Þetta kemur fram í nýrri skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis, sem lögð var fram 16. október. Þar segir að aðgerðahópurinn hafi skilað skýrslu í desember 2025 með tillögu að tímasettri áætlun um brúun umönnunarbilsins, en ekki hafi verið tekin ákvörðun um næstu skref.
Vildu ljúka viðræðum í maí
Umönnunarbilið er sá tími sem líður frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til barn fær leikskólapláss. Í tillögum aðgerðahópsins frá desember var gert ráð fyrir að viðræðunefnd ríkis og sveitarfélaga yrði sett á fót í ársbyrjun 2026 og lyki störfum eigi síðar en í maí.
Viðræðurnar áttu að snúast um uppbyggingu, kostnaðarskiptingu og tekjustofna vegna brúunar bilsins. Forsætisráðuneytið skyldi hafa forgöngu um þær.
Jafnframt lagði hópurinn til að frumvarp um að gera rekstur leikskóla að lögbundnu hlutverki sveitarfélaga yrði lagt fyrir Alþingi eigi síðar en á haustþingi 2026.
Leikskólaréttur átján mánaða barna frá næsta ári
Hópurinn lagði til að réttur barna til leikskóladvalar yrði lögfestur í áföngum. Fyrst yrði átján mánaða börnum tryggður rétturinn árið 2027. Síðan tæki hann til yngri barna, þar til öllum börnum væri tryggð leikskóladvöl að loknu fæðingarorlofi í síðasta lagi árið 2030.
SA töldu lögfestingu ótímabæra
Vísir fjallaði um tillögurnar og gagnrýni Samtaka atvinnulífsins í desember. Samtökin töldu skýrsluna ekki svara nægilega vel hvers vegna sveitarfélögum hefði ekki tekist að brúa bilið.
SA töldu því ótímabært að lögfesta réttinn. Lögfesting ein og sér leysti ekki undirliggjandi vanda, meðal annars vegna rekstrarkostnaðar og krafna um menntun og mönnun leikskóla.