Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, segir að bærinn ætli að grípa til þeirra aðgerða sem þarf að grípa til að ná fram hagræðingu í rekstri bæjarins.Greint var frá því á dögunum að Seltjarnarnesbær hefði tapað 521 milljón króna á A-hluta rekstrarins fyrstu sex mánuði þessa árs. Eru heildarskuldirnar komnar í 9,5 milljarða króna.Morgunblaðið greinir frá því í dag að samþykkt hafi verið á fundi bæjarráðs á dögunum að ráðast í aðgerðir til að draga úr kostnaði og ná fram hagræðingu.
Þór tekur til hendinni á Seltjarnarnesi – Byrjar á eigin launum