Ekki er sama eftirlit með börnum í bráðavistun og öðrum börnum í fósturkerfinu. Félag fósturforeldra segir dæmi um að börn séu í mörg ár í bráðavistun, þrátt fyrir að í barnaverndarlögum segi að bráðavistun megi vara í að hámarki þrjá mánuði.
Börn í bráðavistun eru yfirleitt í vistun á heimilum sem hafa ekki leyfi Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.
Af þeim sökum er ekkert eftirlit og fósturforeldrarnir njóta ekki sama stuðnings og aðrir.
Barnavernd á að sinna eftirliti með börnum í fóstri
Skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um fósturheimili kom út í sumar.
Úttektin sem skýrslan byggir á var gerð eftir umfjöllun Kveiks um Bakkakotsmálið, þar sem kom í ljós að drengir sem dvöldu þar voru beittir ofbeldi af hálfu fósturforeldris.
Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að 46% fósturheimila hafi ekki tilskilin leyfi og að eftirlitsheimsóknum barnaverndar sé ábótavant.
Gripið er til bráðavistunar þegar skyndilega þarf að tryggja öryggi barns á meðan fundin er framtíðarlausn, til dæmis við skyndilegt andlát foreldra. Börn sem eru bráðavistuð eru hluti af fósturkerfinu og úrræðið á, samkvæmt 84. grein barnaverndarlaga, að vera að hámarki í þrjá mánuði.
Félag fósturforeldra hefur skilað inn athugasemdum við skýrsluna og telur ljóst að börn séu í bráðavistun í mörg ár og njóti ekki eftirlits barnaverndar á þeim tíma.
Af hverju er ekkert eftirlit með bráðavistun?
Eitt af hlutverkum barnaverndar er að tryggja að þau sem fá börn til sín í bráðavistun fái fræðslu innan 7 daga um að nauðsynlegt sé að sækja um leyfi til tímabundins eða varanlegs fósturs.
Í skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála kemur fram að mjög víða sé misbrestur á að barnaverndir sinni því hlutverki.
Af þeim sökum eru dæmi um að börn séu í bráðavistun mun lengur en lög heimila. Og þar sem ekki liggur fyrir tímabundið eða varanlegt fóstur sinna barnaverndir ekki eftirliti með börnunum og heimilunum sem þau eru bráðavistuð á.
Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, segir það ljóst að börn í bráðavistun séu undanskilin þessu eftirliti.
„Og þetta er eitthvað sem þarf að laga og það þarf að fara að halda betur utan um þessi börn því við vitum ekki hversu mörg börn þetta eru.“
Guðlaugur segir að ekki sé vitað um fjölda barna í bráðavistun því barnaverndir halda ekki utan um fjölda þeirra sem hafa börn hjá sér í bráðavistun.
Vilja frekar að börn séu í bráðavistun á stofnun en hjá ættingjum
Algengast er að börn séu bráðavistuð hjá nánum ættingjum. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála leggur hins vegar til að frá og með janúar 2027 séu börn frekar vistuð í úrræðum á vegum sveitarfélaga sem hafi sótt um leyfi til bráðavistunar.
Félag fósturforeldra gagnrýnir þessi tilmæli og segir það alltaf börnum fyrir bestu að vera bráðavistuð hjá fólki sem þau þekkja og hafa tengsl við.
„Við svona veltum því fyrir okkur hvort gæðastofnun velferðarmála sé að leggja það til að í hverri einustu fjölskyldu sé einhver útvalinn sem ætlar að hafa þetta bráðavistunarleyfi?“
Að bráðavista börn í úrræði á vegum sveitarfélags tryggi auk þess ekki betra eftirlit með högum þeirra, segir Guðlaugur.
Ráðherra vill endurskoða málaflokkinn frá grunni
Í athugasemdum Félags fósturforeldra um skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunarinnar segir að skýrslan svari ekki þeim spurningum sem ríkisstjórnin hafi viljað svör við, og samfélagið hafi kallað eftir.
„Bakkakotsmálið snerist um það að tryggja og vita, er annað Bakkakotsmál í gangi og koma í veg fyrir að annað Bakkakotsmál verði.“
Guðlaugur nefnir dæmi úr skýrslunni þar sem segir að stofnunin hafi, í samtali við ungmenni í fóstri, séð að nauðsynlegt væri að kanna aðstæður barnsins betur. En, sökum þess að fósturheimili barnsins hafi ekki verið með leyfi frá stofnuninni, hafi verið ákveðið að skoða málið ekki frekar.
„Skýrslan segir: það er annað mál þarna úti og skýrslan segir líka við ætlum ekki að skoða það.“
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að unnið sé að því að finna málefnum fósturbarna betri farveg og tryggja öflugra eftirlit.
„Það þarf að endurskoða þennan málaflokk frá grunni og tryggja að börn sem fara í fóstur njóti auðvitað sammælis og það sé gott og virkt eftirlit,“ segir Ragnar Þór.
Hann segir ríkisstjórnina vinna að því hörðum höndum að reyna að koma í veg fyrir að mál, eins og Bakkakotsmálið, geti komið upp aftur.
Ábyrgð á málefnum fósturbarna dreifð um kerfið
Enginn veit hve mörg börn eru í bráðavistun enda er ábyrgð á málefnum fósturbarna dreifð. Í skýrslunni kemur fram að stofnunin hafi vitneskju um að í þónokkrum tilfellum hafi barnaverndarþjónustur vistað börn á einkaheimilum til lengri tíma og jafnvel fjölda ára.
Félag fósturforeldra hefur lengi gagnrýnt samskiptaleysi sveitarfélaga og ríkisins í málaflokknum.
Sveitarfélög bera ábyrgð á barnaverndarþjónustum, sem svo gera fóstursamninga og bera ábyrgð á að eftirliti sé sinnt.
Barna- og fjölskyldustofa heyrir undir mennta- og barnamálaráðuneyti. Hún sinnir fræðslu til fósturforeldra og heldur námskeið sem eru ætluð þeim.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála heyrir svo undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Hún hefur eftirlit með barnaverndarþjónustum og gefur út rekstrarleyfi til fósturforeldra.