„Það kom stórt skarð í hjarta Kraftbíla og starfsmanna fyrirtækisins um helgina,“ skrifa forsvarsmenn fyrirtækisins Kraftbíla á Akureyri í færslu á Facebook en fyrirtækið þjónustar vörubíla, vinnuvélar og búvélar.
„[Þ]að mun taka okkur tíma að finna styrkinn okkar aftur og halda áfram, en saman getum við það með hjálp og góðum hugsunum. Því biðjum við um að okkur verði sýnd þolinmæði meðan við öll á Kraftbílum, starfsmenn og fjölskyldur finnum styrkinn okkar á ný.“
Maðurinn, sem var fjölskyldufaðir búsettur á Akureyri, lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa, að sögn lögreglu.
Björgunarsveitarmenn fluttu samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti því áfallahjálp. Að sögn varðstjóra lögreglu er ekki að vænta frekari upplýsinga um málið í dag.