Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe - Vísir

Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe - Vísir

Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe - Vísir

Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, skrifaði á laugardaginn ítarlega Facebook-færslu um ítök Ratcliffe sem vakti viðbrögð og hrinti af stað mikilli umræðu.

„Einn auðugasti maður heims er Bretinn Jim Ratcliffe. Spurningin um það hvort skilgreina eigi hann sem olígarka veltur á ítökum hans í pólitík. Hann studdi Brexit og var aðlaður 2018 fyrir framlag sitt til viðskipta og fjárfestinga í Bretlandi, enda einn stærsti skattgreiðandi landsins. Tveimur árum síðar flutti hann skattalegt heimilisfesti sitt til Mónakó og sparaði sér þar með 4 milljarða punda. Var hann gagnrýndur heima fyrir að hafa talað fyrir breskri velferð, en hundsa hana í verki,“ skrifaði Herdís.

Ratcliffe stofnaði Six Rivers-verkefnið árið 2019 en markmið þess er að vernda villta Atlantshafslaxinn og sporna við fækkun hans. Verkefnið heldur utan um gögn um laxinn, stendur fyrir uppbyggingu í tengslum við laxveiði og skipuleggur fluguveiðiferðir. Samhliða því hefur hann keypt 39 jarðir á Norðausturlandi.

Herdís er uggandi yfir landareign Ratcliffe.

„Jim Ratcliffe er einn af stærstu landeigendum á Íslandi. Fyrirtæki hans Six Rivers á og stýrir víðtækum réttindum, fasteignum og mannvirkjum sem tengjast laxveiði og náttúruvernd á Norðausturlandi. Hann á um 1.500 ferkílómetra af íslensku landi, þ.á m. jarðir eins og Grímsstaði á Fjöllum; og hefur umráð yfir fimm af þekktustu og gjöfulustu laxveiðiám á norðausturhorninu (Selá, Hofsá, Hafralónsá, Miðfjarðará og Vesturdalsá),“ skrifaði Herdís.

Velti hún því fyrir sér hvort það hrikti ekki í fullveldi landsins þegar lunginn af heilu kjördæmi væri kominn í eigu erlends auðkýfings. Hann ætti hátt í helming af byggilegu landi í Norðausturkjördæmi og væri fjórði stærsti landeigandinn á Íslandi, á eftir ríkissjóði, sveitarfélögum og þjóðkirkjunni. Sjálfur lýsti Ratcliffe því yfir fyrir fimm árum að hann ætlaði sér ekki að kaupa meira land.

 „Ratcliffe er í svipaðri stöðu og goði á Sturlungaöld þegar fáar valdaættir sölsuðu undir sig mörg goðorð og réðu heilum landsfjórðungum. Ábúendur jarða áttu engra annarra kosta völ en að lúta þeim stórhöfðingja sem réði yfir öllu landssvæðinu,“ skrifaði Herdís.

„Hvað hugsuðu nú þingmennirnir, sem hafa sumir gert fullveldi að baráttumáli, þegar þeir heimsóttu Six Rivers áður en þeir fóru í nætursund um daginn. Goðinn Ratcliffe sat að vísu heima á höfuðbóli sínu í Vopnafirði en íslenskur erindreki hans tók á móti þingmönnum ,,kjördæmis hans“. Hugsuðu þeir um landið sem yfirráðasvæði íslensks ríkisvalds? Hugsuðu þeir um stjórnskipun Íslands og fólkið sem tilheyrir ríkinu? Eða fór um þá kuldahrollur að hér væri kannski hætta á ferðum: „Goðinn“ Ratcliffe væri kominn með slík ítök í kjördæminu að hann gæti fært út kvíarnar óháð hagsmunum þjóðarinnar; hann gæti farið að velja og ráða þingmönnum kjördæmisins í krafti auðlegðar sinnar?“ spurði hún.

