Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar

Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar

Stærðfræðingar uggandi yfir þróun gervigreindar

Þann 6. október birti fyrirtækið OpenAI 722 handrit sem innihalda alls 372 stærðfræðilausnir. Áður hafði fyrirtækið sagt í september að gervigreind hefði fundið lausn á Navier Stokes-jöfnunum sem eru eitt af sjö þúsaldarvandamálunum (Millennium prize problems) sem eru einhver flóknustu óleystu viðfangsefni stærðfræðinnar.

OpenAI segir að með birtingu lausnanna hafi miklar framfarir orðið í rannsóknum á Riemann-tilgátunni sem oft hefur verið talað um sem hinn heilaga gral stærðfræðinnar.

Sigurður Freyr Hafstein, prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands, segir að miklar umræður hafi skapast innan fræðigreinarinnar um þróun gervigreindar og hvernig hún muni hafa áhrif á stærðfræði í framtíðinni.

Sigurður segir að þrátt fyrir að OpenAI hafi birt lausnir sínar sé þó ekki öll sagan sögð. Það muni taka þó nokkurn tíma að sannreyna þær.

„Aðalmálið er að það er svolítið hættulegt að birta svona mikið af niðurstöðum í einu, af því að það tekur ár eða áratugi að fara í gegnum allar þessar niðurstöður og athuga hvort sannanirnar séu réttar,“ segir Sigurður.

Almennt ef stærðfræðingur sannar setningu og birtir þá sönnun sé sá hinn sami að leggja orðspor sitt að veði.

„En að henda hundruðum fram í einu, það er svolítið bratt,“ segir hann.

Stofnað til vikulegra umræðufunda

Sigurður segir að mikil umræða hafi sprottið upp meðal stærðfræðinga hér á landi eftir að OpenAI birti niðurstöður sínar og að til standi að stofna til fundar einu sinni í viku.

„Og ræða þessi mál og þróunina,“ segir Sigurður sem telur tíðindin bæði spennandi og ógnvekjandi.

„Maður hlustar á aðra og það sem er verið að tala um. Sumir eru svolítið hræddir, að þetta sé einhvern veginn of mikið og jafnvel verið að skemma stærðfræðina fyrir stærðfræðingum,“ segir Sigurður sem þó ekki alveg svo svartsýnn.

„Það mun allavega mikið breytast,“ segir hann.

Gervigreindin með alla þekkingu á einum stað

„Eins og ég sé þetta, þá er stóri kosturinn sem gervigreindin hefur fram yfir nokkra manneskju er að hún er búin að lesa allan „literatúrinn“,“ segir Sigurður og tekur fram að oft áður þegar nýjar lausnir hafi verið settar fram í stærðfræði hafi síðar komið í ljós að þær hefðu þegar verið lagðar fram. Gervigreindin hafi þó allar upplýsingar sínar á reiðum höndum.

„Þetta er allt komið inn í gervigreindina,“ segir Sigurður en eitt sem einkenni þær sannanir sem gervigreindin hefur sett fram, og búið sé að sannreyna, sé að þær tengi saman fræðasvið sem hafi áður ekki verið talin tengd.

„En hún kannski hjálpar okkur þá líka og við getum þá spurt spurninga í stað þess að vera að fletta í gegnum bækur,“ segir Sigurður.

„Ef gervigreindin er komin svo fram úr okkur að hún bæði býr til niðurstöðurnar og er betri í að túlka þær fyrir okkur þá er nú lítil ástæða fyrir okkur að vera til einhvern veginn.“

Sjálfur segist hann eiga auðveldara með að leita að upplýsingum, til dæmis á Google, þar sem nú er þar notuð gervigreind frekar en eldri tegund af leitarvél.

„Í stað þess að maður hitti á nákvæmlega réttan frasa og fái þá réttu síðuna þá getur maður spurt almennra spurninga og hún sjálf greinir síðurnar og finnur út það sem skiptir máli fyrir mann,“ segir Sigurður sem sér fyrir sér að þessu verði eins háttað í stærðfræði.

„Að maður geti spurt spurninga og hún finnur eitthvað í eldgamalli grein samantekið og getur hjálpað manni áfram,“ segir Sigurður. „Þetta mun örugglega hjálpa okkur líka.“

Aðspurður hvort ekki verði áfram þörf á stærðfræðingum til þess að túlka svör gervigreindarinnar þrátt fyrir að hún taki fram úr mannkyninu vonar Sigurður að svo verði.

