Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur

Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur

Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur

Fréttabréf SFS – Loðna, lax og kúlufiskur

FréttinFréttatilkynning, InnlentLeave a Comment

Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er undir væntingum. Hún er ríflega 105 þúsund tonn. Skiptingin er þannig að Ísland fær 85.676 tonn, Grænland 19.039 tonn og Noregur 1.058 tonn. Ef Noregur gengur ekki inn í loðnusamkomulagið fyrir áramót, skiptist kvóti Noregs milli Íslands og Grænlands.  Tvíhliða samningur Íslands og Færeyja rann út í júlílok og fer því engin loðna til Færeyinga.

Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðast liðnum sem reyndust töluvert undir væntingum. Vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki yfir allt útbreiðslusvæði stofnsins og því má gera ráð fyrir að stærð hans sé vanmetin.

Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er undir væntingum. Hún er ríflega 105 þúsund tonn. Skiptingin er þannig að Ísland fær 85.676 tonn, Grænland 19.039 tonn og Noregur 1.058 tonn. Ef Noregur gengur ekki inn í loðnusamkomulagið fyrir áramót, skiptist kvóti Noregs milli Íslands og Grænlands.  Tvíhliða samningur Íslands og Færeyja rann út í júlílok og fer því engin loðna til Færeyinga.

Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðast liðnum sem reyndust töluvert undir væntingum. Vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki yfir allt útbreiðslusvæði stofnsins og því má gera ráð fyrir að stærð hans sé vanmetin.

Meirihluti norska Stórþingsins styður að sérstakt kolefnisgjald á fiskiskipaflotann verði afnumið. Bráðabirgðaundanþága hafði verið veitt fyrr á árinu, en nú er stefnt að varanlegri lausn í tengslum við fjárlög. Áætlað hefur verið að tekjuáhrif af fullu afnámi geti numið um 13 milljörðum íslenskra króna. Norsk útgerð telur gjaldið hafa veikt samkeppnisstöðu flotans og hvatt skip til að kaupa eldsneyti utan Noregs.

Línuívilnun í þorski var felld niður frá og með 9. október. Alls hafði 300 tonnum verið ráðstafað til línuívilnunar á fiskveiðiárinu, en úthlutuninni var skipt niður á nokkur tímabil. Stjórnarandstaðan segir niðurfellinguna ganga gegn fyrra samkomulagi um breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra heimsótti starfsemi Grupeixe, fyrirtækis Vinnslustöðvarinnar í Portúgal. Þar kynnti hún sér stöðu íslensks saltfisks á einum mikilvægasta saltfiskmarkaði heims. VSV hefur á undanförnum árum fært sig nær portúgölskum neytendum með fjárfestingum í vinnslu, sölu og dreifingu í landinu. Íslenskur saltfiskur heldur þar sterkri stöðu og er meðal annars órjúfanlegur hluti af jólamat Portúgala.

Vinnslustöðin kynnti líka saltfiskafurðir sínar á Conxemar-sjávarútvegssýningunni í Vigo á Spáni í gegnum portúgölsku fyrirtækin Grupeixe og ESBAL. Sýningin er mikilvægur vettvangur fyrir framleiðendur og kaupendur sjávarafurða frá öllum heimshornum. Þátttakan styður þá stefnu VSV að færa sig nær erlendum mörkuðum og viðskiptavinum. Fulltrúar fyrirtækjanna sögðust ánægðir með viðtökurnar og árangur sýningarinnar.

Þorskur er í stóru hlutverki á WEFTA-ráðstefnunni, sem hófst í gær og stendur til loka vikunnar. Þar koma saman sérfræðingar í sjávarútvegi, matvælafræði og vinnslu sjávarafurða. Mikill áhugi er á rannsóknum sem geta aukið gæði, nýtingu og verðmæti þorsks. Slíkt rannsóknarsamstarf getur skilað nýjum afurðum og bættri meðferð hráefnisins frá veiðum til neytenda. Sterk staða þorsksins sýnir jafnframt hversu mikilvægt hráefnið er enn fyrir nýsköpun í sjávarútvegi.

