Að minnsta kosti 80 voru drepnir í drónaárás í suðurhluta Súdan í gær. Árásin var við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, en þar var fjöldi fólks sem var á leið heim til sín.
Árásin er ein sú mannskæðasta síðan stríð braust út á milli súdanska hersins og RSF-uppreisnarhersins í Súdan. Vestur-Kordofan er undir stjórn RSF sem hefur ásakað súdanska herinn fyrir að bera ábyrgð á árásinni. Enn hefur þó enginn lýst yfir ábyrgð á henni.
Þá var gerð önnur drónaárás í Al-Mujilad og særðust fjórir í þeirri árás.
Hjálparstarfsmenn telja að yfir 200.000 hafi verið drepnir í stríðinu í Súdan en engar staðfestar upplýsingar liggja fyrir um mannfall.
Bæði súdanski herinn og RSF-uppreisnarherinn hafa í auknum mæli notað dróna í árásum sínum undanfarið sem hafa valdið miklu mannfalli.
Stríðandi fylkingar eru báðar sagðar bera ábyrgð á stríðsglæpum og árásum á almenna borgara í Súdan. Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað kallað eftir því að öllum árásum verði hætt tafarlaust, að aðgengi að mannúðaraðstoð verði tryggt og vernd borgara og innviða sett í forgang.