„Þeir fóru síðan í nætursund og kannski sjálfum sér að voða – en áhyggjuefnið um hvort alþjóðlegur olígarki sé að ná yfirráðum í landsfjórðungi þeirra virðist ekki hafa valdið þeim eða fjölmiðlum landsins hugarangri.“

„Þú hossar engum nema það sé eitthvað í því fyrir þig“

Færsla Herdísar vakti mikla athygli, rúmlega sjö hundruð manns brugðust við henni og var henni deilt hátt í þrjú hundruð sinnum. Meðal þeirra sem deildu færslunni og tóku undir orð Herdísar var Bubbi Morthens, tónlistarmaður og stangveiðimaður.

„Ratcliffe hefur verið að reyna ná í og menn á hans vegum sagt upphátt vilja Laxá í Aðaldal, allt við þetta lið er ógeðfellt, þeir loka líka ánum fyrir Íslendingum, þetta er orðið leikfang fyrir hann og hirðina í kringum hann,“ skrifaði Bubbi.

Bubbi Morthens vill að ríkið endurheimti land af Ratcliffe.Vísir/Vilhelm

Hann sagði það fyrirslátt að jarðasöfnunin væri gerð fyrir verndun náttúrunnar.

„Það á að taka þetta af þeim og borga til baka. Ríkið á ekki að láta þetta viðgangast, hann er þriðji stærsti landeigandi Íslands og þetta er farið að ógna byggðarlögum og gleymum því ekki hann er með vatnsréttindi sem eru tugir hundraða milljarða virði,“ skrifaði hann.

Félagið Aðaldalur ehf., sem er í eigu félagsins Dylan Holdings SA í Lúxemborg, keypti á árunum 2009 til 2019 hluti í jörðum í Aðaldælahreppi og jók þannig veiðirétt sinn í Laxá í Aðaldal. Fjárfestirinn Jóhannes Kristjánsson var í forsvari fyrir félagið en hann og Ratcliffe hafa átt í miklum viðskiptum gegnum árin og töldu margir að Ratcliffe væri viðriðinn kaupin. Gísli Ásgeirsson, talsmaður Ratcliffe á Íslandi, neitaði hins vegar fyrir að Ratcliffe seildist til áhrifa í ánni.

Pálmi Gunnarsson, bassaleikari Mannakorna og fluguveiðimaður, virtist ekki sáttur við færslu Bubba en Pálmi hefur ásamt fleirum leigt silungasvæði Hofsár í Vopnafirði af Six Rivers síðustu ár.

„Vá, reyndi hann að kaupa ána með jörðum og öllu sem við á að éta?“ skrifaði Pálmi við færslu Bubba og vísar þar til Laxár í Aðaldal.

Pálmi Gunnarsson á sviði.Lilja Guðmundsdóttir

„Þú ert of tengdur honum,“ svaraði Bubbi.

„Hvað áttu við? Og geturðu ekki svarað spurningunni með öðrum hætti en aðdróttunum,“ sagði Pálmi þá.

„Ertu ekki að vinna fyrir hann og Gísla, sérðu ekki um neðra svæðið fyrir lordinn í Hofsá[?] Ef ekki þá tek ég til baka það sem ég sagði,“ sagði Bubbi.

„Ég er ekki að vinna fyrir einn eða neinn nema sjálfan mig. Er með silungasvæði Hofsár á leigu ásamt vinum mínum. Ekki að þér komi það neitt við. En þú átt eftir að svara mér varðandi Laxá,“ sagði Pálmi.

Bubbi dró þá í land og sagði upphaflegu færsluna kauðslega orðaða, Ratcliffe og félagar hefðu falast eftir að taka ánna á leigu eins og aðrar ár. Hann ítrekaði samt fyrri orð í öðrum ummælum: „Ef þú leigir af honum neðra svæði þá ertu tengdur honum puntur.“

Bubbi lenti í orðaskaki við Pálma.Vísir/Vilhelm

„Ekki vera fáviti,“ svaraði Pálmi þá.

„Þannig er það, þannig er það skrifað,“ sagði Bubbi.

„Ef þér líður betur með það,“ svaraði Pálmi.

„Það hefur ekkert með mig að gera, ekki er ég að hossa þessum manni,“ sagði Bubbi.

