Samvinna björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu varð til þess að leit að manni sem féll í Stuðlagil í ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á botni árinnar með aðstoð myndavélar. Björgunarsveitarmaður sem sérhæfir sig í straumvatnsbjörgun segir skipta máli að fólk finnist, hvort sem það er lífs eða liðið.
Samstarf skipti sköpum
Fjölmennt lið var kallað út þegar maður, sem var á ferðalagi hér frá Póllandi, féll í Stuðlagil í lok ágúst, þar á meðal straumvatnsbjörgunarsveitarmenn. Magnús Stefán Sigurðsson, straumvatnsbjörgunarsveitarmaður, segir að samstarf björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu hafi skipt sköpum við leitina.
„Lögreglan kemur þarna með myndavél og fær okkur til þess að aðstoða sig við að nota hana og það skilaði þessum árangri, að viðkomandi finnst,“ segir Magnús Stefán.
Myndavélin var fest á stöng, hún sett undir vatnsyfirborðið og svo farið niður eftir ánni.
„Og skoðum svo myndefnið eftir á og finnum þá viðkomandi,“ segir Magnús Stefán.
„Leggjum okkur fram eins mikið og við mögulega getum“
Maðurinn var látinn þegar hann fannst í djúpum hyl í ánni. Þrátt fyrir að Jökla hafi ekki verið grugguð þennan dag þá var ekki hægt að sjá til mannsins frá árbakkanum.
„Það var engin leið að sjá hann, við vorum búnir að reyna allt og fara yfir hann nokkrum sinnum, það var ekki fyrr en sérsveitin kom með sinn búnað sem hann fannst.“
Leitarstörf stóðu yfir í um átta klukkustundir. Magnús Stefán segir skipta máli að fólk finnist, hvort sem það er lífs eða liðið.
„Það eru allir einstaklingar jafn mikilvægir hvort sem þeir eru lifandi eða liðnir. Þannig að við leggjum okkur fram eins mikið og við mögulega getum, fyrir fjölskyldu og aðstandendur.“
Þetta var annað banaslysið í Stuðlagili á tveimur árum. Á tíu árum hafa tólf látist eftir fall í á eða vatn á Íslandi, samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Flest banaslysin hafa verið á Suðurlandi eða átta. Magnús Stefán segir slysin oftast bundin við vinsæla ferðamannastaði.
„Og við þurfum að bregðast við því á sama tíma og landeigendur þurfa að bregðast við sínum vörnum og forvörnum.“