Hilma Dögg er þriggja barna móðir sem ólst upp að mestu fyrir norðan. Hún er móðir Hávarðar Mána sem lést fyrir rúmu ári síðan eftir mikla baráttu. Hann féll fyrir eigin hendi eftir að hafa verið fastur í geðrofi í rúmt ár. Hilma er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.Hilma var ung móðir og átti sjálf við vímuefnavanda að stríða á sínum yngri árum. Fyrstu fjögur ár Hávarðar bjuggu þau á Blönduósi en þá tók Hilma ákvörðun um að flytja í bæinn.„Fólkið mitt hélt að ég myndi endast í nokkra mánuði en ég er ekki ennþá farin til baka.“
Hávarður tók eigið líf – Móðir hans lýsir síðustu dögunum í lífi hans