Útflutningsverðmæti eldisafurða námu 6,2 milljörðum króna í september. Það er um 67% aukning á föstu gengi frá sama mánuði í fyrra. Verðmætin eru þar með komin í tæpan 51 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Vægi eldisafurða í verðmæti alls vöruútflutnings nam um 7% á fyrstu níu mánuðum ársins og hefur aldrei verið meira á þessum hluta árs. Á fyrstu átta mánuðum ársins störfuðu að jafnaði rúmlega eitt þúsund manns við fiskeldi, sem er um 8% fjölgun frá sama tímabili í fyrra. Rúm 84% starfsfólks í greininni bjuggu utan höfuðborgarsvæðisins og þar var fjölgunin heldur meiri, eða rúm 9%. Nánar má lesa um þetta í Radarnum.

Íslensk laxeldisfyrirtæki hafa viðrað óformlega á milli sín að fyrr eða síðar þurfi þau að snúa bökum saman og skoða hvernig best sé að huga að markaðsstarfifyrir greinina alla. Þetta kemur fram í viðtali Morgunblaðsins við Einar Örn Ólafsson, forstjóra First Water. „Mér finnst mjög líklegt að eldisfyrirtækin ráðist í sameiginlegt markaðsstarf enda hæpið að neytandinn muni gera nokkurn greinarmun á íslenskum laxi eftir því hvaða eldisstöð hann kemur frá,“ segir Einar. Norsk fyrirtæki hafa lengi verið sameinuð í markaðsstarfi og náð þannig góðum árangri. Sérstaklega eru tækifæri í Asíu, þar sem neytendur leggja mikla áherslu á ferskleika, rekjanleika og áreiðanlegar afhendingar. Árangur Laxeyjar sýnir hvernig hægt er að tengja vöruna við íslenska náttúru og samfélagið þar sem hún verður til.

Laxey í Vestmannaeyjum horfir nú til Kína sem framtíðarmarkaðar fyrir landeldislax sinn. Kínverski áhrifavaldurinn Qin Weiqin, sem er þekkt sem Salmon Queen, heimsótti fyrirtækið og kynnti laxinn og Vestmannaeyjar í beinu streymi fyrir fylgjendum sínum. Fyrirhugað vikulegt fraktflug milli Íslands og Kína gæti gert kleift að koma ferskum laxi hratt á kínverskan markað. Fyrirtækið leggur áherslu á að uppruni vörunnar, samfélagið og náttúran í Vestmannaeyjum verði hluti af markaðssögunni.

Í síðasta fréttabréfi sögðum við ykkur frá því að útlit væri fyrir að á næsta ári færi að hægja á vexti í laxeldi. Það er þó enn mikill vöxtur og Norðmenn settu met í september. Þeir fluttu út 165.393 tonn af laxi, 22% meira en í sama mánuði í fyrra. Útflutningsverðmætið jókst um 15% og bæði magn og verðmæti settu mánaðarmet. Norska sjávarútvegsráðið segir góð líffræðileg skilyrði, mikla lifun og hraðan vöxt hafa skilað miklu magni af stórum og góðum fiski.

Landeldi í Noregi hefur líka vaxið gríðarlega síðustu misseri. Salmon Evolution segir uppbyggingu annars áfanga landeldisstöðvar sinnar í Indre Harøy ganga samkvæmt áætlun. Þegar fjórir nýir tankar verða teknir í notkun mun framleiðslugetan aukast úr 7.900 tonnum í 18 þúsund tonn. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að framleiðslan meira en tvöfaldist á næstu tólf mánuðum.

Lagarlíf heppnaðist sérlega vel og þar voru skattamál sérstaklega til umræðu. Það er ekki vænlegt fyrir vöxt greinar þegar það þarf að fresta fjárfestingum. Þetta var rætt á Lagarlífi með Øystein Haram hjá ScaleAQ, Dag Sletmo, Árna Mathiesen og okkar manni Sigurgeir Bárðarsyni. Hægt er að hlusta hér.

Nýjar mælingar frá Bresku-Kólumbíu benda til þess að lokun laxeldisstöðva á ákveðnum svæðum hafi ekki fækkað laxalús á villtum laxaseiðum. Eldi var fjarlægt úr Discovery Islands árið 2022 og síðar úr Broughton Archipelago, en tíðni og fjöldi lúsa hefur ekki minnkað. Af 508 villtum seiðum sem voru rannsökuð reyndust 182, eða tæp 36%, bera lús. Niðurstöðurnar benda til náttúrulegs breytileika og sýna að samband laxeldis og lúsasmits er flóknara en oft hefur verið haldið fram.

