Íslenskur skiptinemi sem býr í París í Frakklandi fann lítið fyrir mótmælunum sem hafa verið í borginni, þar til um helgina. Mótmælin hafa stigmagnast síðustu vikur um allt land og mikilar óeirðir voru síðustu daga. Frakkar eru vanir mótmælum og halda sínu striki.
Vatnaskil á laugardag
Rebekka Líf Ingadóttir er skiptinemi í París. Hún stundar nám í lögfræði við Panthéon Assas-háskólann og segir það hafa verið frábært að búa í París.
Hún varð vör við mótmælin fyrir tveimur vikum. Þau byrjuðu með menntskælingum en stuttu síðar fóru háskólanemar einnig að taka þátt.
„Þá fóru tímarnir manns að vera á Teams og eitthvað svona. Að öðru leyti hefur maður ekki fundið fyrir þessu mikið.“
Mótmælin hafa stigmagnast og hundruð þúsunda tekið þátt í þeim. Þau hafa breiðst út um allt land.
„Svo á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni. Allt í einu fann maður að þetta var komið svolítið nálægt manni.“
Rebekka Líf býr í öðru hverfi borgarinnar og þar til á laugardag hafði allt verið rólegt þar. Flest mótmæli hafi verið fyrir utan skólana en þá voru mótmælin búin að breiðast út um alla borg.
„Ég sat hérna í götunni minni og það voru lögreglumenn og það var alls konar fólk með skilti og líka fólk sem var hlaupandi um. Maður vissi kannski að þau voru ekki beint að fara að mótmæla friðsamlega kannski, getum orðað það þannig.“
Hún segir skólamótmælin hafa verið nokkuð friðsamleg. Eina sem mótmælendur hafi gert var að koma í veg fyrir að nemendur hafi getað mætt í skólann.
„Sem tókst. Maður er ekki búinn að fara mikið í skólann síðustu vikur. En á laugardaginn varð þetta bara að einhverju allt öðru, að mínu mati. Þá urðu allt í einu svo rosalega miklar óeirðir.“
Rebekka Líf telur mótmælin hafa hætt að snúast um skólanna á einhverjum tímapunkti og farið að snúast um óánægju mótmælenda með alls konar hluti. Á laugardag hafi ekki verið neitt annað í boði en að halda sig heima.
„Við fórum eitthvað aðeins út en svo bara snerum við beint við og maður var bara heima þann dag.“
Upplifði óöryggi í fyrsta skipti um helgina
Hafa mótmælin haft mikil áhrif almennt á daglegt líf í borginni?
„Já og nei. Maður finnur alveg fyrir því að Frakkinn er vanur þessu og það hafa margir sagt við mig: þú ert að fá Frakkland beint í æð í skiptináminu, sem er auðvitað alveg rétt. Þetta er rosalega ríkt í þeirra menningu að mótmæla ef þau eru ósátt. En það eru kannski þessar óeirðir sem manni finnst óþægilegar.“
Hún segir mótmælin og óeirðirnar orðin það stór að sumir heimamenn séu orðnir smeykir. „Maður fann það alveg sérstaklega í gær. Það voru mótmæli rétt hjá mér eiginlega. Það var hérna hjá Châtelet - Les Halles.“
Veitingastaðaeigendur í götunni hennar hafi þá velt mótmælunum meira fyrir sér. „Sumir eigendurnir komnir út á götu til að gá hvort það væru nokkuð einhverjir að koma. Það var alveg brotist inn í búð rétt hjá mér. Þetta er farið að verða meira heldur en þau eru vön. Maður finnur að þau eru kannski að verða smeykari.“
Íbúar hafi margir hverjir vonast til þess að mótmælunum væri lokið í bili því þau voru svo stór á laugardag.
„Að þetta væri kannski búið í bili eða það versta allavega. En það virðist hafa haldið eitthvað áfram í gær.“
Upplifir þú þig óörugga?
„Nei, ég hef ekki upplifað mig beint óörugga, fyrr en kannski í gær. Þegar þetta var komið svona fullnálægt mér. Af því að ég hef alltaf upplifað mig bara frekar örugga í mínu hverfi en svo var þetta svolítið nálægt í gær og maður heyrði alveg í allskonar hvellum og svona. Þannig að það var kannski svona fyrsta sinn sem ég upplifi mig pínu óörugga en annars ekki.“
Frakkar vanir mótmælum og halda sínu striki
Rebekka segir Frakka vana mótmælum og óeirðum sem þessum.
„Þetta er eiginlega alltaf bara búið daginn eftir sem er ótrúlega fyndið. Frakkinn er bara pínu vanur þessu.“
Hún segist aðeins hafa farið út í gær eftir stóru mótmælin á laugardaginn og þá hafi verið búið að þrífa nánast allt eftir mótmælin, „og allir bara einhvern veginn halda áfram með lífið sko.“
Rebekka segir það skrítið. „Maður sér líka allt í fjölmiðlum og er bara: guð ég þori varla að fara út á götu daginn eftir. En það er bara pínu venjulegt.“
Starfsfólk borgarinnar er fljótt að þrífa veggjakrot, sópa upp glerbrot og skipta út ruslatunnum sem hafi verið kveikt í kvöldið áður. Hún áttaði sig fljótt á því að starfsfólkið er vant.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist, auðvitað. Þau eru vön en aftur á móti er pínu óþægilegt að daginn eftir er svona allt aftur á byrjunarreitt, virðist vera. Maður eiginlega bara vonar að þetta sé svona að lægja eitthvað en gærkvöldið sýndi það allavega ekki.“
Rebekka segir hafa komið á óvart hversu vanir Parísarbúar eru mótmælum og óeirðum eins og þeim sem hafa verið undanfarnar vikur.
„Daginn eftir er bara búið að sópa öllu upp og einhvern veginn bara life moves on. Þannig að ég upplif ekki á daginn að það sé eins og það sé eitthvað um að vera hérna. Nema bara á laugardag, þá var bara allur dagurinn, allt kvöldið og öll nóttin undirlögð.“
Viðhorf Frakkana sé að halda sínu striki.
„Maður veit alveg að það er eitthvað um að vera hérna og það er pínu þannig orka í borginni. Fólk er kannski meira vart um sig en sérstaklega bara á kvöldin. Því maður veit ekki hvort allir fari aftur á stjá og byrji að rústa einhverju eða brenna ruslatunnur eða guð má vita hvað.“
Reyna að koma á friði í borginni
Skólarnir eru að fara í frí og óvíst hvað verður með skólamótmælin. Hún hefur heyrt að það séu mótmæli skipulögð næstu helgar en vonar að stjórnvöld nái að friða mótmælendur svo það verði ekki raunin.
„Þannig að þetta endi ekki á því að vera allar helgar eins og var hérna 17. október. Það væri hrikalegt.“
Mótmælin þá hafi greinilega verið vel skipulögð og viðbrögð lögreglu rosaleg.
„Ég vona að þetta endi ekki á því að vera alltaf næstu vikur þannig. Ég vona að það fari að lægja og ég held að það sé það sem er verið að reyna að gera. Það er verið að reyna að ná einhverjum friði í borginni.“