„Nei þú hossar engum nema það sé eitthvað í því fyrir þig. Annars nenni ég þér ekki, punktur,“ sagði Pálmi að lokum og lauk þá orðaskiptunum.

#brýnu #milli #poppara #sló #yfir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262950394d/slo-i-brynu-milli-poppara-yfir-ratcliffe

📰 Aðrar fréttir

Ísraelskt flugfélag hyggst fljúga beint til Íslands – „Þetta gæti varðað þjóðaröryggi“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Ísraelskt flugfélag hyggst fljúga beint til Íslands – „Þetta gæti varðað þjóðaröryggi“
Ísraelska flugfélagið Arkia hyggst hefja beint áætlunarflug til Íslands næsta sumar. Fjölmiðlafræðingur varar við og spyr hvort að íslensk yfirvöld ha...
Skiptar skoðanir um fyrirhugaða uppbyggingu í Spönginni - „Þéttingin komin aftur á kreik?“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Skiptar skoðanir um fyrirhugaða uppbyggingu í Spönginni - „Þéttingin komin aftur á kreik?“
Fullyrt er í Morgunblaðinu í dag að vel hafi verið tekið í hugmyndir fasteignafélagsins Reita um uppbyggingu í Spönginni í Grafarvogi. Til stendur að ...
Stefán bendir á skuggalega staðreynd um sparifé ríka fólksins - „Svona er byrðum verðbólgunnar misskipt“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Stefán bendir á skuggalega staðreynd um sparifé ríka fólksins - „Svona er byrðum verðbólgunnar misskipt“
Stefán Ólafsson hagfræðingur bendir á svakalega staðreynd um sparifé efnafólks á Íslandi. Auðæfi þeirra hafa aukist um 30 prósent á stuttum tíma.„Spar...
Bubbi og Pálmi í hár saman: „Þú hossar engum nema það sé eitthvað í því fyrir þig“ – „Ekki vera fáviti“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Bubbi og Pálmi í hár saman: „Þú hossar engum nema það sé eitthvað í því fyrir þig“ – „Ekki vera fáviti“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens vill að ríkið taki landið af auðkýfingnum Jim Ratcliffe á Norðausturlandi, segir Bubbi að verndun íslenska laxastofns...
Diljá Mist orðin einhleyp
📅 19.10.2026 👁️ 3
Diljá Mist orðin einhleyp
Þingkonan Diljá Mist Einarsdóttir og fjármálastjórinn Róbert Benedikt Róbertsson eru farin hvort í sína áttina. Þetta staðfestir Diljá í samtali við m...
Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ - Vísir
Í hádegisfréttum Bylgjunnar mátti heyra hóp lögreglumanna beita táragasi gegn mótmælendum í París en þar hélt óeirðaralda áfram í gærkvöld og í nótt. ...
Skoða að út­vista rekstri Hús­dýragarðsins til einka­aðila - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Skoða að út­vista rekstri Hús­dýragarðsins til einka­aðila - Vísir
Á morgun tekur borgarstjórn Reykjavíkur fyrir tillögu borgarfulltrúa meirihlutans um að athuga útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Bein...
Woman says she 'closed eyes and tried not to be there' during alleged Russell Brand rape
📅 19.10.2026 👁️ 2
Woman says she 'closed eyes and tried not to be there' during alleged Russell Brand rape
The 51-year-old faces three counts of rape, three charges of sexual assault and one of indecent assault.
Lærðum við ekkert af Icesave?
📅 19.10.2026 👁️ 3
Lærðum við ekkert af Icesave?
ESA hefur höfðað mál gegn Íslandi vegna innleiðingar bókunar 35. Utanríkisráðherra mælir á sama tíma fyrir frumvarpi um lagabreytingu og telur rétt að...
Undir­skriftasöfnun hafin og ríkis­sakóknari í­hugar á­frýjun - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Undir­skriftasöfnun hafin og ríkis­sakóknari í­hugar á­frýjun - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar dómsins sem þykir umdeildur. Íslenskur kennari í París se...
Veita sveitarfélögum upplýsingar um niðurstöður PISA eftir allt saman
📅 19.10.2026 👁️ 2