Bandarískir styrktaraðilar standa að stórum hluta á bak við auglýsingaherferðgegn skosku laxeldi í Lundúnum. Herferðin kostar allt að um 72 milljónir íslenskra króna og birtist á rúmlega 500 auglýsingaflötum á 206 neðanjarðarlestarstöðvum auk 4.500 auglýsinga í lestum. Aðstandendur hennar vilja að Marks & Spencer hætti sölu á eldislaxi. Salmon Scotland segir herferðina draga upp ranga mynd af greininni og bendir á að skoskt laxeldi skapi um 11 þúsund störf í Bretlandi.

Skotar hafa snúið vörn í sókn. Hópur sex þekktra breskra matreiðslumannaheimsótti starfsemi Mowi í Skotlandi til að fylgja laxinum frá hrogni að diski. Ferðin hófst í endurnýtingarstöð fyrirtækisins í Inchmore og hélt áfram í sjókvíaeldi við Scalpay, þar sem kokkarnir fylgdust með heilbrigðisskoðun fisks. Að lokum heimsótti hópurinn reykhús á Skye og smakkaði mismunandi afurðir úr laxinum.

SEADEEP-verkefnið, sem kynnt var í síðustu viku, sameinar 30 samstarfsaðila frá 11 löndum. Prófa á 16 stafrænar og orkusparandi lausnir á níu stöðum í Norður- og Eystrasalti, meðal annars í landeldi, þörungarækt og smábátaútgerð. Markmiðið er bæði að draga úr orkunotkun og losun og hraða innleiðingu stafrænnar tækni í sjávarútvegi og fiskeldi.

Margar strandbyggðir í Skotlandi hafa átt undir högg að sækja síðustu ár. Skosk stjórnvöld hafa nú ákveðið að leggja 2,5 milljarða króna í uppbyggingu. Alls fá 99 sjávarútvegs- og fiskeldisverkefni í Skotlandi styrk. Þau eiga að skapa eða tryggja um 122 störf í strand- og eyjasamfélögum. Meðal þess sem verður fjármagnað eru rannsóknir á fiskistofnum, öryggisþjálfun sjómanna og tilraunir með sparneytnari og umhverfisvænni veiðarfæri.

Evrópsk þróunarverkefni vinna nú að því að breyta úrgangi frá fiskeldi í nýtanleg hráefni. Kræklingaskeljar og botnset eru meðal annars notuð í hellur og brimvarnargarða, gamalt plast úr kræklingarækt er endurunnið í ný net og fiskúrgangur nýttur til framleiðslu á lýsi og próteini. Einnig er verið að þróa leiðir til að breyta seyru úr sjókvíaeldi í áburð, lífgas, fóðurhráefni og örþörunga. Markmiðið er að gera úrgang að tekjulind og draga um leið úr umhverfisáhrifum greinarinnar.

Veiðiheimildir fyrir nokkrar tegundir krabba í Alaska hafa verið ákveðnar fyrir vertíðina 2026–27. Stofnar snjókrabba og rauðs kóngakrabba eru enn langt undir sögulegum stærðum, en atvinnugreinin telur tölurnar benda til hægfara endurreisnar. Tanner-krabbi stendur betur og þar verður hægt að auka veiðar nokkuð.

Útflutningsverðmæti víetnamskra sjávarafurða jókst um 11,4% fyrstu níu mánuði ársins. Rækjuútflutningur jókst um 11%, pangasius um 10,7% og útflutningur smokkfisks og kolkrabba um 15,4%. Kína og Hong Kong skera sig sérstaklega úr en sala þangað hefur aukist um 33% frá fyrra ári.

Rækjueldi í Ekvador heldur áfram að vaxa um meira en 10% á ári og sérfræðingar telja að framleiðslan geti tvöfaldast með betri erfðatækni og eldiskerfum. Landið er þegar stærsti útflytjandi eldisrækju í heiminum. Næsta verkefni er að finna fleiri markaði svo greinin verði ekki jafn háð sölu til Kína. Fulltrúi útflutningsráðs landsins líkir uppganginum við nýtt gullæði.

