Haines, sem er 65 ára gömul, er sögð alvarlega slösuð en maðurinn sem ók bílnum var yfirbugaður á vettvangi af almennum borgurum og svo handtekinn. Lögregluþjónar fundu hníf í bílnum, samkvæmt lögreglunni.
Ástralska ríkisútvarpið hefur eftir Albanese að draga þurfi úr spennu í pólitískri umræðu í Ástralíu. Það er eitthvað sem hann hefur lengi kallað eftir en ástralskir stjórnmálamenn hafa í gegnum árin þótt mjög aðgengilegir og hafa getað gengið um götur án sérstakrar verndar.
Þetta hefur orðið erfiðara á undanförnum árum þar sem ógnanir gegn embættis- og stjórnmálamönnum hafa færst í aukana.
Albanese sagðist í morgun ekki vilja samfélag þar sem stjórnmálamenn geta ekki rætt við almenning í matvöruverslunum eða á götu úti. Það væri mikilvægur liður í áströlsku lýðræði.
„Og auðvitað einhver eins og Helen Haines, sem kemur úr þessu samfélagi, var mjög sýnileg og á ferðinni meðal fólks. Ég hafði ánægju af því að verja tíma með Helen Haines í hennar heimakjördæmi og ég veit að hún nýtur þar mikillar virðingar þvert á pólitískar línur.“
Forsætisráðherrann sagði Haines alltaf koma fram við aðra af virðingu. Hún væri sjálf vel virt af öllum þingmönnum. Ekkert rúm væri fyrir pólitískt ofbeldi í Ástralíu.
Krissy Barrett, yfirmaður Alríkislögreglu Ástralíu, sagði í fyrra að hótunum og ógnum gagnvart þingmönnum hefðu tvöfaldast í fjölda á undanförnum þremur árum.
Hér að neðan má sjá frétt ABC um atvikið, sem Albanese hefur sagt að hafi ekki verið slys, og má horfa á hana hér að neðan.