Ólíkar tilgátur eru uppi um hvaðan Fóbos og og Deimos, minna tunglið, komu. Sumir vísindamenn telja tunglin leifarnar af braki eftir að stórt fyrirbæri rakst á Mars í fyrndinni. Aðrir telja að þau séu smástirni sem Mars fangaði.
MMX-leiðangri japönsku geimstofnunarinnar er ætlað að svara þessum spurningum með því að taka jarðvegssýni úr Fóbosi. Kiyoshi Kuramoto, aðalvísindamaður leiðangursins, segir AP-fréttastofunni að hann sé þess fullviss að sýnin dugi til þess að komast að niðurstöðu.
Einnig stendur til að fljúga farinu fram hjá Deimosi. Kuramoto telur sýnin frá Fóbosi veiti einnig upplýsingar um Deimos vegna þess að talið sé að tunglin tvö eigi sér sama eða svipaðan uppruna.
Misheppnaðar tilraunir til lendingar
Það verður þó hægara sagt en gert að ná sýnunum frá Fóbosi. Rússar hafa nokkrum sinnum reynt að lenda geimfari á tunglinu en án árangurs.
Fóbos er aðeins tuttugu til þrjátíu kílómetrar að þvermáli og þyngdarkraftur hans er aðeins einn tvöþúsundasti hluti af þyngdarkrafti jarðar. Vandasamt er að finna sléttan blett til lendingar.
Fyrst er ætlunin að lenda könnunarjeppa sem Frakkar og Þjóðverjar smíðuðu sameiginlega. Hann á að kortleggja yfirborðið og finna heppilegan lendingarstað fyrir japanska farið þar sem það getur safnað sýnum.
Japanir hafa reynslu af því að safna sýnum í geimnum og koma þeim aftur til jarðar. Tveir Hayabusa-leiðangrar söfnuðu þannig sýnum frá smástirnum og komu aftur heim árið 2010 og 2020.
Fimm ára leiðangur
Ferðalagið sem bíður MMX er rúmlega hálfur milljarður kílómetra. Geimfarið á að komast að Mars í ágúst á næsta ári. Næstu þrjú árin á það svo að hringsóla um Fóbos og safna gögnum. Áætlað er að farið skili sýnunum heim til jarðar árið 2031.
Fóbos og Deimos eru nefndir eftir tveimur lausaleiksbörnum Aresar, stríðsguðs grískrar goðafræði, og ástargyðjunnar Afródítu. Í henni birtist Fóbos sem holdgervingur ótta og skelfingar á vígvellinum.