Veita sveitarfélögum upplýsingar um niðurstöður PISA eftir allt saman
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla sem eftir því leita um sínar niðurstöður í PISA 2025....
Prestur lést þegar róðu­kross féll á hann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Prestur lést þegar róðu­kross féll á hann - Vísir
Það sýnir prestinn í miðri messu þegar stór krossinn fyrir aftan hann losnar af veggnum og fellur á hann. Þá stóð Malinari við altari kirkjunnar og sn...
Felldu 1,4 milljarða sekt úr gildi og vísuðu til nýrrar meðferðar
📅 19.10.2026 👁️ 2
Felldu 1,4 milljarða sekt úr gildi og vísuðu til nýrrar meðferðar
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á sölu Landsvirkjunar vegna orkutapa Landsnets var gölluð því markaðir höfðu ekki verið skilgreindir sem skyldi. Þess ...
Maður hnoðaður til lífs í Sund­höllinni - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Maður hnoðaður til lífs í Sund­höllinni - Vísir
Þeim sem voru í Sundhöllinni í gær um klukkan 17 var illa brugðið en þá kom upp atvik. Karlmaður nokkur fékk aðsvif og var hann umsvifalaust færður af...
Farþegar sem spila háværa tónlist í strætó geta átt yfir höfði sér sekt
📅 19.10.2026 👁️ 2
Farþegar sem spila háværa tónlist í strætó geta átt yfir höfði sér sekt
Farþegar sem spila háværa tónlist í strætisvögnum á Englandi gætu átt á hættu á að vera sektaðir. Stjórnvöld ætla að taka harðar á óæskilegri og trufl...
Nýja Garmin Fenix 9 sam­einar allt það besta í einu úri - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Nýja Garmin Fenix 9 sam­einar allt það besta í einu úri - Vísir
Steinar Magnússon, sölumaður hjá Garmin búðinni, segir nýju línuna sérstaklega spennandi fyrir þá sem vilja sameina alla helstu möguleika Garmin í ein...
Ríkissaksóknari íhugar áfrýjun í nauðgunarmáli
📅 19.10.2026 👁️ 2
Ríkissaksóknari íhugar áfrýjun í nauðgunarmáli
Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja dómi Landsréttar frá í síðustu viku þar sem karlmaður á fertugsaldri var sýknaður af nauðgun, samkvæmt svari við fyri...
Ísraelskt flug­fé­lag boðar beint flug til Ís­lands - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Ísraelskt flug­fé­lag boðar beint flug til Ís­lands - Vísir
Félagið kynnti í gær flugáætlun sína fyrir árið 2027, sem nær til fjörutíu áfangastaða erlendis. Ísland er einn fimm nýrra áfangastaða, ásamt Maníla á...
Fjölmenni fagnaði með ráðgátumeistaranum
📅 19.10.2026 👁️ 2
Fjölmenni fagnaði með ráðgátumeistaranum
Tímamót eru á ferli Ragnars Jónassonar rithöfundar með útgáfu nýjustu spennusögu hans, Svartakóf, því þetta er 20. útgefna bók hans.Útgáfunni var fagn...
Apu fær aftur rödd – Nú með aðstoð Grey’s Anatomy leikara
📅 19.10.2026 👁️ 2
Apu fær aftur rödd – Nú með aðstoð Grey’s Anatomy leikara
Indverski kaupmaðurinn Apu Nahasapeemapetilon sneri aftur til Springfield í nýjasta þættinum um Simpson-fjölskylduna sem var frumsýndur í Bandaríkjunu...
Diljá Mist og Róbert Benedikt skilin
📅 19.10.2026 👁️ 2
Diljá Mist og Róbert Benedikt skilin
Þingkonan Diljá Mist Einarsdóttir og fjármálastjórinn Róbert Benedikt Róbertsson eru farin hvort í sína áttina. Þetta staðfestir Diljá í samtali við m...
Hjálpum þeim heim – Evrópa er á heljarþröm
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hjálpum þeim heim – Evrópa er á heljarþröm
Ég er eflaust langt frá því að vera sá eini sem er orðinn dauðþreyttur á að heyra íslenska blaðamenn endurtaka lygina um að óeirðirnar í Frakklandi sn...
Vill að nauðgun af gáleysi verði refsiverð eftir umdeildan sýknudóm
📅 19.10.2026 👁️ 2
Vill að nauðgun af gáleysi verði refsiverð eftir umdeildan sýknudóm
Alþingi ætti að skoða hvort það þurfi að búa til ákvæði um nauðgun af gáleysi að mati Sigrúnar Sifjar Eyfeld Jóelsdóttur.
