Lokaáfangi þessarar miklu endurnýjunar Vestfjarðavegar, sem jafnan er kennd við Teigsskóg, felst í byggingu svipmikillar 210 metra langrar stálbogabrúar yfir Djúpafjörð sem og lagningu 4,6 kílómetra vegarkafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Aðeins tvö tilboð bárust í verkið, sem Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri sagði hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun.
Lægra tilboðið var frá ÞG-verktökum upp á tæpa 3,9 milljarða króna. Það var um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á rúmlega 2,4 milljarða króna. Lægra boðið var þannig nærri 1,5 milljarði króna yfir áætluðum kostnaði. Hærra tilboðið barst frá Ístaki, upp á nærri sex milljarða króna. Það var 2,1 milljarði króna, eða 146 prósentum, yfir áætluðum verktakakostnaði.
„Báðum tilboðum hefur verið hafnað, en báðir bjóðendur hafa samþykkt að fara í samkeppnisviðræður við Vegagerðina sem fara af stað núna á næstu dögum,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar.
-Hvenær vonast menn til að fá niðurstöðu? Er stefnt að óbreyttum verklokum eða gæti þeim seinkað?
„Þetta tekur líklega einhverjar vikur og mér finnst ólíklegt að verklokum seinki,“ svarar G. Pétur en samkvæmt útboðsauglýsingu Vegagerðarinnar eru verklok áætluð þann 1. október 2028, eftir tvö ár.
-En verður opnað á breytta útfærslu mannvirkja eða miðað við þá hönnun sem boðin var út?
„Það er of snemmt að svara þessum spurningum. Það verður rætt um hvað gæti betur farið,“ svarar upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
Verkefnið var útskýrt í kvöldfréttum Sýnar fyrr á árinu: