Stundum jafnvel þannig að það að afþakka boð sem okkur langaði ekki í gat hljómað eins og flókið sakamál.
„Sko, málið er að amma mannsins míns er að passa köttinn hjá frænku sinni sem er með flensu og við erum nýbúin að mála forstofuna svo við eigum engar buxur...“
Allt útskýrt og upptalið í hálfgerðu panikki. Svo enginn héldi að maður væri dóni, erfiður eða – guð forði okkur frá því – ófeiminn við að segja nei.
50+ föttum við síðan oft:
Bíddu, ég er ekkert að útskýra mig lengur…
Hvað gerðist?
Svarið er þetta:
Leiksýningunni er lokið
Í félagsfræði og sálfræði er talað um hugtakið Impression Management — hið daglega leikhús þar sem við stýrum ímynd okkar og hegðun til að tryggja að öðrum lítist vel á okkur. Þetta er orkukrefjandi fullt starf sem enginn borgar manni fyrir.
Þegar maður fer yfir fimmtugt kemur í ljós að leiksýningunni er einfaldlega sjálfhætt.
Dæmi:
Viltu koma á fimmtudaginn?
Svarið okkar: Nei.
Af hverju ekki? Svarið okkar: Bara ekki.
Í dag finnst okkur ekkert mál að yfirgefa boð snemma og segja einfaldlega: Nei, ég er bara orðin þreytt/ur. Áður hefði útskýringin verið mun lengri og flóknari. Jafnvel setið í okkur sjálfum í nokkra daga á eftir. Okkur er einfaldlega hætt að líða eins og okkur beri einhver skylda til að halda langa varnarræðu.
Enda staðreyndin þessi:
Ef einhver móðgast við eðlileg mörk þá er það verkefni fyrir þeirra sálfræðing, ekki okkar.
Samkvæmt rannsóknum breytist forgangsröðunin okkar eftir því sem við eldumst og þroskumst. Við hættum að sóa tíma í óþarfa skyldurækni og einblínum á innihaldsríka líðan í núinu.
Enda frekar léleg fjárfesting að eyða dýrmætri orku í að biðjast afsökunar.
Þá sýna rannsóknir að tilfinningalegt sjálfstæði, jafnvægi og getan til að setja mörk ná oft hámarki upp úr fimmtugu.
Meðvirknivöðvinn fékk einfaldlega krampa og gafst upp.
Eitt það geggjaða við 50+ aldurinn er einmitt þetta frelsi sem felst í því að vera hættur að biðjast afsökunar á því að vera maður sjálfur.
„Nei, takk“ er nefnilega ekki bara kurteis setning. Eftir fimmtugt er hún heill lífsstíll.