Ráðherra í stjórnarandstöðu

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar stendur höllum fæti á þrennum vígstöðvum. Innan flokks er sótt að henni, samanber úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokknum. Í ríkisstjórnarsamstarfinu er Þorgerður Katrín hornreka. Tilraunin til að gera utanríkismál að yfirmálaflokki stjórnarsamstarfsins mistókst þegar þjóðin sagði nei við ESB-umsókninni. Á alþingi er utanríkisráðherra einangraður í baráttunni fyrir bókun 35.
Til að draga athyglina frá margháttuðum pólitískum erfiðleikum freistar Þorgerður Katrín þess ítrekað að kveikja umræðuelda um langsótt málefni. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar notaði utanríkisráðherra Trump Bandaríkjaforseta sem grýlu á kjósendur. Pútín Rússlandsforseti var gerður grunsamlegur aðili í íslenskum málefnum rétt fyrir kjördag. Daginn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna var Þorgerður Katrín mætt í viðtal á Bylgjunni og sagði lögreglurannsókn standa yfir vegna hótana sem hún varð fyrir. Engar fréttir eru af lögreglurannsókninni.
Eftir tapið 29. ágúst stóð utanríkisráðherra fyrir upprifjun á nokkurra ára gömlu samtali Trump við Bjarna Benediktsson þáverandi forsætisráðherra til að slá pólitískar keilur. Þorgerður Katrín notaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til að hella olíu á hatursbálið fyrir botni Miðjarðarhafs og uppskar lofsöng frá klerkaveldinu í Íran. Í gær hélt hún áfram fyrri iðju og sakar Ólaf Ragnar Grímsson fyrrverandi forseta og Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor emeritus um að ganga rússneskra erinda.
Ólafur Ragnar og Hannes Hólmsteinn, ásamt fjölmörgum öðrum, eru sigurvegarar síðustu kosninga þegar þjóðin hafnaði ESB-umsókn. Það sæmdi utanríkisráðherra betur að friðmælast við menn sem staðfest er í kosningum að túlkuðu meirihlutavilja þjóðarinnar á meðan valkyrjustjórnin lenti i minnihluta. Er Þorgerður Katrín herjar á talsmenn meirihluta þjóðarinnar smækkar hún sjálfa sig í embætti og vinnur ríkisstjórninni ógagn.
Þorgerður Katrín talar ekki eins og ábyrgur ráðherra með vald á málaflokkum sem undir hann heyra. Utanríkisráðherra er í hlutverki stjórnarandstöðuþingmanns í stöðugri leit að upphlaupi til að sýnast hafa eitthvað til málanna að leggja. Herskár ráðherra er stendur reglulega fyrir uppþotum til að komast í fréttirnar er ófaglegur og örvæntingafullur.
Ógöngur Þorgerðar Katrínar og Viðreisnar má rekja til viðbragðanna við ósigrinum 29. ágúst. Þorgerði Katrínu er um megn að játa ósigur og draga lærdóm af. Viðbrögðin voru hrokafull; þið höfnuðu ESB-umsókn en ég skal troða ofan í þjóðarkokið bókun 35. Ráðherra sem upp á eigin spýtur dregur þjóðina í harðvítuga sex mánaða kosningabaráttu og tapar verður að sýna manndóm og virða þjóðarviljann. Það er lágmarkskrafa.
Stjórnarandstöðupólitík Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra grefur jafnt og þétt undan henni sjálfri, flokknum hennar og ríkisstjórninni í heild.