Hætta við umdeild áform á Völlunum
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hætta við umdeild áform á Völlunum
Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að hætta við uppbyggingu 130 einingahúsa á Völlunum. Samið hafði verið við Styrkás fasteignir um uppbygginguna sem átti...
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
📅 19.10.2026 👁️ 3
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing bir...
Dóms­mála­ráð­herra fær nýjan að­stoðar­mann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Dóms­mála­ráð­herra fær nýjan að­stoðar­mann - Vísir
Fyrir á fleti er Þórdís Valsdóttir aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Ásta Sóllilja er sögð munu starfa með Þórdísi í tilkynningu frá stjórnarráðinu um r...
Stal senunni í sex milljarða króna brjósta­haldara - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Stal senunni í sex milljarða króna brjósta­haldara - Vísir
Fyrsta tískusýning Victoria's Secret fór fram árið 1995 og hefur ár hvert vaxið í vinsældum. Heimsfrægar fyrirsætur ganga tískupallinn fáklæddar í nær...
Ásta Sóllilja aðstoðar dómsmálaráðherra
📅 19.10.2026 👁️ 2
Ásta Sóllilja aðstoðar dómsmálaráðherra
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ráðið Ástu Sóllilju Sigurbjörnsdóttur í starf aðstoðarmanns síns. Hún aðstoðar Þorbjörgu ásamt Þórd...
Israeli police arrest 10 over settler attacks on journalist and diplomats in West Bank
📅 19.10.2026 👁️ 2
Israeli police arrest 10 over settler attacks on journalist and diplomats in West Bank
It comes after masked settlers attacked Palestinians and European officials visiting the West Bank during olive harvesting season.
Cambridgeshire train attacker Anthony Williams admits wounding
📅 19.10.2026 👁️ 3
Cambridgeshire train attacker Anthony Williams admits wounding
Anthony Williams is in court after multiple stabbings on a train that was forced to stop in Huntingdon.
Diljá Mist staðfestir sambandsslitin
📅 19.10.2026 👁️ 3
Diljá Mist staðfestir sambandsslitin
Diljá Mist staðfestir sambandsslitin Diljá Mist Einarsdóttir Mynd: Víkingur Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Róbert Benedik...
Reform MSP Amanda Bland resigns to sit as independent
📅 19.10.2026 👁️ 2
Reform MSP Amanda Bland resigns to sit as independent
Amanda Bland's decision relegates the party to the third-largest group at Holyrood, with one member fewer than Labour.
Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir
Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir Tónlistarmennirnir Bubbi Morthens og Pálmi Gunnarsson Mynd: Samsett Tónlistarmennirnir Bubbi Morthens og Pál...
Hætt við tímabundið hverfi fyrir farandverkamenn
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hætt við tímabundið hverfi fyrir farandverkamenn
Ekkert verður af því að komið verði upp húsnæði fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Hugmyndin var að þar gæti farandverkaf...
„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum
„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum Lula Bras­il­íu­for­seti og Flavio Bol­son­aro, mót­fram­bjóð­andi hans, áttu í har...
Diljá Mist á lausu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Diljá Mist á lausu - Vísir
Mbl.is greindi fyrst frá. Diljá er sjöundi þingmaður Reykjavíkur norður og skipaði annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Alþingiskosningunum 2024...
Diljá Mist skilin - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Diljá Mist skilin - Vísir
Mbl.is greindi fyrst frá. Diljá er sjöundi þingmaður Reykjavíkur norður og skipaði annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Alþingiskosningunum 2024...