„Við skulum allavega vona það,“ segir hann. „Ef gervigreindin er komin svo fram úr okkur að hún bæði býr til niðurstöðurnar og er betri í að túlka þær fyrir okkur þá er nú lítil ástæða fyrir okkur að vera til einhvern veginn.“

Sigurður segir að mismunandi skoðanir séu meðal stærðfræðinga í dag á þessari þróun. Sjálfur segist hann þeirrar skoðunar að bíða verði eftir frekari niðurstöðum áður en hægt er að draga ályktanir um það hvort gervigreindin sé að umbylta fræðigreininni eða ekki.

„Það er búið að setja fram þessar sannanir en það sem á eftir að gera er að ganga úr skugga um að þetta sé virkilega allt rétt,“ segir hann.

Sem dæmi bendir Sigurður á að mikið vanti upp á skilning á því hvernig gervigreindin komst að sínum niðurstöðum og hvernig þær voru svo sannaðar. Til þess að sanna þær setningar sem gervigreindin hefur lagt fram séu þær færðar inn í Lean sem er forritunarmál og sönnunarforrit (e. proof assistant) sem er hannað til þess að kóða, athuga og sanna stærðfræðilegar setningar.

„Gervigreindin setur sönnunina fram á einhvers konar mannamáli en til þess að ganga úr skugga um að þetta sé rétt hjá henni þá hefur hún sjálf þýtt þetta,“ segir Sigurður sem telur Lean vissulega góða leið til þess að færa sönnur fyrir stærðfræðisetningum.

„Aftur á móti er mjög erfitt að flytja vandamálið úr mannamáli yfir í Lean og þess vegna hefur gervigreindin verið notuð til þess að gera það sjálf líka,“ segir Sigurður.

„Það þarf að ganga úr skugga um það að það sem stendur í þessu rökfræðimáli sé virkilega fullyrðingin sem sett var fram á mannamáli.“

Langur tími þangað til allt verður staðfest

Sigurður nefnir að þegar settar voru fram sannanir fyrir Navier Stokes-jöfnunum hafi sú sönnun talið alls um 160 blaðsíður af virkilega torskiljanlegu efni.

„Þeir sem þekkja það að lesa stærðfræði vita að þetta er ekki eins og að lesa venjulega bók heldur þarf að lesa þetta línu fyrir línu og fara í gegnum hvert skref og velta því virkilega fyrir sér hvort þetta sé alveg öruggt,“ segir hann.

„Þetta er ekkert sem þú lest á viku eða mánuði, þetta er eitthvað, ef það á að fara almennilega í gegnum þetta, það er áralöng vinna,“ segir Sigurður sem telur að enn sé margt á huldu varðandi afrek gervigreindarinnar.

„Bíðum aðeins og sjáum hvort það séu nú fleiri göt í þessu en sett eru fram núna,“ segir hann.

Hins vegar hafi gervigreindin þróast virkilega hratt síðustu ár og sem dæmi má taka að ekki er langt síðan gervigreindin gat ekki leyst einföld stærðfræðidæmi. Það sé því stórt stökk að fara þaðan yfir í að leysa þúsaldarvandamál.

„Það finnst okkur pínkulítið óhugnanlegt.“

Sigurður segir að yfirleitt þegar ný tækni kemur fram á sjónarsviðið sé ákveðinn fasi þar sem talið er að hún verði allra meina bót. „En síðan áttum við okkur á því á einhverju stigi að það eru takmörk,“ segir Sigurður.

„Við erum ekki enn þá komin á endann, við vitum ekki hvar þetta endar eða hvort þetta endi. Það er kannski það sem er svolítið óhugnalegt,“ segir hann.