Rétt til að minna ykkur á að Sjávarútvegsráðstefnan verður haldin í Hörpu 5. og 6. nóvember. Þar verður fjallað um helstu tækifæri og áskoranir íslensks sjávarútvegs og fiskeldis í fjölmörgum málstofum. Markmiðið er að miðla þekkingu, vekja til umhugsunar og stuðla að hugmyndum, lausnum og samstarfi hagaðila.

Drift EA hefur valið fyrirtækin þrjú fyrirtæki til áframhaldandi stuðnings í Hlunninum. Drift EA hefur nú fjárfest í níu norðlenskum nýsköpunarfyrirtækjum síðan félagið var stofnað árið 2024, auk þess sem sex önnur verkefni hafa fengið vinnuaðstöðu, ráðgjöf og stuðning hjá félaginu. Fyrirtækin sem bætast nú í hópinn eru Terramar tæknifyrirtæki á Akureyri sem þróar endurnýtingarbúnað fyrir vatn í landeldisstöðvum, Haflind sem vinnur að þróun aðferða til að framleiða lyktar- og bragðlaust lýsi með það að markmiði að auka neyslu á lýsi almennt og Vaxandi byggð sem þróar samfélagsmiðað þorp á Hesjuvöllum (ofan Akureyrar) með áherslu á sjálfbærni, fjölbreytt húsnæði og sterk tengsl milli íbúa.

Kúlufiskurinn eða fugu er ekki mjög girnilegur, enda frægastur fyrir banvænt eitur, sem er ekki það helsta sem fólk sækist eftir. Útflutningssamtök í japönsku borginni Shimonoseki hafa hafið sérstakt átak til að kynna fiskinn fyrir neytendum utan Japans. Samtökin leggja áherslu á að hann sé öruggur þegar rétt er staðið að vinnslu. Fugu er gjarnan borðaður við hátíðleg tækifæri og nú er reynt að koma honum inn á sushi-staði og ítalska veitingastaði og jafnvel rætt um kúlufiskeldi.

Í sérstökum sakamálum förum við til New Jersey í Bandaríkjunum. Þar
stöðvaði lögrelgan átján ára pilt sem grunaður er um að hafa reynt að stela heilum farmi af frystu sjávarfangi. Farmurinn var metinn á um 35 milljónir ÍSK. Lögreglumenn komu að þegar verið var að færa vörurnar yfir í annan vörubíl og endurheimtu farminn.

Við vonum að sjálfsögðu að þið séuð dugleg að nýta ykkur uppskrift vikunnar. Það gæti þó verið erfitt núna. Við bjóðum upp á japanska uppskrift að djúpsteiktum kúlufiski. Það er kannski í það flóknasta en það má að sjálfsögðu nota annan hvítan fisk, til dæmis þorskhnakka, löngu, keilu eða steinbít.

400 g kúlufiskflökum sem hafa verið hreinsuð af löggiltum sérfræðingi.
2 msk. sojasósa
2 msk. sake eða þurrt sérrí
½ tsk. salt
1 tsk. rifnu engiferi
Kartöflumjöl eftir þörfum
Olía til djúpsteikingar
Sítróna og ponzu-sósa til að bera fram með

Skerið fiskinn í hæfilega bita. Blandið saman sojasósu, sake, salti og engifer og látið fiskinn liggja í leginum í um 15 mínútur. Þerrið bitana lítillega og veltið þeim upp úr kartöflumjöli. Hitið olíuna í 180 gráður og steikið fiskinn í þrjár til fjórar mínútur, þar til hjúpurinn er stökkur og fiskurinn fulleldaður. Látið renna af honum á eldhúspappír og berið fram strax með sítrónu og ponzu-sósu.

Verði ykkur að góðu!

#fréttabréf #kúlufiskur #lax #loðna #sfs


Upprunaleg slóð:
https://frettin.is/2026/10/18/frettabref-sfs-lodna-lax-og-kulufiskur/

