Sonur aldraðrar konu sem fannst slösuð á heimili sínu eftir líkamsárás kallar eftir svörum

Jónas Friðriksson hefur leitað til Fréttin.is vegna atviks sem hann segir hafa átt sér stað á heimili móður sinnar, Öldu Káradóttur, í Seljahverfi í Reykjavík þann 30. mars 2025. Að sögn Jónasar varð móðir hans, sem þá var 84 ára, fyrir alvarlegri líkamsárás á heimili sínu. Hann gagnrýnir viðbrögð lögreglu og segir fjölskylduna enn sitja uppi með fleiri spurningar en svör.
Gerði athugasemd við illa meðferð á hundi
Samkvæmt frásögn Jónasar hófust atburðirnir þegar móðir hans gekk út á svalir íbúðar sinnar og varð vitni að því sem hún taldi vera illa meðferð barna á litlum hundi.
Alda hafi kallað til barnanna og spurt hvort þeim þætti sjálfum gott að vera meðhöndluð með sama hætti.
Skömmu síðar hafi verið bankað á dyr hennar. Alda hafi opnað í þeirri trú að nágrannar væru á ferðinni.
Jónas segir að móður sinni hafi þá verið hrint í gólfið og hún orðið fyrir alvarlegri líkamsárás. Hann telur að barefli hafi verið notað við árásina.
Samkvæmt heimildum sem Fréttin er með undir höndum var a.m.k. hluti barnanna af arabískum uppruna.
Nágranni hringdi í Neyðarlínuna
Jónas segir að nágrannakona móður sinnar hafi haft samband við Neyðarlínuna eftir að hafa heyrt hana kalla á hjálp.
Samkvæmt frásögn hans hafi nágrannakonan talið að Alda hefði kallað eftir aðstoð í um hálfa klukkustund.
Lögregla hafi komið á vettvang eftir miðnætti, aðfaranótt 31. mars 2025, eða nokkrum klukkutímum eftir árásina.
Jónas segir að þegar að var komið hafi móðir hans verið mikið slösuð og töluverð röskun verið á innbúi íbúðarinnar. Meðal annars hafi borð og stólar verið á hvolfi og munir brotnir.
Hann telur að aðstæður á vettvangi hafi gefið ríka ástæðu til að rannsaka hvort refsivert brot hefði verið framið.
Segir lögreglu hafa lokað málinu
Það sem Jónas gagnrýnir sérstaklega eru meint viðbrögð lögreglunnar.
Hann segir að ættingi fjölskyldunnar hafi leitað til rannsóknarlögreglu og fengið þau svör að málinu hefði verið lokað og það yrði ekki tekið upp aftur nema lögð yrði fram kæra.
Jónas spyr hvernig móðir hans hefði átt að geta kært tiltekna einstaklinga þegar ekki var vitað hverjir hefðu ráðist á hana.
„Kæra á hvern? Átti mamma að komast að því hverjir þetta væru og kæra þá eða?“ spyr Jónas.
Hann segist hafa misst mikið traust til lögreglunnar vegna málsins.
Ekki hefur fengist staðfest hvort lögregla tók formlega ákvörðun um að hefja ekki rannsókn, hvort rannsókn var hætt eða á hvaða forsendum slík ákvörðun kynni að hafa verið tekin.
Kom aldrei aftur heim
Jónas segir að móðir sín hafi búið ein í eigin íbúð og verið stolt af sjálfstæði sínu, verið hraust og getað bjargað sér til allar athafnir.
Eftir atvikið hafi hún hins vegar ekki treyst sér til að snúa aftur heim og virðist einnig hafa þjást af áfallastreituröskun eftir atvikið.
Að sögn fjölskyldunnar náði Alda sér aldrei að fullu eftir atburðina og sneri ekki aftur til fyrra lífs.
Alda Káradóttir lést 5. janúar 2026, 85 ára að aldri.
„Mér hafa bara fallist hendur“
Jónas segir að málið hafi reynst fjölskyldunni afar þungbært.
„Mér hafa bara fallist hendur,“ segir hann í samskiptum við Fréttin.is.
Hann segir fjölskylduna hafa átt erfitt með að fá upplýsingar og að systir hans, sem hafi gögn málsins undir höndum, sé enn mjög slegin eftir atburðina.
Jónas hefur veitt Fréttin.is samþykki til að leita skýringa hjá lögreglu vegna máls móður sinnar.
Fréttin.is hefur sent lögreglu fyrirspurn
Fréttin.is hefur sent lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu formlega fyrirspurn vegna máls Öldu Káradóttur.
Þar er meðal annars óskað svara við því hvort lögregla hafi verið kölluð á vettvang aðfaranótt 31. mars 2025, hvernig atvikið hafi verið skráð og hvort tekin hafi verið ákvörðun um að hefja ekki rannsókn eða hætta henni.
Einnig er spurt hvort rétt sé að aðstandendum hafi verið tjáð að formleg kæra væri forsenda þess að málið yrði tekið upp aftur.
Samkvæmt 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber lögreglu að hefja rannsókn þegar tilefni er til vegna vitneskju eða gruns um refsivert brot, hvort sem kæra hefur borist eða ekki.
Lögregla hefur þó heimild til að vísa kæru frá eða hætta rannsókn ef lagaleg skilyrði eru uppfyllt.
Fréttin.is hefur því óskað sérstaklega eftir upplýsingum um hvaða sjónarmið réðu meðferð þessa máls.
Svör lögreglunnar liggja ekki fyrir þegar þessi frétt er skrifuð. Fréttin.is mun fylgja málinu eftir og greina frá viðbrögðum hennar þegar þau berast.