Pútín er sagður sjá fundinn fyrir sér sem nýja Jaltaráðstefnu, þar sem þáverandi leiðtogar heimsins ræddu skiptingu heimsins eftir seinni heimsstyrjöldina.
Selenskí segir að Trump sé að þrýsta á Úkraínumenn og reyna að þvinga þá til að gefast upp fyrir Rússum.
Pútín lagði fundinn til í símtali við Trump þann 9. október en þá ræddu forsetarnir einnig kaup Bandaríkjamanna á díselolíu frá Rússlandi og niðurfellingu á refsiaðgerðum gegn Rússum, sem Trump opinberaði skömmu síðar.
Fundurinn yrði haldinn á hliðarlínum fundar efnahagssamvinnu Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC) í Kína í næsta mánuði. Hann fer fram í Shenzen helgina 18. og 19. nóvember.
Þetta hafa blaðamenn Wall Street Journal eftir heimildarmönnum í Rússlandi og í Bandaríkjunum og hafa þeir einnig eftir Dmítrí Peskóv, talsmanni Pútíns, að viðræður um mögulegan leiðtogafund séu yfirstandandi.
Rússneskir erindrekar eru fyrst sagðir hafa lagt þetta til við kínverska erindreka sem sögðust tilbúnir til fundarhalda, svo lengi sem Trump væri einnig samþykkur. Kínverjar hafa stutt Rússa við innrásina í Úkraínu.
Háttsettur bandarískur embættismaður sagði að Trump hefði ekki samþykkt að mæta á fundinn en hann gæti gert það, þar sem hann vilji binda enda á stríðið í Úkraínu.
Kennir Selenskí um hátt eldsneytisverð
Trump hefur á undanförnum dögum lagt mikla áherslu á að kenna árásum Úkraínumanna á rússneska orkuvinnsluinnviði um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum og um heiminn allan. Það sé ekki stríði hans gegn Íran og meðfylgjandi truflunum á flutningum olíuafurða frá Mið-Austurlöndum að kenna en kannanir vestanhafs benda til þess að hátt verðlag muni koma sérstaklega mikið niður á Repúblikönum í þingkosningum sem haldnar verða þar þann 3. nóvember.
Sérfræðingar í þessum málum eru þó sammála um að stríðið gegn Íran spili mun stærri rullu í háu eldsneytisverði í heiminum en árásir Úkraínumanna.
Sjá einnig: Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi
Trump hefur þrýst mjög á Selenskí og Úkraínumenn. Hann hefur meðal annars kallað eftir kosningum í Úkraínu og sagt að það sé Selenskí sem standi í vegi friðar en ekki Pútín. Þá hefur Trump farið með ósannindi um Selenskí og stríðið í Úkraínu, sambærileg þeim sem Rússar hafa lengi haldið fram.
Selenskí hefur lýst því yfir að Úkraínumenn séu viljugir til að hætta árásum á olíuvinnslur í Rússlandi, ef Rússar hætti árásum á orkuinnviði í Úkraínu. Úkraínumenn gerðu ekki árásir á rússneskar olíuvinnslur í þrjá daga eftir að Trump lýsti einhliða yfir vopnahléi en Rússar létu sprengjum rigna yfir Úkraínu og á úkraínsk orkuver á þeim þremur dögum.
Þrátt fyrir stórar yfirlýsingar er lítið sem Trump hefur gert til að reyna að stilla til friðar, annað en að reyna að þvinga Úkraínumenn til að verða við kröfum Rússa.
Þetta gerist á sama tíma og Rússum vegnar mjög lítið á víglínunni í Úkraínu.
Í samtali við WSJ segir einn bandarískur embættismaður að Trump hafi ákveðið að slaka á refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna þess að hann hafi ekki séð aðrar góðar leiðir til að reyna að lækka eldsneytisverð.
Trump-liðar hafa ekki farið leynt með það að þetta sé til komið vegna kosninganna í næsta mánuði.
Ný Jaltaráðstefna?
Ráðamenn í Moskvu sjá fundinn í Kína sem tækifæri til að festa stöðu Rússlands sem ráðandi heimsveldi í sessi. Það hefur verið eitt af markmiðum Pútíns frá því hann tók við völdum í Rússlandi árið 2000.
Verði af fundinum verður hann einnig enn einn fleygurinn milli Bandaríkjanna og Evrópu, en það að slíta Bandaríkin frá Evrópu hefur einnig lengi verið markmið Pútíns og Rússa.
