Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

Diljá Mist Einarsdóttir
Mynd: Víkingur
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Róbert Benedikt Róbertsson, fjármálastjóri Icelandic Salmon AS hafa slitið sambandi sínu.
Mbl.is greindi fyrst frá tíðindunum þar sem Diljá staðfesti sambandsslitin. Diljá og Róbert eiga saman tvö börn.
Diljá hefur setið á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 2021 og er varaformaður þingflokksins. Hún er lögfræðingur að mennt og starfaði áður meðal annars sem aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þegar hann gegndi embætti utanríkisráðherra.