📰 Aðrar fréttir

Umhverfisvænna að sleppa ó­þarfa kurteisi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Umhverfisvænna að sleppa ó­þarfa kurteisi - Vísir
Það er oft sagt að kurteisi kosti ekki neitt, en stundum á þessi fallega fullyrðing ekki alveg við og þannig er það í tilfelli gervigreindar. Þegar fy...
Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Ís­landi - Vísir
Í frétt grænlenska fréttamiðilsins KNR segir að öllu starfsfólki Hótels Kulusuk hafi verið sagt upp. Án viðskiptavina frá Íslandi sé ekki lengur hægt ...
Brynjar Níelsson: Óeirðirnar í Frakklandi ekki nemendamótmæli heldur ofstækisfullir vinstri menn með gyðingaandúð
📅 18.10.2026 👁️ 0
Brynjar Níelsson: Óeirðirnar í Frakklandi ekki nemendamótmæli heldur ofstækisfullir vinstri menn með gyðingaandúð
Óeirðir með miklu ofbeldi og eignaspjöllum hafa gengið yfir stærstu borgir Frakklands eftir að mótmæli vegna aðstæðna í skólum og hækkandi framfærsluk...
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið - Vísir
Á föstudaginn undirritaði Donald Trump Bandaríkjaforseti forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvinga...
Segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir stórbruna í herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 0
Segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir stórbruna í herstöð
Mark Carney forsætisráðherra Kanada segir alla kanadísku þjóðina syrgja eftir að fjórir hermenn létust og tugir slösuðust alvarlega eftir stórbruna se...
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu
Gul viðvörun er í gildi um allt land og hafa björgunarsveitir á Ölfussvæðinu sinnt þó nokkrum útköllum vegna yfirvofandi þaktjóns. Sinna þurfti ýmsum ...
Chicago's battle against the synthetic drugs flooding the US
📅 18.10.2026 👁️ 0
Chicago's battle against the synthetic drugs flooding the US
A new wave of synthetic drugs is sweeping across the United States, raising fear of a worsening drug crisis. The BBC's Quentin Sommerville reports fro...
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni
📅 18.10.2026 👁️ 1
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni
Kallað eftir svörum frá formanni Viðskiptaráðs og lífeyrissjóðum vegna rannsóknar á Ölgerðinni Fréttin18. október 2026InnlentLeave a Comment Rannsókn ...
Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði
📅 18.10.2026 👁️ 2
Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði
Vítissódinn og vigtin í Hvalfirði Fréttin18. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á flestum bryggj...
Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðar­línuna - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðar­línuna - Vísir
Einn innhringjanda til Neyðarlínu lá sjálfur á þakplötu sem hafði losnað til að forða því að hún ylli tjóni, að því er fram kemur í tilkynningu slysav...
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn
📅 18.10.2026 👁️ 3
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn
Kynami – þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Fréttin18. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: ...
Ekkert eftirlit með börnum í bráðavistun
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ekkert eftirlit með börnum í bráðavistun
Ekki er sama eftirlit með börnum í bráðavistun og öðrum börnum í fósturkerfinu. Félag fósturforeldra segir dæmi um að börn séu í mörg ár í bráðavistun...
50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að út­skýra okkur - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að út­skýra okkur - Vísir
Stundum jafnvel þannig að það að afþakka boð sem okkur langaði ekki í gat hljómað eins og flókið sakamál. „Sko, málið er að amma mannsins míns er að p...
Rússarnir ráða þessu öllu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Rússarnir ráða þessu öllu
Rússarnir ráða þessu öllu Fréttin18. október 2026Erlent, Jón MagnússonLeave a Comment Andy Burnham. Jón Magnússon skrifar: Burnham forsætisráðherra Br...
Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Tólf banaslys í ám eða vötnum á tíu árum
Samvinna björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu varð til þess að leit að manni sem féll í Stuðlagil í ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á botni...
Cindy Crawford 'beyond heartbroken' after death of son Presley at 27
📅 18.10.2026 👁️ 3
Cindy Crawford 'beyond heartbroken' after death of son Presley at 27
Presley Gerber's death in September is being investigated as a suspected overdose.
Gæsileg og vel sótt fjárlitasýning
📅 18.10.2026 👁️ 3
Gæsileg og vel sótt fjárlitasýning
