Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar andmælir því að of mikið fari fyrir verkalýðsforingjum, þar með talið henni, en ekki nógu mikið fyrir almennum meðlimum í verkalýðsfélögum. Bendir Sólveig Anna á að undir hennar forystu hafi fjöldi meðlima Eflingar verið virkjaður til aukinnar þátttöku í starfi félagsins en lítið hafi farið fyrir því í opinberri umræðu og fjölmiðlum. Virðist Sólveig Anna vera verulega ósátt við að ýjað sé að því að hún sé of fyrirferðarmikil á kostnað félagsfólks Eflingar.
Sólveig Anna ekki sátt - „Ef ég væri ekki svona agalega málefnaleg myndi ég segja öllu þessu fólki að f***a sér“