Þetta kemur fram í tilkynninu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar segir að áformað hafi verið að hefja bólusetningar fólks í forgangshópum 20. október og hafi heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þegar verið byrjaðar að bóka tíma.
„Þar sem afhending bóluefnis hefur dregist þarf að fresta tímabókunum um nokkra daga.
Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær heilsugæslustöðvar fá bóluefnið en vonast er til þess að það takist að hefja bólusetningar fólks í áhættuhópum fyrir lok október.
Þeir sem teljast í áhættuhópum eru:
- Fólk 60 ára og eldra.
- Börn milli 6 mánaða og 5 ára aldurs.
- Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
- Barnshafandi einstaklingar.
- Heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum.
- Fólk sem telst í áhættu á samsmiti inflúensu og fuglainflúensu vegna starfs síns.
Í kjölfar bólusetninga fólks í áhættuhópum verður opnað fyrir bólusetningar fyrir aðra.
Bóka þarf tíma í bólusetningar í gegnum Heilsuveru en fólk er hvatt til að hinkra þar sem ekki er vitað hvaða dag verður hægt að byrja að bólusetja.
Börn 2 til 4 ára fá nefúða
Vikuna 2. til 6. nóvember verður börnum 2 til 4 ára boðið upp á bólusetningu við inflúensu með nefúða. Ekki þarf að bóka tíma heldur verður opið hús á heilsugæslustöðvum milli 15 og 17. Nefúðinn er kominn til landsins og því engar tafir á þessum bólusetningum.
Eldri systkini sem eru í áhættuhópum eru velkomin með og geta fengið nefúða.
Tilvalið er fyrir foreldra að koma við á heilsugæslunni með börnin á leiðinni heim eftir leikskólann, og bangsinn er velkominn líka til að fá nefúða,“ segir í tilkynningunni.