Í­búarnir höfðu betur - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Í­búarnir höfðu betur - Vísir
Í tilkynningu frá bænum segir að ákvörðunin hafi verið tekin að undangenginni yfirferð á forsendum verkefnisins, meðal annars með hliðsjón af sjónarmi...
England women's manager Sarina Wiegman signs two-year contract extension
📅 19.10.2026 👁️ 3
England women's manager Sarina Wiegman signs two-year contract extension
Sarina Wiegman says she "cannot think of a better job in football" as she commits to staying on as manager of the Lionesses until after Euro 2029.
Vikan á Instagram: „Og þess vegna er ég að lifa mínu drauma lífi“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Vikan á Instagram: „Og þess vegna er ég að lifa mínu drauma lífi“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Inga opnar fyrir niður­stöður í PISA - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Inga opnar fyrir niður­stöður í PISA - Vísir
„Þau sveitarfélög sem þegar hafa óskað eftir sínum niðurstöðum munu fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD,...
Samþykkja ekki óbreytt ástand í botni Eyjafjarðar - Skólp hafi sett mark sitt á lífríkið
📅 19.10.2026 👁️ 3
Samþykkja ekki óbreytt ástand í botni Eyjafjarðar - Skólp hafi sett mark sitt á lífríkið
Umhverfis- og orkustofnun hefur hafnað beiðni Norðurorku fyrir hönd Akureyrarbæjar um að botn Eyjafjarðar verði áfram skilgreindur sem síður viðkvæmt ...
Four arrested after police officer injured in Nottingham shooting
📅 19.10.2026 👁️ 3
Four arrested after police officer injured in Nottingham shooting
The officer was shot in the foot and remains in hospital in a stable condition, police say.
Eva Björg verð­launuð í Frakk­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Eva Björg verð­launuð í Frakk­landi - Vísir
Prix Polar de Cognac-hátíðin hefur verið haldin í Cognac síðan 1996, er tileinkuð glæpasögum og spennutryllum og eru þar veitt verðlaun í fimm flokkum...
Ísafjarðarbær leggst gegn sameiningu lögregluembætta
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ísafjarðarbær leggst gegn sameiningu lögregluembætta
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum verði lagt niður í fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglu.Í u...
Icelandair búið að kaupa hlutinn í Fly Play Europe
📅 19.10.2026 👁️ 3
Icelandair búið að kaupa hlutinn í Fly Play Europe
Kaup Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe eru fullfrágengin. Fyrirtækið tilkynnti Kauphöllinni í dag að öll skilyrði fyrir kaupunum hefðu verið upp...
Senda far til að kanna upp­runa Fó­bosar - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Senda far til að kanna upp­runa Fó­bosar - Vísir
Ólíkar tilgátur eru uppi um hvaðan Fóbos og og Deimos, minna tunglið, komu. Sumir vísindamenn telja tunglin leifarnar af braki eftir að stórt fyrirbær...
Áfram lítill hagvöxtur en minnkandi verðbólga
📅 19.10.2026 👁️ 3
Áfram lítill hagvöxtur en minnkandi verðbólga
Áfram verður hægagangur í efnahagslífinu næstu misseri, samkvæmt hagspá Landsbankans. Þó eru líkur til að verðbólga fari fljótt að minnka og að stýriv...
Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi - Vísir
„Ferlið að greiningu hafði verið mjög þungt og erfitt,“ segir Rósa Björg Karlsdóttir, sem greindist haustið 2009 með langt gengið krabbamein. „Ég viss...
Ók viljandi á ástralska þingkonu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ók viljandi á ástralska þingkonu - Vísir
Haines, sem er 65 ára gömul, er sögð alvarlega slösuð en maðurinn sem ók bílnum var yfirbugaður á vettvangi af almennum borgurum og svo handtekinn. Lö...