Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, gekk með mótmælendum í Angers í Frakklandi laugardaginn 17. október. Í færslu af Facebook-síðu hennar, eins og hún sést á skjáskotum sem deilt var á X, lýsir hún stuðningi við kröfur námsmanna og segir lögreglu hafa tekið afar hart á mótmælendum.
Hún fordæmir jafnframt skemmdarvarga og skrifar: „Ólátaseggirnir og skemmdarvargar hafa sett svartan blett á mótmæli stúdenta sem almenningur stendur með.“

Styður kröfur námsmanna
„Það sem byrjaði sem stúdentamótmæli fyrir um þremur vikum – og er enn að mestu leyti – hefur breiðst út og orðið að almennari mótmælum,“ skrifar Rósa. Hún segir námsmenn krefjast betri aðstöðu í skólum og búa við of hátt leiguverð og þröngan kost á stúdentagörðum, „en námsmenn í Frakklandi eru líka að mótmæla of háu verðlagi, getuleysi franskra stjórnvalda til að koma í veg fyrir þjóðarmorðið á Gaza, krefjast afdráttarlausari aðgerða gegn loftslagsbreytingum sem þau segja réttilega að snúist um sína framtíð.“
„Þau eru líka að mótmæla uppgangi öfgahægrisins og Marine Le Pen og Jordan Bardella, forystufólki RN öfgahægriflokknum,“ skrifar hún. Aðra mótmælendur segir hún einkum hafa mótmælt of háum lifikostnaði og því sem hún kallar Macronisma, sem hún segir orðinn afar óvinsælan.
Á myndum sem fylgja færslunni sjást meðal annars palestínskur fáni og fáni með merki antifasista.

Segir fámennan hóp hafa unnið skemmdarverk
Í viðtali við RÚV í dag, gerði Rósa skýran greinarmun á göngufólki og þeirra sem unnu skemmdarverk.
„Ég varð vitni að því að það var verið að brjóta strætóskýli og sömuleiðis brotist inn í hluta ráðhússins hér í Angers, en það var nú bara mjög fámennur hópur og restin af þeim sem voru að ganga kom ekki nærri því,“ sagði hún í samtali við RÚV.
Við mbl.is sagði Rósa að skemmdarverkin hefðu skaðað málstað mótmælenda: „Þetta eyðileggur mjög mikið fyrir þeirra málstað.“ Hún sagði jafnframt: „Það var sjokkerandi að sjá þetta, vera vitni að því og upplifa táragasið.“

Samkvæmt Ouest-France tóku um 10.000 manns þátt í Angers, sjö lögreglumenn slösuðust og ráðhúsið var skemmt. Héraðsstjórinn fordæmdi skemmdarverkin sem óásættanleg.
Fann fyrir táragasi
Í Facebook-færslunni lýsir Rósa framgöngu lögreglu með þessum orðum: „En lögreglan hefur tekið afar hart á mótmælendum, brotið hendur og beitt ofbeldi og táragasi.“
„Ég gekk með mótmælunum yfir daginn og þetta virkaði svona friðsamlegt en mikil spenna í loftinu, maður fann verulega fyrir því,“ sagði Rósa í samtali við RÚV. Hún sagði lögreglu síðan hafa kastað táragasi á mannfjöldann: „mér sýndist það nú ekki hafa verið ástæða fyrir því, mér fannst það vera harkalegt af hálfu lögreglunnar og við fundum meira að segja fyrir því, ég og fólkið í kringum mig, fundum fyrir þessu táragasi og það sveið í augun.“
Í myndbandi hennar frá vettvangi, sem deilt var á X, stendur á skjánum: „Lögreglan kastaði hér táragasi að unga fólkinu og okkur sem gengum með þeim“.

Mótmæli víða um Frakkland
Nútíminn greindi frá upphafi mótmælanna 2. október. Þau hófust 21. september við Saint-Exupéry-framhaldsskólann í Créteil vegna kennaraskorts, yfirfullra bekkja og lélegs skólahúsnæðis. Nútíminn hefur einnig fjallað um hvernig mótmæli hafa breiðst út víðar í Evrópu.
Shellenberger sakar fjölmiðla um að segja ranga sögu af óeirðunum í Frakklandi
Samkvæmt AFP-frétt í Heimildinni taldi innanríkisráðuneytið 550.000 hafa mótmælt á laugardag en CGT 800.000. RÚV hefur eftir innanríkisráðherra að um 1.800 hafi verið handtekin. AFP greinir einnig frá því að ráðhúsið í Limoges, sem var meira en 140 ára gamalt, hafi að mestu eyðilagst í eldi sem grímuklæddir mótmælendur kveiktu og verslanir hafi verið rændar í fjölda borga.
„Það er ljóst að þessi mótmælaalda á eftir að hafa mikil áhrif á pólitískt landslag aðeins hálfu ári fyrir forsetakosningar í Frakklandi,“ skrifar Rósa, sem hefur verið búsett í París og starfaði hjá France 24 árin 2007-2008. Hún var kjörin formaður VG 8. mars, en sagði sig úr flokknum 2020 vegna brottvísunar egypskrar barnafjölskyldu og sneri aftur 2024.