Lykilstarfsmenn fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi fara þaðan beint til starfa í ráðuneyti og stofnunum sem koma að lagasetningu og leyfisveitingum. Þá fer fólk á milli stjórnsýslustiga og vinnur að sama málinu á tveimur stjórnsýslustigum. Þarna er ítrekað vanhæfi og vanhæfi veldur því að ákvörðun verður ógildanleg. Handarbaksvinnubrögð leiddu til þess að sjókvíareldi er heimilað inn á svæði sem er í einkaeigu landeigenda í Seyðisfirði. Þetta er eins og ef einhver tilkynnti manni að búið væri að heimila kjúklingabú inni í garðinum hjá manni.
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig