„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

Matthías Freyr Matthíasson greindist með ristilkrabbamein í apríl eftir að hafa glímt við mikla og reglulega kviðverki um nokkurt skeið. Skömmu síðar kom í ljós að krabbameinið hafði dreift sér í lifrina.
Matthías hefur nú stigið fram í aðsendri grein á Vísi og sagt frá veikindum sínum í þeirri von að reynsla hans geti orðið öðrum hvatning til að sækja sér stuðning.
„Það var frekar mikið þungt högg í magann í apríl síðastliðnum, eftir nokkurra vikna og mánaða vesen með reglulegum miklum kviðverkjum og læknaheimsóknum, að fá símtal þar sem mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein,“ segir Matthías.
Honum var sagt að hann væri ungur miðað við marga sem greinast með sjúkdóminn en hann er aðeins 46 ára.
„Mér fannst það lítil huggun á þeim tímapunkti í ferlinu,“ segir hann.
Staðan varð enn alvarlegri þegar rannsóknir leiddu í ljós meinvörp í lifur. Matthías segir greininguna hafa kallað fram erfiðar spurningar um framtíðina, fjölskylduna og næstu mánuði og ár.
„Þetta er staðan og ég mun gera allt sem er í mínu valdi til að berjast og sigra þetta og legg allt mitt traust á okkar færu lækna og læknavísindin.“
Ný meinvörp fundust
Sumarið fór að stórum hluta í tvær aðgerðir og bata eftir þær. Aðgerðirnar gengu vel en síðar kom bakslag þegar ný meinvörp fundust í lifrinni. Lyfjameðferðinni var því breytt og gerð öflugri. Sú meðferð stendur nú yfir.
Matthías segir stuðning fjölskyldu og vina hafa verið ómetanlegan en jafningjastuðning hafi einnig reynst honum sérstaklega mikilvægur.
Hann nefnir þar Ljósið og Kraft og hvetur aðra krabbameinsgreinda til að kynna sér starfsemi félaganna.
„Það er svo gott að hitta einstaklinga sem hafa gengið í gegnum eða eru að ganga í gegnum svipaða hluti og maður sjálfur, til að spegla, til að gleðjast og til að fræðast og styrkja hvert annað.“
Matthías segir fyrsta skrefið einfaldlega vera að mæta og þiggja þann stuðning sem stendur til boða.
„Lífið er núna!“