Einn heimildarmanna WSJ í Rússlandi, sem er fyrrverandi starfsmaður rússneskrar leyniþjónustu, segir Pútín sjá fyrir sér fundinn sem nýja Jaltaráðstefnu. Það var sögulegur fundur Franklin D. Roosevelt, Bandaríkjaforseta, Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands, og Jósefs Stalín, leiðtoga Sovétríkjanna, og skipulögðu þeir þá hvernig heimsmálunum skyldi háttað eftir seinni heimsstyrjöldina.
Fundurinn í Kína er einnig líklegur til að valda áhyggjum í ríkjum Asíu, eins og Taívan, Japan og Suður-Kóreu.
Telur Trump reyna að fá Úkraínu til að gefast upp
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir í nýju viðtali við Bloomberg að hann telji að Trump ætli sér að þrýsta á Úkraínumenn til að gefast upp fyrir Rússum. Meðal annars vísar hann til þess að Bandaríkjamenn hafi sett takmarkanir á notkun Starshield-móttökustöðva í Úkraínu.
Það er sérstök þjónusta SpaceX, sambærileg Starlink-gervihnattanetinu, en er ætluð til notkunar í hernaði. Notkun Úkraínumanna á Starshield hefur verið fjármögnuð af bakhjörlum þeirra í Evrópu en henni er stýrt af varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna.
Þessar takmarkanir hafa meðal annars komið niður á vörnum Úkraínumanna gegn rússneskum sjálfsprengidrónum. Elon Musk, forstjóri SpaceX, vísaði fyrst á yfirvöld í Bandaríkjunum þegar hann var spurður út í takmarkanirnar en að öðru leyti hefur enginn viljað segja hvernig þessi ákvörðun var tekin.
Telegraph sagði frá því á dögunum að Musk hefði fyrst nálgast Trump og lagt takmarkanirnar til og Trump hefði samþykkt þær.
Selenskí vísar einnig til þess að Bandaríkjamenn hafa einnig tafið afhendingu flugskeyta í Patriot-loftvarnarkerfi Úkraínumanna. Þau flugskeyti eru gífurlega mikilvæg Úkraínumönnum þar sem þau eru nánast eina leið þeirra til að verjast rússneskum skotflaugum, sem Rússar hafa skotið í miklum fjölda á Úkraínu á undanförnum dögum.
Umrædd flugskeyti er búið að borga fyrir í gegnum hið svokallaða PURL-verkefni NATO, sem Íslendingar taka þátt í að fjármagna, en hafa ekki fengist afhent.
„Ég tel að búið sé að taka skref sem eigi að sannfæra Úkraínumenn um að verða við kröfum Rússa,“ sagði Selenskí í viðtalinu.
Úkraínumenn segja að sextán skotflaugum hafi verið skotið að Kænugarði og nærliggjandi bæjum í nótt og að Rússar hafi einnig notast við rúmlega tvö hundruð sjálfsprengidróna. Selenskí segir að engin viðvörun um skotflaugarnar hafi borist frá bandamönnum Úkraínu. Þar á hann við Bandaríkjamenn en undanfarna daga hafa Úkraínumenn vakið athygli á því að viðvaranir sem komu gjarnan fyrir eða skömmu eftir öll skotflaugaskot Rússa hafi ítrekað ekki borist.
Overnight, Russia launched 16 ballistic missiles at Kyiv and the Kyiv region, and more than 200 drones, including jet-powered Shaheds, across Ukraine. Energy facilities were the main target, but a clinic, a school, a metro station and homes were also hit. There are casualties. At least 550,000 families lost power. Ukraine has said yes to every ceasefire proposal. Russia keeps answering with missiles.
— Defense of Ukraine (@DefenceU) October 19, 2026
Hann sagðist ekki vilja trúa því að Bandaríkjamenn teldu það auðveldustu leiðina til að binda enda á stríðið, að enda það á kostnað Úkraínu. Þannig væri þó útlitið.
Hann sagðist vonast til þess að samband ríkjanna gæti skánað aftur eftir þingkosningarnar í næsta mánuði.
„Stjórnmál eru mjög hörð á kosningatímum,“ sagði hann.
„Mér finnst ástandið kvalafullt núna, en lífið heldur áfram eftir kosningar og ég tel að þá muni ró færast yfir.“