#gervigreindar #stærðfræðingar #uggandi #yfir #þróun


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-18-staerdfraedingar-uggandi-yfir-throun-gervigreindar-490241

📰 Aðrar fréttir

Nafn mannsins sem lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 18.10.2026 👁️ 1
Nafn mannsins sem lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Maðurinn sem lést í slysi á Gæsavatnaleið á föstudagskvöldið hét Arnþór Örlygsson, fæddur 16. júní 1979. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunn...
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur
Vinna með matarhandverk í farskóla fyrir bændur Mikil gróska er í mat­væla­gerð á Norð­ur­landi vestra. Það er engin til­viljun. Í Far­skól­anum á Sau...
Macron: „Hvað er í gangi í hausnum á þeim?“
📅 18.10.2026 👁️ 1
Macron: „Hvað er í gangi í hausnum á þeim?“
Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði aðgerðir til að bregðast við óánægju mótmælenda í sjónvarpsávarpi sem hann hélt í kvöld. Hann gagnrýndi hins...
Hringvegur lokaður milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hringvegur lokaður milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs
Hringveginum hefur verið lokað milli Almannaskarðsganga og Djúpavogs vegna hvassviðris og sandroks. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.i...
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið - Vísir
Lögreglan greinir frá þessu í færslu á Facebook. Hinn 47 ára fjölskyldufaðir lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld. Hann va...
Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ - Vísir
Fjölskyldufaðir á fimmtugsaldri lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls. Hann var í tíu manna hópi en um var að ræða jeppaferð á vegum starfsm...
„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“ - Vísir
Um mánaðamótin lýkur starfi tuttugu ára starfi félagasamtakanna Reiðhjólabænda. Samtökin hafa síðustu ár barist fyrir bættum hagsmunum hjólandi fólks,...
Canadian military base fire: Death toll confirmed and cause under investigation
📅 18.10.2026 👁️ 1
Canadian military base fire: Death toll confirmed and cause under investigation
At least four people are confirmed to have died after a huge fire swept through the base.
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum
📅 18.10.2026 👁️ 2
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum
Stúlkan var ein heima þegar bankað var harkalega á rúðu á neðri hæð hússins. Þegar hún opnaði dyrnar blöstu við þrír óeinkennisklæddir menn með grímur...
Stefán leggur til breytingu á þjóðarréttinum – „Versta teik sem ég hef heyrt“
📅 18.10.2026 👁️ 2
Stefán leggur til breytingu á þjóðarréttinum – „Versta teik sem ég hef heyrt“
Það er óhætt að segja að Stefán Pálsson sagnfræðingur, varaborgarfulltrúi og þjóðfélagsrýnir hafi vakið misjöfn viðbrögð með tillögu sinni um að Bæjar...
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi
📅 18.10.2026 👁️ 2
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi
„Samþykki gefur ekkert ótakmarkað leyfi til þess að gera hvað sem er og þurrkar ekki út mannréttindi fólks.“Þetta segir Guðný S. Bjarnadóttir, stjórna...
Fjórir her­menn létust í elds­voða - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Fjórir her­menn létust í elds­voða - Vísir
Mark Carney, forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í yfirlýsingu í dag. Hann hefur gefið út að flaggað verði í hálfa stöng um allt land vegna h...
Rósa Björk gekk með mótmælendum í Frakklandi og gagnrýnir framgöngu lögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Rósa Björk gekk með mótmælendum í Frakklandi og gagnrýnir framgöngu lögreglu
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, gekk með mótmælendum í Angers í Frakklandi laugardaginn 17. október. Í færslu af Facebook-síðu he...
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ætla að verða fyrstir til að senda könnunargeimfar að Mars og til baka
Ef allt fer samkvæmt áætlun verður leiðangur Japönsku geimvísindastofnunarinnar JAXA sá fyrsti sem farinn verður fram og til baka en ferðir til Mars h...
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
📅 18.10.2026 👁️ 1
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherraEkki eru allir á sama máli um túlkun ...
Magnús Geir afar þakklátur eftir frumsýningu á sannsögulegu leikriti um hörmulegan atburð - Söguefnin voru viðstödd
📅 18.10.2026 👁️ 3
Magnús Geir afar þakklátur eftir frumsýningu á sannsögulegu leikriti um hörmulegan atburð - Söguefnin voru viðstödd
Miklar tilfinningar hafa bersýnilega bæst innra með Magnúsi Geir Þórðarsyni Þjóðleikhússtjóra eftir frumsýningu á föstudag á leikritinu Högg, sem hann...
