Karli Gústaf Svíakonungi og Silvíu drottningu líst ekkert sérstaklega vel á að væntanleg sé leikin þáttaröð sem fjallar um fyrstu kynni þeirra og ástarsamband sem hófst í kjölfarið. Lýkur þáttaröðinni á brúðkaupi þeirra en drottningin segir undarlegt að gera slíka þáttaröð um fólk sem sé ekki látið.
Eru ekki spennt fyrir væntanlegri þáttaröð um ástarsögu þeirra