Víða verður frekar hvasst og blautt í dag en þó dregur úr vindi eftir því sem líður á daginn. Hiti verður á bilinu fjögur til tíu stig. Norðausturland ætti að sleppa við rigningu að mestu.
Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:
Suðvestan 10-18 metrar á sekúndu og skúrir í dag, en að mestu þurrt norðaustan- og austanlands. Lægir smám saman, sunnan og suðvestan 5-13 síðdegis. Bætir í úrkomu, rigningu eða skúrir í kvöld, þó síst á Norðausturlandi. Hiti 4 til 10 stig.
Sunnan 8-13 metrar á sekúndu austast á morgun, annars hægari vindur. Rigning eða slydda austantil, en skúrir eða slydduél við vesturströndina.