Björn Jón skrifar: Eldræða við Akrópólis
📅 18.10.2026 👁️ 3
Björn Jón skrifar: Eldræða við Akrópólis
Mynd Sjónvarpsþátturinn Højskolen á TV2 í Danmörku nýtur mikilla vinsælda
Lokuðu rann­sókn á al­var­legu at­viki eftir fimm­tán mánaða bið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Lokuðu rann­sókn á al­var­legu at­viki eftir fimm­tán mánaða bið - Vísir
Þetta kemur fram í svörum Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, GEV, við fyrirspurn Vísis og gögnum sem stofnunin afhenti vegna málsins. Samkvæmt...
Injured man in his 20’s taken to hospital after street fight in Lanzarote
📅 18.10.2026 👁️ 3
Injured man in his 20’s taken to hospital after street fight in Lanzarote
A man in his early 20’s, was taken to hospital this morning (Sunday) after being injured during a street fight in Lanzarote.The incident was reported ...
16 kínversk skip rekin frá Taívan
📅 18.10.2026 👁️ 3
16 kínversk skip rekin frá Taívan
16 kínversk skip sáust í sameiginlegum aðgerðum undan ströndum Taívan í morgun. Strandgæslan þar segir þetta óvenju mikið og skipin hafi verið hrakin ...
Two men killed in motorcycle crash on TF-1 in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 3
Two men killed in motorcycle crash on TF-1 in south Tenerife
Two men aged 48 and 52 died after a motorcycle crash on the TF-1 in southern Tenerife in the early hours of this morning, Sunday.CECEOES 112 received ...
Hvort viltu franskar eða appelsínu með hamborgaranum?
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hvort viltu franskar eða appelsínu með hamborgaranum?
Ótal fréttir hafa verið sagðar af mataræði, vísað í skýrslur og rannsóknir og ólíklegt að málið sé tæmt, ef það gerist þá nokkurn tíma.RÚV hefur staði...
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
📅 18.10.2026 👁️ 3
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki
Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki Verkir eru algeng­asta ástæða þess að fólk leitar til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Grund­vall­ar­munur ...
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar andmælir því að of mikið fari fyrir verkalýðsforingjum, þar með talið henni, en ekki nógu mikið fyrir almenn...
Betra að fæla álftina en skjóta hana
📅 18.10.2026 👁️ 3
Betra að fæla álftina en skjóta hana
„Þessi umræða kemur nú oft upp, á hverju hausti, þar sem fuglarnir sækja í kornin, bæði álftir og gæsir. Þetta hefur náttúrlega verið sérstaklega erfi...
Syrgja starfs­mann sem lést í slysi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Syrgja starfs­mann sem lést í slysi - Vísir
„Það kom stórt skarð í hjarta Kraftbíla og starfsmanna fyrirtækisins um helgina,“ skrifa forsvarsmenn fyrirtækisins Kraftbíla á Akureyri í færslu á Fa...
Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ræstinga­kona læstist ó­vart í fanga­klefa í þrjá daga - Vísir
Atvikið átti sér stað við Bredgade í Kaupmannahöfn þar sem eystri Landsréttur Danmerkur var áður til húsa. Dómstóllinn flutti fyrir fjórum árum og nú ...
„Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann“
📅 18.10.2026 👁️ 3
„Síðan tók lögregla upp á því að henda táragasi á fjöldann“
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, tók þátt í mótmælum í borginni Angers í vesturhluta Frakklands í gær. Mótmæli hafa farið fram víð...
Reyndi að fá endurgreiðslu og bætur eftir að hafa velt bílaleigubíl - Lögregluskýrsla varð honum að falli
📅 18.10.2026 👁️ 3
Reyndi að fá endurgreiðslu og bætur eftir að hafa velt bílaleigubíl - Lögregluskýrsla varð honum að falli
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu einstaklings sem leigði bíl af ónefndri bílaleigu um endurgreiðslu og bætur frá fyrirtækinu. Hafði...
Sigmundur Davíð hæðist að RÚV: Fljúgandi Teslan fór fram hjá Ríkisútvarpinu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Sigmundur Davíð hæðist að RÚV: Fljúgandi Teslan fór fram hjá Ríkisútvarpinu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, gagnrýnir fréttaval RÚV í færslu á X frá 17. október. Tilefnið er...
Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs - Vísir
Þetta kemur fram í samfélagsmiðlafærslu Einars. Aðstæður verði líklegast mjög slæmar við brúnir Eystrahorns á Hvalnesi og í Hvaldal.  „Stórvarasamt ök...
Search for Amelia Earhart's plane resumes after stormy weather
📅 18.10.2026 👁️ 3
Search for Amelia Earhart's plane resumes after stormy weather
An expedition to a remote Pacific island hoping to uncover the American aviator's wreckage was on hold for three days.