Það er mjög vinsælt á haustin að halda sýningar þar sem bændum, búaliði og öðrum áhugasömum er boðið að koma og kynna sér íslensku sauðkindina og hvað...
Glæsileg og vel sótt fjárlitasýning
📅 18.10.2026 👁️ 0
Glæsileg og vel sótt fjárlitasýning
Það er mjög vinsælt á haustin að halda sýningar þar sem bændum, búaliði og öðrum áhugasömum er boðið að koma og kynna sér íslensku sauðkindina og hvað...
For­maður VG fékk tára­gas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
For­maður VG fékk tára­gas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ - Vísir
Rósa Björk hefur verið í Frakklandi undanfarna daga. Þegar blaðamaður ræddi við hana í kvöld beið hún spennt eftir því að Emmanuel Macron Frakklandsfo...
Bjartsýni um samstarf „kannski barnaskapur“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Bjartsýni um samstarf „kannski barnaskapur“
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni en hyggst sitja áfram á þingi sem þingmaður utan þingflokks.Hann sagði ástæðu úrsagnarinnar bæð...
Macron calls for calm in France and warns rioting must not escalate
📅 18.10.2026 👁️ 1
Macron calls for calm in France and warns rioting must not escalate
French President Emmanuel Macron gives a national address after widespread disorder and as some looting continued in Paris.
Nafn mannsins sem lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 18.10.2026 👁️ 3
Nafn mannsins sem lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Maðurinn sem lést í slysi á Gæsavatnaleið á föstudagskvöldið hét Arnþór Örlygsson, fæddur 16. júní 1979. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunn...
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur
📅 18.10.2026 👁️ 3
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur Mikil gróska er í mat­væla­gerð á Norð­ur­landi vestra. Það er engin til­viljun. Í Far­skól­anum á Sau...
Macron: „Hvað er í gangi í hausnum á þeim?“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Macron: „Hvað er í gangi í hausnum á þeim?“
Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði aðgerðir til að bregðast við óánægju mótmælenda í sjónvarpsávarpi sem hann hélt í kvöld. Hann gagnrýndi hins...
Hringvegur lokaður milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hringvegur lokaður milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs
Hringveginum hefur verið lokað milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs vegna hvassviðris og sandroks. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.i...
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið - Vísir
Lögreglan greinir frá þessu í færslu á Facebook. Hinn 47 ára fjölskyldufaðir lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld. Hann va...
Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ - Vísir
Fjölskyldufaðir á fimmtugsaldri lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls. Hann var í tíu manna hópi en um var að ræða jeppaferð á vegum starfsm...
„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“ - Vísir
Um mánaðamótin lýkur starfi tuttugu ára starfi félagasamtakanna Reiðhjólabænda. Samtökin hafa síðustu ár barist fyrir bættum hagsmunum hjólandi fólks,...
Canadian military base fire: Death toll confirmed and cause under investigation
📅 18.10.2026 👁️ 4
Canadian military base fire: Death toll confirmed and cause under investigation
At least four people are confirmed to have died after a huge fire swept through the base.
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum
📅 18.10.2026 👁️ 4
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum
Stúlkan var ein heima þegar bankað var harkalega á rúðu á neðri hæð hússins. Þegar hún opnaði dyrnar blöstu við þrír óeinkennisklæddir menn með grímur...
Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar
📅 18.10.2026 👁️ 4
Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar
Þann 6. október birti fyrirtækið OpenAI 722 handrit sem innihalda alls 372 stærðfræðilausnir. Áður hafði fyrirtækið sagt í september að gervigreind he...
Stefán leggur til breytingu á þjóðarréttinum – „Versta teik sem ég hef heyrt“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Stefán leggur til breytingu á þjóðarréttinum – „Versta teik sem ég hef heyrt“
Það er óhætt að segja að Stefán Pálsson sagnfræðingur, varaborgarfulltrúi og þjóðfélagsrýnir hafi vakið misjöfn viðbrögð með tillögu sinni um að Bæjar...
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi
📅 18.10.2026 👁️ 4
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi
„Samþykki gefur ekkert ótakmarkað leyfi til þess að gera hvað sem er og þurrkar ekki út mannréttindi fólks.“Þetta segir Guðný S. Bjarnadóttir, stjórna...
