Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
Verkir eru algengasta ástæða þess að fólk leitar til heilbrigðisþjónustunnar. Grundvallarmunur er á hvernig verkir eru meðhöndlaðir eftir gerð. Það eru þó ýmsar bjargir sem fólk hefur hér á landi til að fá meðferð við verkjum og til sjálfshjálpar.
Sigríður Zoëga, sérfræðingur í hjúkrun, dósent við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og deildarstjóri Verkjamiðstöðvar Landspítala, segir verki oft flókið fyrirbæri en þá má flokka í bráða og langvinna.
Sigríður segir langvinna verki skerða lífsgæði fólks verulega, hamli félagslegum samskiptum og séu algeng orsök örorku og atvinnuskerðingar. Þá eru tölur yfir einstaklinga með langvinna verki háar á Íslandi og á norðlægum slóðum.
Septembermánuður er tileinkaður vitundarvakningu um verki og verkjastjórnun.
Stundum er orsökin ekki þekkt
Hvers vegna myndast verkur eða sársauki? „Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því og í sjálfu sér er verkur viðbrögð líkamans til að vara okkur við að það sé hugsanlega eitthvað að. Þannig að þegar við fáum boð frá viðtökum í húð og líffærum um að eitthvað kunni að vera að, þá berast þau til miðtaugakerfisins (heila og mænu) þar sem þau eruð flokkuð og túlkuð sem verkir.“
