Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Snorri vísaði til fréttaflutnings síðustu viku af öryggisleysi í skólum Reykjavíkur og spurði hvernig ráðherra hygðist bregðast við.
Vísir greindi frá því á miðvikudag að einstaklingar eða hópar hefðu komið inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki. Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, sagði kennara óttast um öryggi sitt og hafa heyrt af skólum þar sem kennslustofum væri læst meðan kennt væri.
Unnið að viðbrögðum með öðrum ráðherrum
Í svari sínu sagði Inga málið tekið mjög alvarlega og unnið að því á grundvelli nýrra upplýsinga.
„Jú, ég lít málið mjög alvarlegum augum og það liggur náttúrulega algjörlega fyrir að það er verið að vinna að þessu samkvæmt þeim nýju upplýsingum sem við höfum verið að fá.“
Hún sagði alvarlegt að kennarar væru óöruggir í eigin skóla og óttuðust jafnvel árásir nemenda eða utanaðkomandi aðila sem ryddust inn í skólana.
Bregðast þyrfti við í samráði við fleiri, meðal annars dómsmálaráðherra.
Inga sagði alvarleg atvik áður hafa komið upp í einstökum skólum og kvaðst vona að vandinn væri enn bundinn við einstaka skóla.
„En þetta er virkilega snúið og við höfum líka séð það áður að það hafa komið upp alvarleg atvik í skólum og það hefur þá verið frekar svona einskorðað við einstaka skóla.“
Tengir vandann við innflytjendastefnu
Snorri tengdi öryggisleysið við innflytjendastefnu stjórnvalda. Hann sagði hluta vandans tengjast því sem hann kallaði ósjálfbæra innflytjendastefnu og hópum sem hefðu aðlagast samfélaginu illa.
Hann sagði gjarnan talað undir rós um þessar breytingar með því að segja að samfélagið hefði breyst.
Ótti kennara við árásir væri mikil áskorun fyrir menntakerfið og yki álagið á það.
Snorri spurði hvort kjarni vandans væri ekki innflytjendastefnan frekar en að grípa til „sífellt fleiri plástra og frekari öryggisráðstafana“. Hlið og aðrar kostnaðarsamar ráðstafanir leystu að hans mati ekki vandann til lengri tíma.
Skólastjórar vilja takmarka aðgang
Vísir hefur einnig fjallað um kröfur skólastjóra í Hafnarfirði um aukið öryggi. Þar leiddi úttekt öryggisfræðings í ljós þörf á úrbótum á fjölmörgum sviðum.
Skólastjórarnir vilja meðal annars fækka ólæstum inngöngum meðan kennsla stendur yfir, auka aðgangsstýringu og setja upp dyrasíma með myndavélum. Þeir hafa óskað eftir sérstakri fjárveitingu og tímasettri framkvæmdaáætlun. Fræðsluráð vísaði erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2027.