Það er oft sagt að kurteisi kosti ekki neitt, en stundum á þessi fallega fullyrðing ekki alveg við og þannig er það í tilfelli gervigreindar. Þegar fyrirspurn er send með aðstoð gervigreindar í gegnum til dæmis ChatGPT eða Gemini fer ákveðið ferli í gang. Fyrirspurnin er yfirleitt send til gagnavers í Bandaríkjunum þar sem úr henni er unnið, og vinnslan kostar orku.
Hvað kostar fyrirspurnin?
Marín Jónsdóttir, gervigreindarsérfræðingur og leiðtogi verkefnisins Glóð hjá Almannarómi, skrifaði nýlega grein þar sem hún velti umhverfisþáttum gervigreindar fyrir sér.
„Þannig ég fór aðeins að hugsa, hvað kostar ein fyrirspurn? Og það sem ég komst að var að ein fyrirspurn, þetta er rannsókn sem var gerð á Google og Gemini-mállíkaninu sem þau eru með, ein fyrirspurn til Gemini kostar jafn mikið rafmagn og ein sekúnda í örbylgjuofni.“
Sem hljómar ekkert svakalega mikið en Marín segir að setja verði hlutina í samhengi. Raunin sé sú að gervigreind er orðin stór hluti af daglegu lífi margra og telja daglegir notendur um milljarð.
„Þannig að þetta er orðið svo umfangsmikið þannig að auðvitað telur hver fyrirspurn.“
Þar sem hver fyrirspurn kostar orku er í raun umhverfisvænna að eyða ekki tíma í óþarfa kurteisi á borð við það að bjóða gervigreindinni góðan daginn eða þakka henni kærlega fyrir veitta aðstoð og vona að hún eigi góðan dag.
„Það er kannski óþarfi að byrja að tala við mállíkanið og segja: Hæ, hæ og senda það áfram af því að mállíkan virkar bara ekki þannig. Það er allt í lagi að skrifa bara það sem þig vantar að fá frá mállíkaninu. Það er alveg fín þumalputtaregla.“
Færri flugferðir og minna kjöt
Umhverfisspor gervigreindar séu þó ekki mikil í stóra samhenginu.
„Ef manni er rosalega annt um umhverfismál þá er líklega áhrifaríkara að fara í færri flugferðir og hætta að borða kjöt.“
Það sé þó munur á textafyrirspurn og fyrirspurn þar sem myndir og myndbönd eru búin til af mállíkani eða ef það er látið senda tölvupósta eða þróa kóða.
„Þá erum við náttúrulega að tala um allt annað en einhverja eina sekúndu í örbylgjuofni. Það er einn stór notandi á Claude Code sem segir að hans notkun noti meira rafmagn en tveir ísskápar noti á sólarhring, ef maður reynir að setja þetta í svona eitthvað samhengi. Þannig maður náttúrulega passar líka að gera ekki lítið úr þessari notkun.“