Rannveig Rist lét af störfum sem forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík í maí en hún hafði þá gegnt starfinu í um 30 ár. Á ársfundi Samtaka atvinnulífsins fyrr í þessum mánuði var hún sæmd gullmerki SA fyrir einstakt framlag til íslensks atvinnulífs og til samtakanna.
Á ársþinginu hélt Rannveig ræðu sem vakti töluverða athygli. Þar fjallaði hún meðal annars um sjálfsmynd Íslendinga - að við værum kvik, friðsæl, skapandi, sjálfstæð og fljót að bregðast við. Sjálfsmynd væri þó ekki það sama og raunveruleikinn.
Sjálfsmynd ekki í takti við raunveruleikann
„Raunveruleikinn er að við erum ekki sérstaklega kvik,“ segir hún. Opinberir frestir séu frekar eins og viðmið og fjárfestar og fyrirtæki þurfi að bíða lengi eftir svörum. „Svo er skrítið að segja að við séum mjög örugg, og að samfélagið sé mjög öruggt, á sama tíma og það þarf að stækka Kvennaathvarfið. Þannig að mér finnst að við þurfum að horfast betur í augu við raunveruleikann,“ segir Rannveig.
Íslendingar séu að sumu leyti skapandi og fljótir að bregðast við en eigi það til að hlaupa hver á eftir öðrum. Á árum áður hafi refabú verið byggð um allt land. Þegar vel fór að ganga í Straumsvík kviknaði áhugi á að byggja álver víða um land. „Nú eru það gagnaverin. Við erum svolítið að elta sömu hugmynd. Ég held að það sé betra að byggja atvinnustefnu upp á því að líta á tækifærin og skoða fleiri möguleika og ígrunda málin betur frekar en að hlaupa öll í sömu átt. Ég held að það vanti fleiri hugmyndir hérna.“
Hvers vegna eru öflug fyrirtæki seld úr landi?
Rannveig ræddi líka um mikilvægi erlendrar fjárfestingar - en hún væri lítil hér á landi. Erlend fjárfesting færði ekki aðeins fjármagn til landsins, heldur gæti hún líka fært okkur þekkingu, tækni, alþjóðleg tengsl og aðgang að mörkuðum. Um leið yrðum við að spyrja okkur hvers vegna ekki hefði tekist betur til við að byggja upp íslensk fyrirtæki með höfuðstöðvar hér heima. Við þyrftum að spyrja hvers vegna fyrirtæki - sem gætu orðið öflug á alþjóðavettvangi - væru seld úr landi.
Rannveig sagði mjög eftirsóknarvert að höfuðstöðvar öflugra fyrirtækja væru á Íslandi. Skattgreiðslur væru ein ástæða. Með því væri líka verið að þjálfa stjórnendur, meðal annars í þróunarvinnu og við að taka alvöru ákvarðanir. Það væri mikils virði að þjálfa upp starfsfólk á ýmsum stigum fyrirtækisins.
Auðvitað væri gott ef fjárfestar fengju gott verð fyrir eignarhluti sína í fyrirtækjum en Íslendingar hefðu misst mjög mörg góð fyrirtæki úr landi sem voru hér með öflugan rekstur.
Í sumarvinnu færðu innsýn í aðra kima samfélagsins
Í ræðu þinni ræddir þú um mikilvægi menntunar og að þú hefðir áhyggjur af niðurstöðu Pisa-könnunarinnar. En þú ræddir líka um mikilvægi sumarvinnu ungmenna. Hvers vegna telur þú hana vera svona mikilvæga?
„Ég held að íslenska sumarvinnan hafi fært okkur mikið samkeppnisforskot,“ segir hún. Fólk læri að vinna mjög ungt, fái innsýn í aðra kima þjóðfélagsins og kynnist fjölbreyttari hópi en ef það situr bara á skólabekk eða er með sínum nánustu. Sumarvinna víkki sjóndeildarhringinn og geri þau færari að takast á við störf í framtíðinni. Hún hjálpi líka ungmennum að velja hvað þau vilja vinna við í framkvæmdinni, auk þess sem vinnulaun veiti ákveðið sjálfstæði.
Hún segir mikilvægt að atvinnurekendur fái kost á að kaupa tryggingar fyrir ungmenni á aldrinum 13-18 ára þannig að þeir geti boðið þeim alvöru vinnu. Vinnutíminn þurfi ekki endilega að vera jafnlangur og áður fyrr, þegar börnum var jafnvel þrælað út og látin stýra stóreflis vinnuvélum. „Þá eru þau minna í símanum á meðan,“ segir hún.
Íslendingar þurfi að passa sig að eltast ekki bara við það sem þarf að bæta, s.s. árangurinn í Pisa-könnuninni. „Við þurfum líka að huga að því sem við erum góð í og varðveita það forskot sem við höfum. Sumarvinnan tel ég vera eitt af því sem gefur okkur samkeppnisforskot og gerir þetta þjóðfélag dýnamískara og skemmtilegra,“ segir hún. Passa þurfi upp á að glutra því ekki niður.
Sjálf byrjaði Rannveig ung að vinna en hún var átta ára þegar hún byrjaði að vinna með föður sínum, Sigurjóni Rist, í vatnamælingaferðum.
Erum kannski að kæfa ungmenni í bómull
Rannveig þekkir mörg dæmi um að fólk hafi fengið sumarvinnu í Straumsvík og síðan ákveðið að sækja sér menntun sem nýtist í starfi þar. Aðrir hafi séð að þetta væri ekki eitthvað fyrir þá og lært eitthvað allt annað. Reynsla af því að vinna á gólfinu í Straumsvík dýpki líka skilning þeirra sem t.d. ætla að læra verkfræði á þeim verkefnum sem við er að fást.
Þegar Rannveig tók við sem forstjóri árið 1997 færði hún lágmarksaldur starfsmanna úr 20 árum í 18 ár og það takmark miðaðist við mögulegar tryggingar starfsmanna.
Á sínum tíma hefði verið tilefni til að setja reglur um vinnu ungmenna enda hefðu verið dæmi um að þau ynnu sér til óbóta.
„Þannig að það mátti breyta þessu en við fórum kannski aðeins of geyst í það og erum kannski að kæfa þau í bómull í dag,“ segir Rannveig Rist, fyrrverandi forstjóri álversins í Straumsvík.