Í hádegisfréttum Bylgjunnar mátti heyra hóp lögreglumanna beita táragasi gegn mótmælendum í París en þar hélt óeirðaralda áfram í gærkvöld og í nótt.
Louvre-safninu lokað í morgun og neyðarfundur
Óeirðirnar spruttu upp í kjölfar mótmæla stúdenta í Frakklandi sem kalla eftir auknu fjármagni og betri kennsluaðstöðu. Fljótlega fóru mótmælin að vinda upp á sig og hafa eins og stendur hundruð þúsund manna tekið þátt. Stór hluti mótmælenda kvarta undan síauknum framfærslukostnaði.
Hluti þeirra sem hefur haldið út á götur Parísar og annarra stórborga hefur haft skemmdarverk og ofbeldi í frammi. Um tvö þúsund manns hafa verið handteknir í mótmælunum og þá hafa 150 lögreglumenn slasast. Brotist hefur verið inn í hinar ýmsu verslanir og eldur lagður að byggingum.
Mótmælendur lokuðu fyrir innganginn að Louvre-safninu í morgun sem er eitt fjölsóttasta safn heims. Lokunin hefur farið friðsamlega fram og sungu mótmælendur baráttusöngva gegn fasisma, líkt og lagið Bella ciao,
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur kallað eftir stillingu og ró en hann hefur neitað að samþykkja afsögn innanríkisráðherra Frakklands vegna mótmælanna. Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, boðaði til neyðarfundar í dag vegna stöðunnar. Sumum borgum hefur verið heimilað að setja á útivistarbann. Ekki hefur komið fram hvaða borgir er um að ræða.
Utanríkisráðuneytið staðfestir við fréttastofu að engin mál eru á borði borgaraþjónustu ráðuneytisins vegna mótmælanna og þá staðfestir sendirráð Íslands í París að enginn hafi leitað þangað síðustu daga.
Eggjum kastað í mótmælendur
Ingólfur Eiríksson, íslenskukennari við Sorbonne-háskólann, segir í samtali við fréttastofu að lífið gangi að mestu sinn vanagang þrátt fyrir mótmælin.
„Þessi mótmæli stúdenta hafa að langmestu leyti verið friðsamleg. Þetta byrjar í menntaskólum og síðan hafa önnur skólastig, sérstaklega háskólar, sýnt þessu samstöðu. Eina ofbeldið sem ég hef orðið var við var þegar eggjum var kastað í mótmælendur fyrsta daginn sem þeir lokuðu fyrir inngang skólans. Þeir hafa setið hérna fyrir utan skólann og komið í veg fyrir að kennsla eigi sér stað.“
Öll kennsla Ingólfs fer nú fram í gegnum fjarfundarbúnað. Nemendur hafi fordæmt skemmdarverk og óeirðir hluta mótmælenda.
„Það sem hefur gripið fyrirsagnirnar á sáralítið tengt við þessi mótmæli stúdenta. Það verður líka að segjast að lögreglan hefur brugðist með mjög harkalegum hætti. Nemendur hafa stórslasast, nemandi hefur misst höndina og lögreglan hefur verið gagnrýnd mjög harkalega fyrir hvernig hún hefur tekið á málum.“