Fyrsta tískusýning Victoria's Secret fór fram árið 1995 og hefur ár hvert vaxið í vinsældum. Heimsfrægar fyrirsætur ganga tískupallinn fáklæddar í nærfötum og eru þekktar sem „Englarnir“ eða Victoria's Secret Angels.
Poppstjörnur taka gjarnan vinsæl lög á sviðinu og englarnir ganga seiðandi fram hjá þeim. Í ár steig kanadíska söngkonan Tate McRae á stokk en áður hafa meðal annars Rihanna, Justin Bieber og The Weeknd tekið þetta verkefni að sér.
Kylie Jenner stal senunni á sýningunni í gær og kom mörgum viðstöddum á óvart. Hún klæddist „fantasy“-brjóstahaldaranum svokallaða sem hefur verið órjúfanlegur hluti af tískusýningunni frá árinu 2018. Á brjóstahaldaranum eru 4410 demantar umkringdir 75,54 karata gulum demanti. Það tók fimmtán hönnuði yfir þúsund klukkutíma að sauma þá í og gripurinn er metinn á rúma sex milljarða íslenskra króna.
Jenner er hvað þekktust fyrir að tilheyra Kardashian-Jenner fjölskyldunni og hefur frá blautu barnsbeini verið hluti af raunveruleikaþáttunum Keeping Up With The Kardashians og síðar The Kardashians.
Kendall Jenner systir hennar er auðvitað ein þekktasta fyrirsæta heimsins í dag en Kylie hefur sjálf aðeins verið að stíga skref inn í tískubransann og lokaði meðal annars tískusýningu franska merkisins Coperni í Disney-landi í París fyrir tveimur árum.