Mark Carney, forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í yfirlýsingu í dag. Hann hefur gefið út að flaggað verði í hálfa stöng um allt land vegna harmleiksins.
Viðbragðsaðilar hafa náð tökum á eldinum en eru enn á vettvangi.
Kanadíska ríkissjónvarpið, CBC, greinir frá því að eldur hafi kviknað við æfingu í herstöðinni í Wainwright, sem er í Alberta-ríki í Kanada. Úkall hafi borist um klukkan 16 að staðartíma, eða um 22 að íslenskum tíma.
Yfirleitt eru um sjö hundruð hermenn og þrjú hundruð borgarar við vinnu í herstöðinni að sögn CBC.
Ekkert bendir til þess að um hryðjuverk sé að ræða, að sögn varnamálaráðuneytis Kanada. Rannsókn á eldsupptökunum stendur enn yfir.
Carney sagði að ráðamenn myndu veita frekari upplýsingar um atvikið síðar í dag.