Þetta kemur fram í athugasemd jarðfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu þann 5. október og 28. júlí. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.
„Skjálftar af þessari stærð verða reglulega í Bárðarbunguöskjunni,“ segir í athugasemdinni en einnig varð skjálfti að stærð 3,0 klukkan 12.51 í Bárðabungu í dag.