Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni en hyggst sitja áfram á þingi sem þingmaður utan þingflokks.
Hann sagði ástæðu úrsagnarinnar bæði pólitíska og skipulagslega. Innan þingflokks Viðreisnar væri viðvarandi forystuleysi, ákvarðanafælni og klíkumyndun. Þá vísaði hann til ágreinings um forgangsröðun og sagðist hafa viljað frekari áherslu á málefni barna í flóknum vanda.
Jón segist hafa átt samtöl við flokksmenn Viðreisnar. Aðspurður hvort hann teldi að einhverjir væru að íhuga sína stöðu segist hann ekki vita til þess, en að það kæmi honum ekki á óvart.
„Nú er ég genginn úr þessum þingflokki og ég ætla ekki að æra óstöðugan meira en orðið er,“ segir Jón.
„En það kæmi mér ekki á óvart ef svo væri,“ segir hann. „En ég er ekki alveg upplýstur um það á þessari stundu.“
Hann hafi ekki íhugað sjálfur að skipta um stjórnmálaflokk.
Gæti breytt afstöðu sinni í ljósi nýrra upplýsinga
Jón gerði skriflegt samkomulag um samstarf og stuðning við ríkisstjórnina og heldur áfram að sinna nefndarstörfum fyrir Viðreisn. Hann segir að það gæti þó breyst.
„Ég veit ekkert hvernig þessi mál koma til með að þróast en ég gæti alveg hugsanlega breytt afstöðu minni í ljósi nýrra upplýsinga. Ég er núna bara að taka einn dag í einu, eða jafnvel hálfan og hálfan dag í einu, og reyna að meta afstöðu þingflokksins og flokksins og talsmanna flokksins til mín,“ segir Jón.
„Og auðvitað byggir svona samkomulag mikið á virðingu og trausti. Og ef það er ekki til staðar þá er það kannski barnaskapur að halda að maður geti unnið saman.“
„Mér þykir bara mjög miður hver staðan er“
Jón segir að ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar, í Vikulokunum á samtengdum rásum 1 og 2 hafi komið illa við sig. Grímur sagði lítið hafa gerst í þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón fór fyrir. Jón telur þetta aðför að sinni persónu og heilindum sem stjórnmálamaður.
„Grímur hafði samband við mig og bað mig afsökunar á þessu og ég meðtók það. Grímur er toppmaður og ég kann alveg gríðarlega vel við hann og ber mikla virðingu fyrir honum,“ segir Jón.
Staðan sé dapurleg.
„Ég ber enga gremju eða reiði til þessara félaga minna. Ekki neitt slíkt. Mér þykir þetta bara mjög miður hver staðan er,“ segir Jón.
„Og líka leiðinlegt að vera með upplifun sem aðrir upplifa ekki. Það er sérstakt líka.“
Gæti farið svo að þú segir þig úr Viðreisn og verðir óháður þingmaður?
„Ég sé ekkert í augnablikinu sem gæti orðið til þess. En ég get ekkert útilokað það.“