­ur­landi vestra. Það er engin til­viljun. Í Far­skól­anum á Sau...
Macron: „Hvað er í gangi í hausnum á þeim?“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Macron: „Hvað er í gangi í hausnum á þeim?“
Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði aðgerðir til að bregðast við óánægju mótmælenda í sjónvarpsávarpi sem hann hélt í kvöld. Hann gagnrýndi hins...
Hringvegur lokaður milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hringvegur lokaður milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs
Hringveginum hefur verið lokað milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs vegna hvassviðris og sandroks. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.i...
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið - Vísir
Lögreglan greinir frá þessu í færslu á Facebook. Hinn 47 ára fjölskyldufaðir lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld. Hann va...
Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ - Vísir
Fjölskyldufaðir á fimmtugsaldri lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls. Hann var í tíu manna hópi en um var að ræða jeppaferð á vegum starfsm...
„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“ - Vísir
Um mánaðamótin lýkur starfi tuttugu ára starfi félagasamtakanna Reiðhjólabænda. Samtökin hafa síðustu ár barist fyrir bættum hagsmunum hjólandi fólks,...
Canadian military base fire: Death toll confirmed and cause under investigation
📅 18.10.2026 👁️ 4
Canadian military base fire: Death toll confirmed and cause under investigation
At least four people are confirmed to have died after a huge fire swept through the base.
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum
📅 18.10.2026 👁️ 4
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum
Stúlkan var ein heima þegar bankað var harkalega á rúðu á neðri hæð hússins. Þegar hún opnaði dyrnar blöstu við þrír óeinkennisklæddir menn með grímur...
Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar
📅 18.10.2026 👁️ 4
Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar
Þann 6. október birti fyrirtækið OpenAI 722 handrit sem innihalda alls 372 stærðfræðilausnir. Áður hafði fyrirtækið sagt í september að gervigreind he...
Stefán leggur til breytingu á þjóðarréttinum – „Versta teik sem ég hef heyrt“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Stefán leggur til breytingu á þjóðarréttinum – „Versta teik sem ég hef heyrt“
Það er óhætt að segja að Stefán Pálsson sagnfræðingur, varaborgarfulltrúi og þjóðfélagsrýnir hafi vakið misjöfn viðbrögð með tillögu sinni um að Bæjar...
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi
📅 18.10.2026 👁️ 4
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi
„Samþykki gefur ekkert ótakmarkað leyfi til þess að gera hvað sem er og þurrkar ekki út mannréttindi fólks.“Þetta segir Guðný S. Bjarnadóttir, stjórna...
Fjórir her­menn létust í elds­voða - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Fjórir her­menn létust í elds­voða - Vísir
Mark Carney, forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í yfirlýsingu í dag. Hann hefur gefið út að flaggað verði í hálfa stöng um allt land vegna h...
Rósa Björk gekk með mótmælendum í Frakklandi og gagnrýnir framgöngu lögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 4
Rósa Björk gekk með mótmælendum í Frakklandi og gagnrýnir framgöngu lögreglu
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, gekk með mótmælendum í Angers í Frakklandi laugardaginn 17. október. Í færslu af Facebook-síðu he...
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka
Ef allt fer samkvæmt áætlun verður leiðangur Japönsku geimvísindastofnunarinnar JAXA sá fyrsti sem farinn verður fram og til baka en ferðir til Mars h...
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
📅 18.10.2026 👁️ 3
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherraEkki eru allir á sama máli um túlkun ...
Magnús Geir afar þakklátur eftir frumsýningu á sannsögulegu leikriti um hörmulegan atburð - Söguefnin voru viðstödd
📅 18.10.2026 👁️ 4
Magnús Geir afar þakklátur eftir frumsýningu á sannsögulegu leikriti um hörmulegan atburð - Söguefnin voru viðstödd
Miklar tilfinningar hafa bersýnilega bæst innra með Magnúsi Geir Þórðarsyni Þjóðleikhússtjóra eftir frumsýningu á föstudag á leikritinu Högg, sem hann...
Björn Jón skrifar: Eldræða við Akrópólis
📅 18.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Eldræða við Akrópólis
Mynd Sjónvarpsþátturinn Højskolen á TV2 í Danmörku nýtur mikilla vinsælda
Lokuðu rann­sókn á al­var­legu at­viki eftir fimm­tán mánaða bið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Lokuðu rann­sókn á al­var­legu at­viki eftir fimm­tán mánaða bið - Vísir
Þetta kemur fram í svörum Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, GEV, við fyrirspurn Vísis og gögnum sem stofnunin afhenti vegna málsins. Samkvæmt...
Injured man in his 20’s taken to hospital after street fight in Lanzarote
📅 18.10.2026 👁️ 4
Injured man in his 20’s taken to hospital after street fight in Lanzarote
A man in his early 20’s, was taken to hospital this morning (Sunday) after being injured during a street fight in Lanzarote.The incident was reported ...
16 kínversk skip rekin frá Taívan
📅 18.10.2026 👁️ 4
16 kínversk skip rekin frá Taívan
16 kínversk skip sáust í sameiginlegum aðgerðum undan ströndum Taívan í morgun. Strandgæslan þar segir þetta óvenju mikið og skipin hafi verið hrakin ...
Two men killed in motorcycle crash on TF-1 in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 4
Two men killed in motorcycle crash on TF-1 in south Tenerife
Two men aged 48 and 52 died after a motorcycle crash on the TF-1 in southern Tenerife in the early hours of this morning, Sunday.CECEOES 112 received ...
Hvort viltu franskar eða appelsínu með hamborgaranum?
📅 18.10.2026 👁️ 4
Hvort viltu franskar eða appelsínu með hamborgaranum?
Ótal fréttir hafa verið sagðar af mataræði, vísað í skýrslur og rannsóknir og ólíklegt að málið sé tæmt, ef það gerist þá nokkurn tíma.RÚV hefur staði...
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
📅 18.10.2026 👁️ 4
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki Verkir eru algeng­asta ástæða þess að fólk leitar til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Grund­vall­ar­munur ...
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar andmælir því að of mikið fari fyrir verkalýðsforingjum, þar með talið henni, en ekki nógu mikið fyrir almenn...
Betra að fæla álftina en skjóta hana
📅 18.10.2026 👁️ 4
Betra að fæla álftina en skjóta hana
„Þessi umræða kemur nú oft upp, á hverju hausti, þar sem fuglarnir sækja í kornin, bæði álftir og gæsir. Þetta hefur náttúrlega verið sérstaklega erfi...
Syrgja starfs­mann sem lést í slysi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Syrgja starfs­mann sem lést í slysi - Vísir
„Það kom stórt skarð í hjarta Kraftbíla og starfsmanna fyrirtækisins um helgina,“ skrifa forsvarsmenn fyrirtækisins Kraftbíla á Akureyri í færslu á Fa...
Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga - Vísir
Atvikið átti sér stað við Bredgade í Kaupmannahöfn þar sem eystri Landsréttur Danmerkur var áður til húsa. Dómstóllinn flutti fyrir fjórum árum og nú ...
„Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann“
📅 18.10.2026 👁️ 4
„Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann“
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, tók þátt í mótmælum í borginni Angers í vesturhluta Frakklands í gær. Mótmæli hafa farið fram víð...