Ég er eflaust langt frá því að vera sá eini sem er orðinn dauðþreyttur á að heyra íslenska blaðamenn endurtaka lygina um að óeirðirnar í Frakklandi snúist um „niðurskurð til framhaldsskóla“.

Eins og þetta snúist um hvort franskir menntaskólanemar fái nógu þægilega stóla undir rassinn á sér, upphækkanleg skrifborð eða spjaldtölvur. Það sjá allir sem vilja opna augun að þetta er ekki spurning um fjármögnun.
Þetta er afleiðing áratuga fjöldainnflutnings stjórnlausra innflytjenda frá MENAPT-löndunum sem hvorki vilja né geta aðlagast, ásamt glóbalistastefnu vinstriflokkanna, sem hafa gert það að sínu helsta hlutverki að afsaka, hylma yfir með og jafnvel hvetja til eyðileggingarinnar.
Frakkland yfir meðaltali OECD
Frakkland eyðir meira en meðaltal OECD-ríkjanna í menntun ungmenna. Kerfið er ekki „svelt“. Það er hins vegar miðstýrt, skrifræðislegt og fullt af skráningar- og inntökukerfum á borð við Parcoursup, sem virðast hafa verið hönnuð til að pína alla sem reyna að nota þau.
Þetta skýrir þó ekki brennandi skóla, brennandi menningarsögulegar byggingar á borð við ráðhúsið í Limoges, innbrot í tískuvöruverslanir Louis Vuitton, brennandi bíla og götur þar sem fólk gengur undir palestínskum, marokkóskum og alsírskum fánum.

Sannleikurinn er einfaldur og óþægilegur: Í þeim hverfum þar sem MENAPT-innflytjendur og afkomendur þeirra eru í meirihluta eru framhaldsskólarnir fullir af ungmennum sem mæta til skóla óundirbúin, áhugalaus og með slíkt virðingarleysi að það jaðrar við fjandskap í garð franskrar siðmenningar. Þau eyða tíma kennara og annarra nemenda með truflunum, hótunum og skemmdarverkum. Kennarar brenna út og flýja. Þetta er ekki „félagslegur arfur“ sem stofnunum ber að uppræta.
Þetta er menningarlegur ósamrýmanleiki sem vinstri elítan hefur neitað að viðurkenna í áratugi.

Íslenskt og norrænt „inngildingar-lingó“ um svokallaðan „fjölbreytileika“ og „aðgengi allra“ byggist á sömu afneituninni. Stofnanir siðmennta ekki fólk sem kemur frá samfélögum þar sem ofbeldi, ættbálkaskipting og andúð á Vesturlöndum eru viðtekin viðmið. Þvert á móti: Mikill fjöldi fólks úr slíkum samfélögum breytir stofnunum til hins verra. Þegar við flytjum þriðja heiminn inn, þá verðum við þriðji heimurinn!
Þegar La France Insoumise og önnur öfgavinstri samtök hvetja til óspekta og kalla það „réttlætisbaráttu“ eða jafnvel „mannréttindabaráttu“ þá birtist íslamókommúnisminn (fr. islamogauchisme) í verki – bandalag harðra íslamista og róttækra vinstrimanna sem hata bæði Frakkland og Vesturlönd.
Það er sorglegt að sjá íslenska formenn stjórnmálaflokka svara kallinu að utan og mæta á staðinn til að gefa þessum óeirðarseggjum vægi.
Fánarnir segja allt. Þetta eru ekki franskir nemendur sem mótmæla skólaútgjöldum. Þetta er hópur sem lítur á göturnar sem vettvang eigin menningar- og trúarbaráttu gegn gestgjafalandinu.
Sama mynstur sést í Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og víðar.
Fjölmiðlar og stjórnmálamenn kalla þetta „óeirðir vegna fátæktar“ eða „niðurskurðar“ vegna þess að aðrar skýringar krefjast þess að viðurkenna að opnu landamærin og fjölmenningarstefnan hafi haft skaðlegar afleiðingar. Þetta sér maður m.a. hjá okkar stjórnmálamönnum sem reyndu ákaft að telja okkur trú um að verðbólgustigið og efnahagur ESB væri svo góður fyrir okkur að við ættum að drífa okkur þarna inn. En eins og ég og fleiri vöruðum við, þá er löngu kviknað í þessum kratakofa sem Evrópusambandið er.
Samkvæmt mörgum skoðanakönnunum stefnir La France Insoumise að því að ná í aðra umferð forsetakosninganna næsta vor. Frakkland stendur þá frammi fyrir vali milli íslamista og róttækra vinstrimanna annars vegar og Rassemblement National hins vegar. Þegar miðjukjósendur hafa séð brennandi bíla og skóla munu margir þeirra líklega kjósa síðarnefnda flokkinn. Þetta er ekki „hægrisveifla“ eða uppgangur „hægri öfgamanna“.
Þetta eru EÐLILEG viðbrögð við raunveruleika sem elítan hefur reynt að þagga niður.
Við þurfum að loka landamærunum fyrir fólki frá samfélögum sem hafa ítrekað sýnt að það aðlagast ekki og stuðlar að langvarandi vandamálum. Þeir sem þegar eru hér en neita að virða lög, menningu og grundvallarreglur landsins eiga að fá aðstoð við að snúa aftur til heimalanda sinna. Jafnvel með valdi.
Við eigum að ræða það af alvöru að koma þessu fólki til síns heima. Það heyrir ekki til hérna. Það hatar menn eins og mig fyrir það eitt að elska þann sem ég elska. Þetta fólk virðir okkur ekki og hefur engan áhuga á því að verða Íslendingar.

Staðan er einfaldlega orðin þannig í Evrópu að þessir fjöldafólksflutningar eru nauðsynlegir. Og ef við þurfum að segja skilið við alþjóðasáttmála til að framkvæma þetta, þá verður það einfaldlega að vera þannig. Þetta er ekki mannvonska. Þetta er sjálfsvörn. Áframhaldandi afneitun, áframhaldandi innflutningur og áframhaldandi afsakanir munu aðeins gera vandann stærri, dýrari og ofbeldisfyllri.
Frakkland er að upplifa þetta.
Restin af Evrópu, og ekki síst Ísland, ætti að draga lærdóm af þessu áður en það er of seint.
Eldur Smári Kristinsson