Bótox ekki meðferð þar sem þú vilt spara
📅 18.10.2026 👁️ 3
Bótox ekki meðferð þar sem þú vilt spara
Bótóxmeðferðir í fegrunarskyni njóta mikilla vinsælda um allan heim og Ísland er þar engin undantekning. Einungis tilteknir sérfræðilæknar mega ávísa ...
Dýrasti iPhone-síminn uppseldur á örfáum klukkustundum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Dýrasti iPhone-síminn uppseldur á örfáum klukkustundum
Nýr samlokusími tæknirisans Apple seldist upp á örfáum klukkustundum eftir að opnað var fyrir forsölu. Áætlað er að sumar pantanir verði ekki komnar t...
Maðurinn sem lést var Ís­lendingur - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Maðurinn sem lést var Ís­lendingur - Vísir
Þetta herma heimildir Vísis en Rúv greindi fyrst frá. Karlmaðurinn, sem var á fimmtugsaldri, var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á...
Pattra og Brynjar slá sér upp - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Pattra og Brynjar slá sér upp - Vísir
Brynjar Árni er rafeindavirki og mikill jaðaríþróttamaður. Hann birtir reglulega myndir og myndbönd af sér á snjóbretti á samfélagsmiðlum. Parið fór m...
Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ - Vísir
„Það eru komnar Rússagælur víða í samfélaginu. Mér finnst það bara ferlegt,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í viðtali á Spreng...
Fleiri for­eldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaða­bótum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Fleiri for­eldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaða­bótum - Vísir
Dómurinn varðaði þannig útreikning á meðaltali heildarlauna í þeim tilfellum þar sem foreldri starfaði í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska ef...
Ég, hóran
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ég, hóran
Ég, hóran Fimmtíu og sjö karl­menn eru grun­aðir um að hafa ekki komið ungri konu til aðstoðar þegar vinir þeirra nauðg­uðu henni í hópi. Hrafn­hildur...
Tímabundið 2,5% þak á hækkun leigu?
📅 18.10.2026 👁️ 3
Tímabundið 2,5% þak á hækkun leigu?
Tímabundið 2,5% þak á hækkun leigu? Hvers vegna ætti einn stærsti orsaka­valdur verð­bólg­unnar að vera und­an­þeg­inn mót­væg­is­að­gerðum? Rík­is­st...
1.800 handteknir eftir mótmælin í gær – 140 ára bygging nánast ónýt
📅 18.10.2026 👁️ 3
1.800 handteknir eftir mótmælin í gær – 140 ára bygging nánast ónýt
Innanríkisráðherra Frakklands segir að skemmdarverk í mótmælunum þar í gær séu til rannsóknar og að skemmdarvörgunum verði refsað. Ein af byggingunum ...
Óeirðir, rán og eldar víða um Frakkland
📅 18.10.2026 👁️ 3
Óeirðir, rán og eldar víða um Frakkland
Óeirðir, rán og eldar víða um Frakkland Mótmælin vegna fram­færslu­kostn­aðar drógu að sér hund­ruð þús­unda manna, en end­uðu í átökum, skemmd­ar­ver...
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 4
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
Yfirvöld í Kanada lýsa alvarlegu atviki sem leiddi til stórbruna í herstöð í Alberta sem stórslysi. Stjórnvöld hafa staðfest að nokkrir séu látnir og ...
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
Þetta segir hinn þrítugi tónlistarmaður Elvar Smári Júlíusson um nýju plötuna sína Hver og einn verður að ráða sínumnæturstað sem kom út 9. október en...
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
Greint hefur verið frá því að um 1.800 manns hafi verið handtekin á mótmælunum víða um Frakkland og um 500 lögreglumenn og slökkviliðsmenn séu slasaði...
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gr...
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
📅 18.10.2026 👁️ 4
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar í Facebook-færslu eindregið við því að fólk verði á ferðinni á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs í kvöl...
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
📅 18.10.2026 👁️ 4
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
Bæði Isavia innanlandsflugvellir ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vara við áformum sem felast í tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir hinn svokal...
Oil facilities hit in deadly overnight attack on St Petersburg
📅 18.10.2026 👁️ 3
Oil facilities hit in deadly overnight attack on St Petersburg
At least one person was killed in the strikes, which also hit a data centre used by Russia's equivalent of Facebook.
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
📅 18.10.2026 👁️ 4
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
Maðurinn sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi. Hann var á ferð með hó...