„Samþykki gefur ekkert ótakmarkað leyfi til þess að gera hvað sem er og þurrkar ekki út mannréttindi fólks.“
Þetta segir Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar – Samtaka gegn kynbundnu ofbeldi.
Landsréttur sýknaði karlmann á fertugsaldri á dögunum af ákæru um nauðgun. Maðurinn hafði verið sakfelldur og dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Landsréttur klofnaði og tveir dómarar sýknuðu manninn. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði og taldi rétt að staðfesta dóm héraðsdóms.
Samkvæmt ákæru hlaut konan meðal annars rifbeinsbrot, heyrnartap og tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. Meirihluti Landsréttar taldi ósannað að maðurinn hefði brotið á konunni þar sem hún hefði samþykkt að beita mætti hana hörku í kynlífi. Hún hefði einu sinni notað öryggisorð og maðurinn brugðist við því.
„Það sem mér finnst sérstaklega alvarlegt við þennan dóm er einmitt hvaða skilaboð er verið að senda þolendum kynferðisofbeldis,“ segir Guðný.
„Við vitum að fólk getur frosið við ógnvekjandi aðstæður og verið ófært um að mótmæla og þess vegna finnst mér mjög varhugavert að verið sé að nota það gegn brotaþola að hún hafi ekki náð að segja öryggisorðið oftar en einu sinni.“
Landsréttur geri lítið úr ofbeldinu
Guðný segir dóminn snúast um samþykki fyrir harkalegu kynlífi.
„Það er túlkað einhvern veginn sem ótakmarkað samþykki fyrir ofbeldi. Við megum eiginlega bara ekki gera þá kröfu til brotaþola að þeir bregðist alltaf rétt við ótta og ofbeldi með fyrirsjáanlegum hætti. Það er grundvallarmunur á að samþykkja einhverja kynlífsathöfn og að samþykkja bara hvað sem er.“
Landsréttur sé með sýknudómnum að segja að harkalegt kynlíf sé ekki aðeins málsvörn heldur útskýring á ofbeldi gegn konu í kynferðisbrotamáli.
„Mér finnst dómstóllinn gera lítið úr ofbeldinu sem brotaþoli varð fyrir og er í raun að krefja brotaþola um skýrari mörk. En samt telur meirihlutinn læknisfræðileg gögn benda til harkalegrar framkomu og tjóns en ekki nægilega til að sanna ásetning,“ segir Guðný.
„Við þurfum að fara að spyrja okkur hvort við verðum að leggja svona mikla áherslu á ásetning þegar allt liggur svona augljóslega fyrir.“
Túlkun dómara mjög sérstök
Ákvæði var bætt við almenn hegningarlög árið 2018 um að hver sá sem hafi samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis gerist sekur um nauðgun.
Telur þú meirihluta dómara túlka dóminn rétt í ljósi þess ákvæðis?
„Þetta samþykkisákvæði náttúrlega grundvallast á því að sakborningur eða sá grunaði verður að geta útskýrt hvernig hann fékk samþykki fyrir því sem hann var að gera. En í þessu tiltekna máli verð ég að segja að hún gefur samþykki fyrir einhverjum ákveðnum hlut,“ svarar Guðný.
„Samþykki má ekki túlka svo vítt að þar með sé gefið leyfi til að beita alls kyns ofbeldi. Mér finnst túlkun dómaranna mjög sérstök og ég myndi vilja sjá þetta endurhugsað.“