ESA hefur höfðað mál gegn Íslandi vegna innleiðingar bókunar 35. Utanríkisráðherra mælir á sama tíma fyrir frumvarpi um lagabreytingu og telur rétt að ljúka málinu á Alþingi fremur en fyrir EFTA-dómstólnum. En hvað gæti unnist með því að halda uppi vörnum? Icesave málið og niðurstaða þess fyrir dómstólnum gefur tilefni til að staldra við þá spurningu.
ESA hafði ekki rétt fyrir sér þá
Í Icesave-málinu krafðist ESA þess að Ísland yrði dæmt hafa brotið gegn EES-skuldbindingum sínum með því að tryggja ekki greiðslu lágmarkstryggingar til innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi. Framkvæmdastjórn ESB studdi málatilbúnað stofnunarinnar.
EFTA-dómstóllinn féllst ekki á að innstæðutryggingatilskipunin legði þá skyldu á ríkið að tryggja greiðslurnar þegar tryggingakerfið réði ekki við skuldbindingar sínar við kerfishrun á borð við það íslenska. Tilskipunin fjallaði fyrst og fremst um fall einstakra banka. Ríkisábyrgðin sem ESA byggði á varð ekki leidd af ákvæðum hennar.
Freistnivandinn kom einnig við sögu. Dómstóllinn benti á að ríkisfjármögnun gæti losað tryggingakerfið undan kostnaði sem bankarnir sjálfir ættu að bera. Víðtæk tryggingarvernd getur veikt hvata til varfærni þegar aðilar bera síður sjálfir afleiðingar ákvarðana sinna.
Dómstóllinn hafnaði einnig því að Ísland hefði brotið gegn banni við mismunun innstæðueigenda með þeim hætti sem ESA hélt fram. Innlendar innstæður höfðu verið fluttar til nýs banka en ekki greiddar úr tryggingasjóðnum. Sá munur skipti máli, auk þess sem dómstóllinn varð að halda sig við þær kröfur sem ESA hafði lagt fyrir hann. Nákvæm skoðun á lagagrundvellinum og málatilbúnaði aðila réð því úrslitum. Túlkun ESA varð ekki rétt við það eitt að stofnunin höfðaði mál.
Til hvers er eigin dómstóll?
Í ræðu á þrjátíu ára afmæli EFTA-dómstólsins lýsti Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti hans, Icesave sem stærsta máli fyrstu þrjátíu ára dómstólsins. Hann lagði jafnframt áherslu á gildi þess að EFTA-ríkin hefðu eigin sjálfstæðan dómstól.
Markmið EES-samningsins um einsleitni gerir sjálfstætt mat dómstólsins ekki óþarft. Hann þarf að rannsaka hvaða reglur og fordæmi eiga við og hvernig þau horfa við innan réttarskipanar EES. Einsleitni felur ekki í sér að niðurstaða hvers máls sé fyrirfram ákveðin.
Baudenbacher fullyrðir ekki að Evrópudómstóllinn hefði dæmt Íslandi í óhag í Icesave-málinu. Enginn geti vitað það. Lærdómurinn felst í því að Ísland fékk sjálfstæða úrlausn um kröfur sem ESA og framkvæmdastjórn ESB töldu eiga sér lagastoð.
Sami réttur nú
Icesave segir ekki fyrir um niðurstöðu málsins um bókun 35. Málin eru ólík. En reynslan ætti að nægja til að hafna því að málsvörn sé tilgangslaus vegna þess að ESA hafi þegar tekið afstöðu.
Alþingi þarf að vita hvað bókunin krefst og hvaða svigrúm það hefur við lagasetningu. Ummæli stjórnarmanns ESA um að málið verði metið að nýju eftir „fullnægjandi“ innleiðingu svara ekki ein og sér hvaða breytingar séu nauðsynlegar. Til þess þarf skýr viðmið og rök.
Vönduð málsvörn getur stuðlað að nákvæmari afmörkun skyldunnar, jafnvel þótt Ísland tapi. Dómur getur þannig orðið grundvöllur lagabreytinga í stað þess að Alþingi samþykki þær áður en ágreiningurinn hefur verið leystur.
Lítið ríki þarf að standa við skuldbindingar sínar. Það þarf líka að nýta þau réttarúrræði sem samningurinn veitir því. Það gerði Ísland í Icesave-málinu. Sú leið er enn opin.