Rajan Parrikar, doktor í rafmagnsverkfræði, fer hörðum orðum um íslenska partímenningu og gildismat þjóðarinnar í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir áfengisneyslu hafa lagt íslenskt félagslíf undir sig og veltir því upp hvort áhersla Íslendinga á skemmtanir sé farin að bitna á því sem raunverulega skiptir máli, meðal annars menntun barna.Rajan hefur áður vakið athygli fyrir beitta pistla um íslenskt samfélag og menningu og er óhætt að segja að hann dragi hvergi af sér í nýju greininni.
Rajan lætur Íslendinga heyra það: „Hrókur alls fagnaðar“ er í raun hundleiðinlegur