Fjórir her­menn létust í elds­voða - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Fjórir her­menn létust í elds­voða - Vísir
Mark Carney, forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í yfirlýsingu í dag. Hann hefur gefið út að flaggað verði í hálfa stöng um allt land vegna h...
Rósa Björk gekk með mótmælendum í Frakklandi og gagnrýnir framgöngu lögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 4
Rósa Björk gekk með mótmælendum í Frakklandi og gagnrýnir framgöngu lögreglu
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, gekk með mótmælendum í Angers í Frakklandi laugardaginn 17. október. Í færslu af Facebook-síðu he...
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka
Ef allt fer samkvæmt áætlun verður leiðangur Japönsku geimvísindastofnunarinnar JAXA sá fyrsti sem farinn verður fram og til baka en ferðir til Mars h...
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
📅 18.10.2026 👁️ 3
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherraEkki eru allir á sama máli um túlkun ...
Magnús Geir afar þakklátur eftir frumsýningu á sannsögulegu leikriti um hörmulegan atburð - Söguefnin voru viðstödd
📅 18.10.2026 👁️ 4
Magnús Geir afar þakklátur eftir frumsýningu á sannsögulegu leikriti um hörmulegan atburð - Söguefnin voru viðstödd
Miklar tilfinningar hafa bersýnilega bæst innra með Magnúsi Geir Þórðarsyni Þjóðleikhússtjóra eftir frumsýningu á föstudag á leikritinu Högg, sem hann...
Björn Jón skrifar: Eldræða við Akrópólis
📅 18.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Eldræða við Akrópólis
Mynd Sjónvarpsþátturinn Højskolen á TV2 í Danmörku nýtur mikilla vinsælda
Lokuðu rann­sókn á al­var­legu at­viki eftir fimm­tán mánaða bið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Lokuðu rann­sókn á al­var­legu at­viki eftir fimm­tán mánaða bið - Vísir
Þetta kemur fram í svörum Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, GEV, við fyrirspurn Vísis og gögnum sem stofnunin afhenti vegna málsins. Samkvæmt...
Injured man in his 20’s taken to hospital after street fight in Lanzarote
📅 18.10.2026 👁️ 4
Injured man in his 20’s taken to hospital after street fight in Lanzarote
A man in his early 20’s, was taken to hospital this morning (Sunday) after being injured during a street fight in Lanzarote.The incident was reported ...
16 kínversk skip rekin frá Taívan
📅 18.10.2026 👁️ 4
16 kínversk skip rekin frá Taívan
16 kínversk skip sáust í sameiginlegum aðgerðum undan ströndum Taívan í morgun. Strandgæslan þar segir þetta óvenju mikið og skipin hafi verið hrakin ...
Two men killed in motorcycle crash on TF-1 in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 4
Two men killed in motorcycle crash on TF-1 in south Tenerife
Two men aged 48 and 52 died after a motorcycle crash on the TF-1 in southern Tenerife in the early hours of this morning, Sunday.CECEOES 112 received ...
Hvort viltu franskar eða appelsínu með hamborgaranum?
📅 18.10.2026 👁️ 4
Hvort viltu franskar eða appelsínu með hamborgaranum?
Ótal fréttir hafa verið sagðar af mataræði, vísað í skýrslur og rannsóknir og ólíklegt að málið sé tæmt, ef það gerist þá nokkurn tíma.RÚV hefur staði...
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
📅 18.10.2026 👁️ 4
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki Verkir eru algeng­asta ástæða þess að fólk leitar til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Grund­vall­ar­munur ...
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar andmælir því að of mikið fari fyrir verkalýðsforingjum, þar með talið henni, en ekki nógu mikið fyrir almenn...
Betra að fæla álftina en skjóta hana
📅 18.10.2026 👁️ 4
Betra að fæla álftina en skjóta hana
„Þessi umræða kemur nú oft upp, á hverju hausti, þar sem fuglarnir sækja í kornin, bæði álftir og gæsir. Þetta hefur náttúrlega verið sérstaklega erfi...
Syrgja starfs­mann sem lést í slysi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Syrgja starfs­mann sem lést í slysi - Vísir
„Það kom stórt skarð í hjarta Kraftbíla og starfsmanna fyrirtækisins um helgina,“ skrifa forsvarsmenn fyrirtækisins Kraftbíla á Akureyri í færslu á Fa...
Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga - Vísir
Atvikið átti sér stað við Bredgade í Kaupmannahöfn þar sem eystri Landsréttur Danmerkur var áður til húsa. Dómstóllinn flutti fyrir fjórum árum og nú ...
„Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann“
📅 18.10.2026 👁️ 4
„Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann“
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, tók þátt í mótmælum í borginni Angers í vesturhluta Frakklands í gær. Mótmæli hafa farið fram víð...