Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur lagt það til að Xi Jinping forseti Kína og Donald Trump Bandaríkjaforseti hitti hann á þríhliða fundi í nóvember til að ræða hvernig finna megi lausn á stríði Rússlands og Úkraínu.
Samkvæmt heimildum Wall Street Journal viðraði Pútín fyrst hugmyndir sínar um fundinn í símtali við Donald Trump Bandaríkjaforseta níunda október, á sama tíma og leiðtogarnir tveir urðu ásáttir um að Bandaríkin myndu kaupa dísilolíu af Rússlandi.
Talsmaður stjórnvalda í Kreml hefur staðfest við fréttamiðilinn að viðræður um mögulegan fund séu hafnar. Ekki virðist lagt upp með að Úkraína verði á fundinum.
Blíðkar Pútín en gagnrýnir Selenskí
Trump hefur varið þá ákvörðun sína að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Hann segir að til að semja um frið dugi ekki að hrekja Rússa frá samningaborðinu en þó hefur hann gagnrýnt Volodímír Selenskí forseta Úkraínu harðlega.
Trump hefur látið í veðri vaka að Selenskí sé sama þótt árásir á olíuhreinsunarstöðvar Rússlands hafi neikvæð áhrif á heimsmarkaðinn. Hins vegar sé Vladímír Pútín Rússlandsforseti tilbúinn til að senda heiminum milljónir olíutunna á lágu verði.
Ef af þríhliða fundinum verður er líklegt að hann verði haldinn um miðjan nóvember á sama tíma og ráðstefna Efnahagssamstarfs Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC) fer fram í Shenzen í Kína. Óvíst er þó að hvaða marki slíkur fundur getur borið árangur án aðkomu úkraínskra stjórnvalda.