Laurent Nunez, innanríkisráðherra Frakklands, sagði í morgun að lögregla hefði misst stjórn á mótmælunum í nokkrum borgum landsins um helgina. Hann sagði að skort hefði á undirbúning lögreglu undir þau miklu og á köflum ofbeldisfullu mótmæli sem geisað hafa í Frakklandi.
Nunez sagðist hafa beðist lausnar úr embætti innanríkisráðherra en að Emmanuel Macron forseti hefði synjað beiðni hans.