„Þessi umræða kemur nú oft upp, á hverju hausti, þar sem fuglarnir sækja í kornin, bæði álftir og gæsir. Þetta hefur náttúrlega verið sérstaklega erfitt haust upp á þetta, verið votviðrasamt og vindur mikill og bændur kannski ekki náð að koma korni í hús.“
Þetta segir Ólafur Einarsson, fuglafræðingur, framhaldsskólakennari og sérfræðingur í álftum, inntur eftir viðbrögðum við ákalli kornbónda á Suðurlandi. Sá vill að veittar verði undanþágur til að skjóta svani sem sækja í kornakra. Fuglinn er friðaður.
Kornbóndinn segir fjárhagslegt tjón vegna ágangs álfta á ökrum sínum geta numið tugum milljóna. Fuglarnir éti allt að 10-60 hektara af korni hans.
Betra að leita annarra leiða
Fuglafræðingurinn telur æskilegra að horfa til annarra leiða til að verja kornakrana en að skjóta friðaðan fuglinn.
„Til dæmis að fá bara bætur og að tjónið yrði þá metið. Það er náttúrlega gert sums staðar í nágrannalöndum. Svo eru menn þá kannski að leyfa þeim að vera í friði á ákveðnum stöðum, reka í burtu frá sumum ökrum en taka annan frá til að leyfa þeim að liggja í.“
Álftir séu fljótar að átta sig á því hvar þær fái að vera í friði.
„Það er hægt að fæla þær með ýmsum leiðum. Nota hunda eða hvernig sem menn fara að því. Reka þær í burtu af ökrunum með einhverjum látum, það er hægt líka. Það eru ýmsar leiðir til. Menn hafa prófað þetta bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, sem eru að standa í akurræktinni.“
Langlífur fugl sem stendur illa undir veiðum
Ólafur segir langa sögu að baki friðun álftarinnar. Fuglinn hefur verið friðaður frá því snemma á síðustu öld.
„Álftastofninn á Íslandi hefur nú yfirleitt verið frekar lítill. 1970-80 eru þetta kannski um tíu þúsund fuglar. Núna síðustu árin hefur þeim fjölgað töluvert,“ segir Ólafur.
Nýjustu mælingar gefi til kynna að stofninn telji í dag um 40 þúsund. Hann segir nánast hvergi tíðkast að skjóta svani.
„Það er svona ekki í fasa við það sem er meginlínan í nágrannalöndunum. Þessir fuglar eru friðaðir. Það er hvergi leyft að veiða svani nema í Bandaríkjunum held ég. Það er ein svanategund sem er þar – dvergsvanurinn eða túndrasvanurinn. Það eru leyfðar veiðar á honum.“
Svanir eru þó ekki í útrýmingarhættu í dag.
„Þetta er frekar langlífur fugl þannig að viðkoman er svona tiltölulega hæg. Hann myndi nú ekki standa undir neinum veiðum eða ef það væri skotið mikið af álftinni.“
Fugl sem manninum þykir vænt um
Ólafur bendir á að margir haldi upp á svani.
„Það hefur töluvert verið skrifað af ljóðum um álftina. Þetta er svona fugl sem stendur fólki nærri. Það er fullt af fuglum sem eru friðaðir og ekki nýttir með nokkrum máta.“
Áreiðanlega sé hluti af ástæðu þess að fuglinn sé friðaður hve kærkominn hann er manninum. „Það er engin spurning með það,“ segir Ólafur.