Stefán Ólafsson hagfræðingur bendir á svakalega staðreynd um sparifé efnafólks á Íslandi. Auðæfi þeirra hafa aukist um 30 prósent á stuttum tíma.„Sparifé efnafólks hefur aukist um 300 milljarða frá 2024,“ segir Stefán í færslu á samfélagsmiðlum.Bendir hann á að í umhverfi hárra vaxta berjist skuldugar fjölskyldur, sem eru yfirleitt yngra fólk, við að ná endum saman. Þau efnameiri njóta hins vegar lífsins og græða á háum vöxum af sparifé sínu.
Stefán bendir á skuggalega staðreynd um sparifé ríka fólksins - „Svona er byrðum verðbólgunnar misskipt“