Það er mjög vinsælt á haustin að halda sýningar þar sem bændum, búaliði og öðrum áhugasömum er boðið að koma og kynna sér íslensku sauðkindina og hvað hún hefur fram að færa, til dæmis í fjölbreyttu litaúrvali. Ein af þessum sýningum var haldin nýlega á bænum Árbæjarhjáleigu II í Holtum í Rangárþingi ytra á vegum Fjárræktarfélagsins Lits. Fjöldi fólks mætti á sýninguna og hafði gaman af.
„Já, þetta er óvenju gaman að sjá svona marga mæta og mikið af fé, fallegu fé,” segir Guðlaugur Hallur Kristmundsson, formaður Fjárræktarfélagsins Lits.
Vignir Siggeirsson var annar af dómurum sýningarinnar.
„Við erum að leita að góðri gerð og fallegum lit. Liturinn gildir 50 prósent. Þetta er glæsileg sýning, hún er alltaf að magnast ár frá ári,” segir Vignir.
Hvernig líst þér á stöðu sauðfjárræktarinnar?
„Þetta er allt upp á við, allt upp á við,” bætir Vignir við.
Kristinn Guðnason var kynnir sýningarinnar. Hann þekkir vel til sauðfjárræktarinnar enda hefur hann stundað hana í fjölda ára. Hvernig líst honum á stöðu sauðfjárræktarinnar?
„Aldrei betri Magnús. Ég er búin að vera í sauðfjárbúskap í eitthvað rúmlega 60 ár og það er í fyrsta sinn í tvö eða þrjú ár sem ég er ekki að framleiða á yfirfullan markað. Nú er eftirspurn og við seljum allt, sem er náttúrulega búið að há okkur alltof lengi, offramboð er ómögulegt á öllum vörum.
Þannig að þú ert alsæll sauðfjárbóndi? Já, já,” sagði Kristinn kátur.
Og litfegursta lambið sem áhorfendur kusu var lamb númer átta, sem er frá Árbæjarhjáleigu.